Kemur þetta fram í tilkynningu frá fjölskyldumeðlimum þeirra en þau týndu eru hin 34 ára Estefanía Arboleda Herrera, hinn 54 ára gamli Jeovvany Martínez Quinchía og eiginkona hans Elisabeth Martínez Quinchia sem er 57 ára gömul.
Skiluðu sér ekki á hótelið
Þau eru frá Medellín í Kólumbíu en fjölskylda þeirra segir í tilkynningu frá því að síðustu daga hafi virst sem slökkt væri á farsímum þeirra, sem þyki mjög óvanalegt. Þau hafi sem fyrr segir átt bókaða hótelgistingu í Reykjavík en ekki skilað sér þangað.
„Ef einhver hefur séð þau, haft samband við þau, veit hvar þau gætu verið eða þekkir til yfirvalda, samtaka eða hópa á Íslandi sem gætu aðstoðað við leitina, vinsamlegast látið okkur vita tafarlaust,“ segir í tilkynningu.
Þar er ítrekað að allar upplýsingar, sama hversu smávægilegar þær kunni að virðast, gætu leitt til þess að þau finnist.
Í Facebook-hópnum Latinos en Islandia hafa fjölskyldumeðlimir ferðafólksins birt færslur reglulega síðustu daga en nú er liðin tæp vika frá því að heyrðist frá þeim síðast.
Hægt er að hafa samband við fölskyldumeðlimi ferðafólksins í síma:
(+57) 300 706 4464
(+57) 300 575 4899
(+57) 320 729 6733
Ekki liggur fyrir hvort fjölskylda fólksins hafi haft samband við lögregluna hérlendis en málið er í það minnsta ekki komið inn á borð rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þetta staðfestir E. Agnes Eide Kristínardóttir yfirlögregluþjónn í samtali við blaðamann Vísis.
Af ummælum undir Facebook-færslunum að dæma ætluðu ferðalangarnir einungis að dvelja á Íslandi í um tvo sólarhringa, því næst færu þau aftur til Spánar.
Ertu með ábendingu varðandi þetta mál eða veistu hvar þau eru niðurkomin? Sendu okkur fréttaskot hérna.
Hægt er að hafa samband við fölskyldumeðlimi ferðafólksins í síma:
(+57) 300 706 4464
(+57) 300 575 4899
(+57) 320 729 6733
Ertu með ábendingu varðandi þetta mál eða veistu hvar þau eru niðurkomin? Sendu okkur fréttaskot hérna.