Barnaþing umboðsmanns barna var haldið í fjórða sinn í Hörpu þann 21. nóvember 2025.
Alls tóku 140 börn víðs vegar að af landinu þátt á þinginu sem var haldið með þjóðfundarformi. Markmiðið er að efla lýðræðislega þátttöku barna, virkja þau í umræðu um málefni sem snerta þau og veita þeim tækifæri til að koma sínum áhersluatriðum á framfæri.
Sex ungmenni afhentu ráðherrum úr ríkisstjórn Íslands skýrslu með niðurstöðum barnaþingsins í Ráðherrabústaðnum í dag.
Segja hlutina eins og þeir eru
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók á móti niðurstöðunum fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
„Þau eru jarðtengd, þetta eru klárir krakkar og það er auðvitað bara mjög oft þannig að krakkar segja hlutina eins og þeir eru.“
Theodóra Líf Aradóttir, nemandi í Ölduselsskóla, sagði barnaþingið hafa tekist mjög vel til.
„Það var rosalega góð mæting, fjölbreyttur hópur og mér fannst geggjað hvað það var hlustað mikið á börnin.“
Bæta þarf hinsegin fræðslu
Axel Bjarki Kristjánsson, nemandi við Menntaskólann í Hamrahlíð, fannst umræðan um að bæta þurfi hinsegin fræðslu og passa upp á réttindi trans barna jákvæð.
„Eins og við sjáum í fjölmiðlum þá eru stjórnmálamenn að spúa hatri á þessa minnihlutahópa og það ættu að vera afleiðingar og kannski fræðsla bara fyrir alla.“
Fjölbreytt viðfangsefni
Barnaþingmennirnir ræddu einnig einkunnakerfi, aðgengi til íþróttaiðkunar, skólamat og verð í strætó svo eitthvað sé nefnt. Hér má sjá niðurstöðurnar í heild sinni.