Skyndibitakeðjan KFC hyggst ráðast í umfangsmiklar breytingar á matseðli, vörumerki og veitingastöðum sínum í því skyni að styrkja stöðu sína á bandarískum markaði. Greint er frá þessu í frétt CNBC.Fyrirtækið mun meðal annars leggja aukna áherslu á beinlausan kjúkling, fjölga sósuvalkostum og þróa nýjar tegundir veitingastaða sem eiga að halda athygli viðskiptavina betur. Breytingarnar eru hluti af því sem KFC kallar „næsta kafla“ í sögu fyrirtækisins. DV hefur ekki upplýsingar um hvort og þá hvaða áhrif breytingarnar hafa á KFC hér á landi.
KFC kynnir „næsta kafla“ í sögu fyrirtækisins – Miklar breytingar boðaðar