Þetta er annað stóra fíkniefnamálið á skömmum tíma en fyrr í mánuðinum var greint frá umfangsmiklu máli tengdu Norrænu. Lögreglan segir eftirspurnina eftir fíkniefnum gríðarlega og að samfélagið þurfi að horfa í eigin barm.
Þá verður sagt frá því að Hvalur 8 kom með tíunda hval vertíðarinnar að landi í dag þrátt fyrir hótanir Paul Watson-samtakanna. Skip samtakanna bíður enn utan landhelgi Íslands. Atvinnuráðherra gagnrýnir jafnframt harðlega hegðun starfsmanna Hvals á höfninni og segir fíflaskapinn geta skaðað orðspor Íslands.
Í þættinum verður einnig rætt við oddvita Húnabyggðar, sem vonast til þess að orka Blönduvirkjunar nýtist í auknum mæli til atvinnuuppbyggingar á Blönduósi með nýrri byggðalínu. Hann kallar jafnframt eftir því að meira verði virkjað á Blöndusvæðinu sem fyrst.
Bjarki Sigurðsson lítur við í einni framsæknustu ísgerð landsins í Eyjafjarðarsveit, þar sem mímósuísinn sló í gegn en Jägermeisterísinn reyndist aðeins of sterkur.
Loks verður farið í Suðursveit, þar sem Þórbergssetrið á Hala, fæðingarstað Þórbergs Þórðarsonar, fagnar 20 ára afmæli. Forstöðukona setursins segist bjartsýn á að verk rithöfundarins muni áfram lifa með þjóðinni.
Allt þetta og meira til í kvöldfréttum á slaginu 18:30 á samtengdum rásum Sýnar, Bylgjunnar og Vísis.