Alþjóðastjórnmálafræðingur segir Norðmenn ætla að sýna Evrópusambandinu að þeir séu verðugur bandamaður og láta til sín taka í ákvarðanatöku. Hún segir fulla ástæðu til að Ísland taki virkan þátt og styrki stöðu sína gagnvart ESB.
Utanríkis- og viðskiptaráðherra Noregs kynntu í morgun mestu breytingar sem gerðar hafa verið á vinnu við reglugerðir og tilskipanir Evrópusambandsins síðan samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið tók gildi 1994.
„Ég tel það ekki síst til þess að sýna Evrópusambandinu að þau séu verðugur bandamaður og til að það séu meiri líkur á að þeir verði teknir inn í ákvarðanatöku eða geti haft áhrif,“ segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur um hvað megi lesi úr áformum Norðmanna.
Hún segir þetta líka gert til að vernda norska hagsmuni og það sé full ástæða fyrir íslensk stjórnvöld að fylgjast vel með því hvað Norðmenn eru að gera og taka þátt í því.
„Það er ljóst að Norðmenn ætla að efla skrifstofu EFTA í Brussel í tengslum við þetta og fá Ísland á Liechtenstein með inn. Ég held að það sé bara spurning um að við við sitjum ekki og bíðum bara heldur tökum mjög virkan þátt, gerum margt til að styrkja okkar stöðu í EES-samningnum og gagnvart Evrópusambandinu nú þegar að komið er í ljós að við ætlum ekki að fara í aðildarviðræður.“