Tvítugur maður hefur játað sök í máli sem kom upp í bænum Tilst, í úthverfi Árósa í sumar.
Maðurinn ók á ofsahraða um götur bæjarins á flótta undan lögreglu. Eftirförin endaði með því að hann ók inn í lítið einbýlishús með þeim afleiðingum að kona á sjötugsaldri sem svaf í húsinu lét lífið.
Í frétt DR segir að farþegar í bílnum hafi hrópað á ökumanninn að stöðva bílinn, en hann virti þá að vettugi.
Hann er ákærður fyrir manndráp í umferðinni, sem er nýlegt ákvæði í dönskum hegningarlögum og á við þegar ökumaður veldur dauða með sérlega ógætilegum akstri.
Engin vitni verða kölluð til og engin sönnunargögn lögð fram þar játning liggur fyrir.