Þetta segir Magnús Pálmar Jónsson, aðgerðarstjóri hjá Landhelgisgæslunni, í samtali við fréttastofu.
Hann segir það ekki tímabært að veita upplýsingar um tildrög en sagði farþegann vera með áverka eftir slys. Vel hafi gengið að koma honum um borð í þyrluna enda aðstæður góðar. Landhelgisgæslunni barst tilkynning um málið í kringum tuttugu mínútur fyrir níu í kvöld.
Á leið til Seyðisfjarðar
Samkvæmt upplýsingum á Marinetraffic er skemmtiferðaskipið Viking Mars á vegum norska skipafélagsins Viking Cruises staðsett skammt fyrir norðan Húsavík. Skipið er á leiðinni frá Akureyri til Seyðisfjarðar, 227 metrar á lengd og tekur 930 farþega. Viking Mars hafði siglt fram hjá Skjálfanda þegar áhöfn þess sneri skipinu við um níuleytið og setti stefnuna í átt að Húsavík.
Björgunarsveitir fengu ekki útkall vegna málsins, samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.
Fréttin var síðast uppfærð klukkan 23:56.