Í sumar verður hægt að gæða sér á ís og styðja um leið við Bryndísarhlíð, áfalla- og ofbeldismóttöku Landspítalans. Hún var sett á laggirnar í minningu Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sem var myrt á menningarnótt fyrir tveimur árum.
Hópurinn Riddarar kærleikans stendur fyrir söfnuninni í ár, í samstarfi við Ísbúð Huppu. Hópurinn, ásamt minningarsjóði Bryndísar Klöru, stefnir á að safna 200 milljónum fyrir Bryndísarhlíð og þegar hafa safnast 160 milljónir í samstarfi við önnur fyrirtæki. Átakinu var hleypt af stokkunum í einni af ísbúðum Huppu síðdegis.