Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir áhrif yfirvofandi verkfalls flugvirkja þegar farin að koma fram í ferðaþjónustunni. Ferðamenn séu byrjaðir að afbóka ferðir eða kanna möguleika á endurgreiðslu og frestun.Boðað hefur verið til samningafundar hjá ríkissáttasemjara í dag vegna kjaradeilu flugvirkja og Icelandair.
Jóhannes Þór dregur ekkert undan: „Það getur ekki gengið að fámennar stéttir í fluginu geti hreinlega lokað landinu“