Afrakstur eflandi tónlistarverkefnisins Korda samfónía verður sýndur á tónleikum í Hörpu þriðjudagskvöldið 26. maí. Hópur fagtónlistarfólks, nema og fólks í starfsendurhæfingu hefur samið og æft eigin tónverk í vetur.
„Ég hef unnið við samfélagstengd tónlistarverkefni allan minn feril, alveg í næstum því þrjátíu ár og hef unnið við allskonar aðstæður, í fangelsum, á spítölum, geðdeildum, með börnum, ellilífeyrisþegum og allt þar á milli,“ segir Sigrún Sævarsdóttir Griffith tónlistarkona, kennari, stjórnandi og stofnandi Korda samfóníu.
Hljómsveitin samanstendur af fagtónlistarfólki, nemendum í Listaháskóla Íslands og fólki sem hefur verið í starfsendurhæfingu og er að byggja sig upp eftir ýmis konar áföll og veikindi. Hljómsveitarmeðlimir semja tónlist saman frá grunni, þar er engin goggunarröð og hlustað er á allar hugmyndir af opnum huga.
„Það er nefnilega málið að fólk með menntun er svo fast í reglunum en þegar fólk veit ekki hvað ætti að mega og ekki mega þá er allt opið þannig að það er svo ofboðslega spennandi. Að hafa líka hugrekki sem menntaður tónlistarmaður að hugsa já bíddu gefum þessu séns, sjáum hvert það fer og hvar það lendir.“
Sigrún segir hljómsveitina á tánum, sveitta að láta allt ganga upp fyrir stóru tónleikana í Silfurbergi í Hörpu annað kvöld.
„Þetta verður alveg gífurlega áhugavert. Þarna verða spiluð stór verk sem öll hljómsveitin flytur saman og svo erum við með fimm verk þar sem hljómsveitinni er skipt í minni grúppur sem hafa samið sín lög. Þannig að þetta verður fjölbreytt, áhugavert og virkilega skemmtilegt, við lofum því.“