Dómsmálaráðherra segir að gripið verði til aðgerða láti áhöfnin á Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna, verða af hótunum sínum. Háttsemi sem ógni íslenskum sjómönnum í lögmætri starfsemi verði ekki liðin.
„Fyrir mér er þetta ekki mál sem snýst um hvalveiðar eða afstöðu til hvalveiða. Þetta er mál sem snýst um öryggi þeirra sjómanna sem eru hér á veiðum og auðvitað líka áhafnar hins erlenda skips,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.
Ein sviðsmyndin að draga Bandero til hafnar
Ráðherra lagði fram minnisblað á ríkisstjórnarfundi í morgun um viðbúnað Landhelgisgæslunnar vegna komu skips Paul Watson-samtakanna, Bandero, til landsins um helgina. Áhöfn skipsins hefur það að yfirlýstu markmiði að stöðva hvalveiðar við Ísland.
„Það er alveg skýrt að hvalveiðar eru löglegar samkvæmt íslenskum lögum, hvað svo sem mönnum kann að finnast um það. Markmið stjórnvalda og hlutverk Landhelgisgæslunnar er að tryggja öryggi sjófarenda. Það munum við gera og munum grípa til allra þeirra aðgerða sem við þurfum að gera til að ná því markmiði ef á reynir.“
Þorbjörg segir nokkra kosti í stöðunni.
„Það er auðvitað ein sviðsmyndin að menn verði dregnir til hafnar. Þannig við skoðum og metum stöðuna út frá því hvert alvarleikastigið er. Þetta byggir á því,“ segir Þorbjörg.
„En íslensk stjórnvöld láta það auðvitað ekki líðast að hingað til lands komi menn í þeim tilgangi, með yfirlýsingar um að ógna öryggi sjófarenda. Reyni á það, þá verður gripið til aðgerða.“
Hvalur 8 og Hvalur 9 við bryggju vegna slæmra veðurskilyrða
Varðskipið Þór hefur fylgt Bandero frá því á sunnudagskvöld. Óljóst hefur verið hvar skipið heldur sig þar sem slökkt er á staðsetningarbúnaði þess. Að kröfu Landhelgisgæslunnar sendir áhöfnin staðsetningu á klukkustundar fresti.
Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur skipið verið á siglingu vestur af Snæfellsnesi og hefur ekki komist í nálægð við hvalveiðiskipin Hval 8 og 9.
Alls hafa tíu langreyðar verið skotnar það sem af er tímabilinu. Hvalur 9 landaði tveimur langreyðum í gær og Hvalur 8 einni í dag. Vegna slæmra veðurskilyrða á miðum úti eru bæði skip við bryggju.
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, hefur ekki svarað beiðni fréttastofu um viðtal þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Í samtali við Morgunblaðið í dag segist hann gefa lítið fyrir þetta „anti-everything“-lið eins og hann kallar liðsmenn Paul Watson-samtakanna, sem mætti útleggja sem fólk sem er á móti öllu.