Par á Stöðvarfirði sér fyrir sér að kostnaður þeirra vegna lokunar einu fæðingardeildarinnar á Austurlandi í sumar geti hlaupið á hundruðum þúsunda. Þau þurfa að ferðast norður á land til að vera nærri opinni fæðingardeild vikurnar í kringum settan dag.
„Tilfinningin að fara frá því að vilja eiga barnið sitt heima, ég var búin að skoða þann valmöguleika en hann er ekki í boði í þessum landsfjórðungi. Yfir í það, OK, þetta verður bara voða heimilislegt og kósý á sjúkrahúsinu í Neskaupstað, yfir í það að ég veit ekki hvar barnið mitt er að fara að fæðast. Það fer alveg með sálartetrið,“ segir Hrafnhildur Ósk Halldórs- Óðinsdóttir, verðandi móðir búsett á Stöðvarfirði.
Hrafnhildur er ein 24 kvenna á Austurlandi sem eiga von á sér meðan fæðingardeildin í Neskaupstað verður lokuð 8. júlí til 14. ágúst vegna endurbóta á skurðstofu.
Aðeins kostnaður móður endurgreiddur
Oddný Ösp Gísladóttir, ljósmóðir og deildarstjóri fjölskyldudeildar HSA, segir að konurnar 24 hefðu ekki allar fætt í Neskaupstað ef deildin hefði verið opin en þær verði allar fyrir áhrifum af lokuninni.
Oddný segir það hafa reynst mörgum erfitt að útvega húsnæði og aðeins hluti komist að á sjúkrahóteli. Ljósmæður HSA hafa reynt að vera skjólstæðingum sínum innan handar til að aðstoða við að skipuleggja ferðalög, útvega húsnæði, kynna þeim hverslags endurgreiðslur á útlögðum kostnaði þær eiga rétt á og útvega rétta pappíra til að geta fengið þær. Kostnaður geti verið verulegur.
„Um leið og fólk þarf að leigja íbúðir, þarf að taka flug fyrir fleiri en sjálft sig, þá erum við mjög fljótt komin yfir hundraðþúsundkallinn og höldum bara áfram að tikka.“
Það er aðeins kostnaður móður sem fæst endurgreiddur upp að marki. Oddný segir maka nánast undantekningalaust ferðast og dvelja með auk eldri barna í sumum tilvikum og jafnvel fleiri fullorðinna til að gæta barna eða vera til stuðnings við fæðingu.
„Það eru ekkert mörg ár síðan það komst á að konur fengju styrk í tengslum við það þegar þær þurfa að bíða fjarri heimili. En ég held að við getum öll verið sammála um það að fæðing er fjölskylduatburður og það að makar séu ekki innifaldir í þessu dæmi er náttúrulega bara gamall hugsunarháttur,“ segir Oddný.
Reikna með allt að hálfri milljón í kostnað
Hrafnhildur á von á sínu öðru barni. Foreldrarnir verðandi, þau Bjarni Stefán Vilhjálmsson, auk fimm ára dóttur og afa hennar fara öll til Akureyrar seint í júlí. Settur dagur er 10. ágúst og þau eiga von á því að dvelja fyrir norðan í allt að tuttugu daga. Fyrsta skrefið var að finna íbúð og Bjarni Stefán auglýsti eftir slíkri í gegnum Facebook.
„Sem betur fer er mikið af góðhjörtuðu fólki á Akureyri því það voru margir sem settu sig í samband við okkur, þannig að það bjargaðist.“
Hrafnhildur og Bjarni segjast ekki vera búin að telja það nákvæmlega saman hver kostnaðurinn við dvölina fyrir norðan verði, „en ég gæti alveg trúað að þetta sé uppundir hálf milljón með öllu, þegar allt er tekið saman,“ segir Bjarni Stefán.
Hrafnhildur tekur undir að það sé líkleg niðurstaða. „Mér finnst alveg lágmark að ég geti eignast barn án þess að ég persónulega, eða við, þurfum að punga út fleiri hundruð þúsund fyrir svona grunnþjónustu, af því að þetta er bara grunnþjónusta.“