Ayatollah Mojtaba Khamenei, æðstiklerkur íranskra stjórnvalda, sagði í dag að Bandaríkjunum og Ísrael væri þungt högg greitt í kjölfar ályktunar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í gærkvöldi þar sem þingið krafðist brottflutnings bandarískra hermanna frá Íran.
Ályktun þingsins, sem samþykkt var með 215 atkvæðum gegn 208, er að mestu táknræn en engu að síður talin veikja stöðu Donalds Trumps forseta í stríðsrekstri sínum þótt hann sjálfur muni geta beitt neitunarvaldi gegn ályktuninni og þannig gert hana að engu.
Margra vikna samningaviðræður um að koma á friði í Íransstríðinu, þar sem vopnahlé hefur verið í gildi síðan í apríl – og að mestu haldið – hafa engu skilað og Bandaríkin og Íran hafa sent mishljóðandi skilaboð til umheimsins um gang mála á meðan lokun Hormússunds veldur búsifjum um nær allan heim vegna þess hörguls á eldsneyti sem henni fylgir.
Enn fremur ásakaði Khamenei Bandaríkjamenn og Ísraela um að „sá fræjum efa, örvæntingar, vantrausts og sundrungar“ hjá almenningi en framangreint kom fram í ræðu hans í dag sem hann flutti þó ekki sjálfur; það gerði bænastjóri klerkastjórnarinnar.
Ekki sést síðan í febrúar
Æðstiklerkurinn hefur ekki sést opinberlega síðan 28. febrúar þegar faðir hans og fyrirrennari, Ayatollah Ali Khamenei, lét lífið í loftárás Bandaríkjamanna við upphaf atlögu þeirra að Íran en hann hafði það fyrir sið allt frá árinu 1989 að halda ræðu 4. júní hvert ár og minnast þar Ayatollah Ruhollah Khomeini, æðstaklerks og stofnanda þess ríkis sem Íran er eftir byltinguna árið 1979 en hann lést 3. júní 1989.
Ísraelar og Líbanar féllust í gær á vopnahlé í sínum erjum eftir tveggja daga viðræður í Washington og felur samkomulagið í sér að Hizbollah-hryðjuverkasamtökin í Líbanon láti alfarið af árásum og viðurkenni að nokkur svæði, þar sem samtökin hafa haft tögl og hagldir, skuli alfarið lúta stjórn líbanska hersins.
Þrátt fyrir samkomulagið greindu Ísraelar frá því að „óvinveitt flugför“ hefðu flogið inn í ísraelska lofthelgi eftir að það var í höfn auk þess sem líbanskur ríkismiðill greindi frá drónaárásum Ísraela í Suður-Líbanon.