Íranskur embættismaður segir Trump „ruglaðan og óstöðugan“

Íranskur embættismaður segir Trump „ruglaðan og óstöðugan“

Íranskur embættismaður segir Trump „ruglaðan og óstöðugan“

Yfirvöld í Íran hóta kröftugum hefndaraðgerðum ef Bandaríkin fylgja eftir fyrirætlunum sínum um að taka yfir Kharg-eyju. Bandarísk stjórnvöld hafa sagt eyjuna vera „tengingu fyrir allt olíuframboð Írans“.

Ebrahi Azizi, yfirmaður þjóðaröryggis- og utanríkisstefnunefndar íranska þingsins, lýsti Donald Trump Bandaríkjaforseta sem „rugluðum og óstöðugum“ í samtali við íranska fjölmiðla í dag.

Azizi sagði Írana vera að fullu undirbúna fyrir mögulega atlögu Bandaríkjamanna að eyjunni. Hann sagði viðbúnaðarstig herafla Írans í hámarki á Kharg-eyju.

„Herafli okkar er reiðubúinn, með allan sinn styrk og alla sína getu,“ sagði Azizi.

Stjórnvöld á Indlandi funduðu í dag með Jason Meeks, varasendiherra Bandaríkjanna í Nýju Delí. Tilgangur fundarins var að mótmæla aðgerðum Bandaríkjanna sem leiddu til dauða þriggja indverskra sjómanna á olíuflutningaskipinu Settebello við strendur Óman í gær.

Mennirnir þrír, sem nú hafa verið nafngreindir, gegndu ólíkum hlutverkum á skipinu. Aditya Sharma var skipstjórnarnemi, Shivanand Chaurasia var vélsmiður og Patnala Suresh starfaði sem yfirverkfræðingur.

Skipamálaráðherra Indlands segir dauða sjómannanna þriggja vera tjón sem ómögulegt verður að laga. Hann kveðst vera afar hryggur yfir atvikinu sem sé „hörmulegt.“ Ráðherrann segir að lík mannanna þriggja verði send aftur til Indlands við fyrsta tækifæri.

Hezbollah-samtökin segjast hafa skotið niður dróna ísraelska hersins nærri Bekaa-dalnum í austurhluta Líbanon í dag.

Þetta staðfesta ríkisfjölmiðlar í Líbanon.

Fyrr í dag gerði Ísraelsher loftárás nærri sjúkrahúsi í borginni Týros í suðurhluta landsins.

Einn lést og 17 særðust þegar Ísraelsher gerði loftárás nærri sjúkrahúsi í Týros í dag.

Samkvæmt líbönskum fjölmiðlum hafnaði loftskeyti Ísraelshers á íbúðahúsnæði nálægt sjúkrahúsi í borginni Týros í suðurhluta Líbanons.

Tíu starfsmenn sjúkrahússins særðust, þar á meðal hjúkrunarfræðingar sem urðu fyrir glerbrotum og braki sprengingarinnar. Þá urðu einnig skemmdir á bráðamóttöku sjúkrahússins og sjúkraherbergjum.

Rúmlega 3.700 hafa látið lífið og 11.483 særst frá því árásir Ísraels á Líbanon færðust í aukana í byrjun mars, að því er fram kemur í gögnum heilbrigðisráðuneytis Líbanons.

Donald Trump Bandaríkjaforseta hefur hingað til gengið erfiðlega að fá Írana til að semja um frið eða varanlegt vopnahlé, þrátt fyrir ítrekaðar yfirlýsingar um að samningar séu á næsta leiti.

Árásir Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran hafa haft verulegar efnahagslegar afleiðingar í för með sér um allan heim.

Í Heimsglugga vikunnar er gerð ítarleg grein fyrir átökunum í Mið-Austurlöndum. Þar er meðal annars fjallað um aðgerðir Bandaríkjaforseta og hvaða árangri þær hafa skilað, stríðsrekstur stríðandi fylkinga, þátttöku Ísraels og hættur á langvinnri krísu.

Hægt er að hlusta á Heimsgluggann í spilara RÚV, neðst í fréttinni hér að neðan.

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkin ætla að ráðast á Íran af miklum krafti í kvöld.

„Einhvern tímann í ekki svo fjarlægri framtíð ætlum við að taka yfir Kharg-eyju ásamt öðrum olíuinnviðum og ná fullri stjórn á olíu- og gasmörkuðum þeirra, rétt eins og við gerðum við Venesúela,“ segir forsetinn á samfélagsmiðlinum Truth Social.

Í færslunni endurtók hann jafnframt fullyrðingar sínar um að Bandaríkin hafi með árásum sínum eyðilagt alla hernaðarinnviði Írana sem búi þar af leiðandi ekki lengur yfir neinni hernaðargetu.

Hvað er Kharg-eyja? Hvert er mikilvægi hennar?

Kharg-eyja er um þrjátíu kílómetra frá meginlandi Íran, norðarlega í Persaflóa og um 22 ferkílómetrar að stærð. Um 90% af hráolíuútflutningi Írans fer um eyjuna og er hún því afar mikilvæg fyrir efnahag landsins.

Bandaríski herinn hefur ítrekað gert árásir á eyjuna og hafa embættismenn lýst henni sem „tengingu fyrir allt olíuframboð Írans.“ Bryggjur hennar standa út í átt nærliggjandi hafsvæða og dýpt hafnarinnar rúmar risaolíuflutningaskip, sem gerir hana að mikilvægum stað fyrir olíudreifingu.

Ísraelskir hermenn hafa ráðist inn í bæina Ma'ariya og al-Arda í suðurhluta Sýrlands. Í frétt sýrlenskra fjölmiðla er haft eftir embættismanni að fulltrúar ísraelska hersins hafi í dag sett upp eftirlitsstöðvar í bæjunum og hindrað för íbúa.

Muwaffaq Mahmoud, yfirmaður bæjarráðs Abidin og Ma'ariya, segir í samtali við fjölmiðla að ísraelskir hermenn hafi ráðist inn í bæinn á vel búnum herbílum við sólarupprás og komið sér fyrir í grennd við vatnsból.

Sýrlensk yfirvöld hafa ítrekað óskað eftir því að ísraelsk yfirvöld yfirgefi yfirráðasvæði sitt með öllu.

Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, ræddi þróun átakanna í Mið-Austurlöndum við Kaju Kallas, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins, í gegnum fjarfundarbúnað í dag.

Á fundinum fór Araghchi afar hörðum orðum um árásir Bandaríkjamanna og sagði þær brot á sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Hann ítrekaði jafnframt að aðgerðir Bandaríkjamanna hefðu fellt vopnahléið úr gildi og að Bandaríkin bæru ábyrgð á afleiðingum þess.

Þá beindi utanríkisráðherrann spjótum að aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna og sagði þögn hafa ríkt á meðal ríkjanna varðandi árásir Bandaríkjanna á Íran. Slíkt aðgerðarleysi á heimsvísu myndi einungis draga enn frekar úr öryggi og stöðugleika um allan heim.

Utanríkisráðuneyti Sádí-Arabíu hvetur yfirvöld í Íran og Bandaríkjunum til þess að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að fyrirbyggja frekari stigmögnun átaka í Mið-Austurlöndum.

Í yfirlýsingu hvetja stjórnvöld í Sádí-Arabíu fulltrúa beggja ríkja til að snúa aftur að samningaborðinu og hefja uppbyggilegar viðræður. Mikilvægt sé að hlífa íbúum Mið-Austurlanda og víðar fyrir afleiðingum endurupptöku stríðsins og að endurheimta öryggi og stöðuleika til lengri tíma.

Hakan Fidan, utanríkisráðherra Tyrklands, tekur í sama streng. Hann segir árásum ríkjanna tveggja verða að linna sem allra fyrst. Þá séu Tyrkir í nánu sambandi við Washington, Teheran og sáttasemjara Pakistan og að mikilvægt sé að ljúka friðarviðræðum og ná samkomulagi.

Vaktin heldur áfram. Ég heiti Mist Grönvold og er hér með tekin við af Brynjólfi Þór.

Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, segir brýnt að Evrópusambandið sé tilbúið til að beita Íran nýjum viðskiptaþvingunum ef stríðinu í Mið-Austurlöndum ljúki ekki í bráð.

„Ef Teheran heldur áfram á rangri braut verður ESB að vera tilbúið að beita Íran auknum þrýstingi með markvissum aðgerðum,“ sagði Meloni þegar hún ávarpaði Evrópusambandið á fundi í dag.

Íranar segjast hafa lokað alfarið fyrir skipaumferð um Hormússund. Stofnun sem Íranar settu á fót til að stýra umferð og innheimta gjöld sagði í dag að sundinu hefði verið lokað vegna árása Bandaríkjahers við Persaflóa.

Stofnunin vísaði líka til yfirlýsinga íranska byltingarvarðarins í gær um að búið væri að loka Hormússundi fyrir umferð þar til annað verður ákveðið. Bandaríkjaher vísaði því þá á bug að Írönum hefði tekist að stöðva siglingar um sundið.

Þrír indverskir farmenn féllu þegar bandaríski flotinn skaut á flutningaskip sem þeir voru á úti fyrir ströndum Óman. Siglingaráðherra Indlands greindi frá þessu í dag.

Indverjar boðuðu sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund til að mótmæla árásinni. Þetta er annað skipið með indverska áhöfn sem verður fyrir árás Bandaríkjamanna í þessari viku. Á mánudag voru 24 skipverjar úr áhöfn skips fluttir frá borði vegna elds sem kviknaði í árás.

Jórdanski herinn segist hafa skotið niður 20 eldflaugar sem Íranar skutu í átt að stjórnstöð Bandaríkjahers í landinu.

Loftvarnakerfi Jórdaníu og konunglegi jórdanski flugherinn skutu niður 20 eldflaugar sem var skotið frá Íran í átt að Azraq-svæðinu í Zarqa-héraði, sagði herinn í yfirlýsingu. Svæðið er um 80 kílómetra austur af Amman, höfuðborg Jórdaníu.

Herinn sagði að þrátt fyrir að talsvert brak hefði fallið til jarðar hefði enginn særst.

Sendinefnd frá Katar fór til Írans til viðræðna við þarlenda ráðamenn. Fundurinn stóð fram á nótt en sendinefndin hélt aftur til síns heima í morgun.

Þetta hefur AFP-fréttastofan eftir ónefndum embættismanni. Hann sagði viðræðurnar hafa átt sér stað að höfðu samráði við Bandaríkjastjórn.

Kínversk stjórnvöld hvetja Bandaríkjamenn og Írana eindregið til að hætta öllum hernaðaraðgerðum.

Lin Jian, talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins, kom stefnu stjórnvalda á framfæri á blaðamannafundi.

„Kína hvetur eindregið til þess að viðeigandi aðilar hætti þegar í stað hernaðaraðgerðum, snúi sér að viðræðum og samningum, bregðist við tilraunum annarra ríkja til að miðla málum og nái saman um víðtækt og varanlegt vopnahlé eins fljótt og auðið er,“ sagði Lin Jian.

Íranska utanríkisráðuneytið fordæmdi í morgun árásir Bandaríkjahers á landið. Í tilkynningu ráðuneytisins segir að árásirnar séu ólöglegar og glæpsamlegar og þar að auki sé þýðingarlaust að halda áfram viðræðum um frið á meðan Bandaríkjamenn haldi árásum sínum áfram.

Íranar vörpuðu allri sök á herðar Bandaríkjamanna.

Góðan dag og velkomin í fréttavakt um hernaðarátök við Persaflóa og víðar í Miðausturlöndum. Ég heiti Brynjólfur Þór Guðmundsson og fylgi ykkur inn í daginn.

Bandaríkjamenn gerðu nýjar árásir á Íran í gærkvöld. Íranir svöruðu með árásum á bandarískar herstöðvar í nágrannaríkjunum. Í fréttinni að neðan má lesa um atburði gærkvöldsins og næturinnar. Nýjustu tíðindi birtast svo hér að ofan.

#embættismaður #ruglaðan #segir #trump #íranskur


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-06-11-einn-latinn-og-sautjan-saerdir-eftir-arasir-israelshers-i-tyros-477753

📰 Aðrar fréttir

„Kannski hefur Evrópa einfaldlega verið að tala vitlaust tungumál við Trump“
📅 26.10.2026 👁️ 1
„Kannski hefur Evrópa einfaldlega verið að tala vitlaust tungumál við Trump“
Sigvaldi Einarsson, frumkvöðull og áhugamaður um alþjóðamál, veltir því fyrir sér í pólitískri ádeilu hvort staðan í heiminum væri öðruvísi hefði Evró...
Kominn yfir fertugt? Þetta eru 10 mikilvægustu æfingarnar fyrir restina af lífi þínu
📅 26.10.2026 👁️ 1
Kominn yfir fertugt? Þetta eru 10 mikilvægustu æfingarnar fyrir restina af lífi þínu
Hvaða æfingar myndirðu velja ef þú mættir aðeins gera tíu það sem eftir væri ævinnar? Jeff Cavaliere, maðurinn á bak við ATHLEAN-X, hefur tekið saman ...
40 ár frá vígslu Hallgrímskirkju
📅 26.10.2026 👁️ 1
40 ár frá vígslu Hallgrímskirkju
Hallgrímskirkja er eitt þekktasta kennileiti borgarinnar og var formlega vígð þann 26. október 1986. Hátíðardagskrá hefur farið fram undanfarna viku í...
Óráðlegt að hætta við nýtt einkunnakerfi þrátt fyrir óvissu
📅 26.10.2026 👁️ 1
Óráðlegt að hætta við nýtt einkunnakerfi þrátt fyrir óvissu
„Ég held að það væri óráð að reyna að hætta við,“ sagði Jón Páll Haraldsson, skólastjóri Laugalækjarskóla og varaformaður Skólastjórafélags Íslands, u...
Hrósar venjulega ekki stjórnmálamönnum en gerir undantekningu með Lula
📅 26.10.2026 👁️ 2
Hrósar venjulega ekki stjórnmálamönnum en gerir undantekningu með Lula
Kristinn Hrafnsson fjölmiðlamaður og upplýsingafulltrúi Wikileaks segist venjulega fara varlega í að hrósa stjórnmálamönnum en í ljósi góðrar reynslu ...
Beijing til Keflavíkur í einni ferð í fyrsta sinn
📅 26.10.2026 👁️ 2
Beijing til Keflavíkur í einni ferð í fyrsta sinn
Fyrsta beina flugið á milli Kína og Keflavíkur, með viðkomu í Kaupmannahöfn, var í dag. Sendiherra Kína segir þetta mikla breytingu í samskiptum ríkja...
Kosningar í Ísrael: Þjóð á kross­götum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 2
Kosningar í Ísrael: Þjóð á kross­götum - Vísir
Kosningarnar snúast að verulegu leyti um Benjamín Netanjahú forsætisráðherra sjálfan. Fréttaskýrendur í Ísrael og annars staðar líta margir svo á að á...
Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úr­slitum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 1
Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úr­slitum - Vísir
Kosningarnar snúast að verulegu leyti um Benjamín Netanjahú forsætisráðherra sjálfan. Fréttaskýrendur í Ísrael og annars staðar líta margir svo á að á...
Blendnar tilfinningar fyrir leitina að Lúðvík
📅 26.10.2026 👁️ 2
Blendnar tilfinningar fyrir leitina að Lúðvík
Bróðir manns sem féll niður í sprungu sem myndaðist í Grindavík segist þakklátur fyrir að ákveðið hafi verið að ráðast í leit að líki bróður hans. Lei...
Sama jarmið í sauð­fé og ferða­mönnum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 2
Sama jarmið í sauð­fé og ferða­mönnum - Vísir
Þetta heyrðum við á bænum Gerði þegar við ræddum við þau Björn Borgþór Þorbergsson og Þóreyju Bjarnadóttur fyrir þáttinn Um land allt. Þau eru í hópi ...
Minni byggðalög líði fyrir aukna miðstýringu lögreglu
📅 26.10.2026 👁️ 2
Minni byggðalög líði fyrir aukna miðstýringu lögreglu
Áform dómsmálaráðherra um að sameina lögregluembætti í þrjú mæta harðri mótstöðu á landsbyggðinni. Dómsmálaráðherra segir lítil embætti ekki ná utan u...
Oscar-winning producer says BBC gave her £400,000 payout after she raised antisemitism concerns
📅 26.10.2026 👁️ 2
Oscar-winning producer says BBC gave her £400,000 payout after she raised antisemitism concerns
The BBC says it did not uphold any of the allegations of antisemitism but accepted there were "shortcomings" in how it treated Lucie Kon.
Á ég að segja syni mínum hræðilegan sannleikann um ömmuna sem hann elskaði?
📅 26.10.2026 👁️ 3
Á ég að segja syni mínum hræðilegan sannleikann um ömmuna sem hann elskaði?
Á að segja sannleikann um erfiða fortíð eða á að hlífa tilfinningum ástvina? Það er hægt að lifa eftir mottóinu um sannleikurinn sé sagna bestur en vi...
Hvað veistu um… pitsur? - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Hvað veistu um… pitsur? - Vísir
Pitsur hafa fyrir löngu fest sig í sessi sem einn vinsælasti skyndibiti heims og njóta mikilla vinsælda á Íslandi, hvort sem hún er borðuð á veitingas...
Ó­metan­legt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 1
Ó­metan­legt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum - Vísir
Brynjar Steinn er fæddur árið 1999 og öðlaðist mikla frægð á samfélagsmiðlinum Snapchat á sínum tíma, þar sem notandanafnið hans var einmitt Binni Gle...
Biskupar sjá eftir bæna­stund með Trump - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Biskupar sjá eftir bæna­stund með Trump - Vísir
Aðstoðarkona Donalds Trump Bandaríkjaforseta og ráðgjafi hans í samskiptum birtu myndband af tólf biskupum í bænastund með forsetanum er þeir sóttu ha...
Meirihluti kjósenda valdi „Serbíu frekar en mafíu“
📅 26.10.2026 👁️ 3
Meirihluti kjósenda valdi „Serbíu frekar en mafíu“
Kjósendur völdu á milli Serbíu eða mafíu í þingkosningum sem fóru fram í landinu í gær, að sögn kjósanda frá Íslandi. Stúdentahreyfing vann stórsigur ...
Líkamshlutar manns fundust í Rínarfljóti
📅 26.10.2026 👁️ 3
Líkamshlutar manns fundust í Rínarfljóti
Þrír menn fundu poka sem innihéldu fótlegg af manni þegar þeir gengu meðfram árbakka Rínarfljóts í Stein, skammt frá Basel í Sviss, í gær.Lögreglan í ...
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
📅 26.10.2026 👁️ 3
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir...
Slá skjaldborg um sveitarstjórann eftir spurningar um meint vanhæfi vegna tengsla við Samherja
📅 26.10.2026 👁️ 3
Slá skjaldborg um sveitarstjórann eftir spurningar um meint vanhæfi vegna tengsla við Samherja
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar sammæltist um það á fundi sínum á fimmtudag að lýsa yfir fullu trausti til Katrínar Sigurjónsdóttur sveitarstjóra í kjö...
Biskupar biðjast afsökunar á fundinum með Trump – „Ég finn til mikillar sorgar“
📅 26.10.2026 👁️ 3
Biskupar biðjast afsökunar á fundinum með Trump – „Ég finn til mikillar sorgar“
Tveir kaþólskir biskupar hafa beðist afsökunar á fundi sínum með Donald Trump Bandaríkjaforseta. Birt var ljósmynd af þeim að biðja með honum.Breska b...
Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn - Vísir
Koenig lést á heimili sínu í Hollywood í gær, segir í umfjöllun Variety.  „Í dag syrgjum við Walter Koenig. Hæfileikar hans, hlýja og ógleymanlegur fl...
Bilaður bíll í Hvalfjarðargöngum
📅 26.10.2026 👁️ 3
Bilaður bíll í Hvalfjarðargöngum
Hvalfjarðargöng voru lokuð vegna bilaðs bíls í skamma stund á sjöunda tímanum samkvæmt vef Vegagerðarinnar. Þau hafa verið opnuð á ný.
Eftirspurn eftir meiri raforku aðallega frá gagnaverum
📅 26.10.2026 👁️ 3
Eftirspurn eftir meiri raforku aðallega frá gagnaverum
Heimili á Íslandi nota um 5% af allri raforku sem hér er framleidd og stóriðjan tæplega 80%. Samkvæmt nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins nota gagnaver...
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum í september
📅 26.10.2026 👁️ 4
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum í september
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum á Íslandi í september. Deildarstjóri segir mikinn meirihluta hafa drepist á Reyðarfirði, vegna marglytta sem her...
„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ - Vísir
Breytingar á svokallaðri Loftbrú, um niðurgreiðslu flugfargjalda fyrir íbúa á landsbyggðinni, eiga að taka gildi 1. janúar. Ingibjörg segir Loftbrúna ...
Áform ríkisstjórnarinnar lenda verst á þeim sem eiga að njóta ávinningsins
📅 26.10.2026 👁️ 4
Áform ríkisstjórnarinnar lenda verst á þeim sem eiga að njóta ávinningsins
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hyggst stytta hámarkstíma nýrra verðtryggðra húsnæðislána í 25 ár úr 40. Því er ætlað að tryggja að höfuðstóll hækki e...
Vilja að tekið sé meira tillit til hávaða frá Keflavíkurflugvelli
📅 26.10.2026 👁️ 4
Vilja að tekið sé meira tillit til hávaða frá Keflavíkurflugvelli
Minnihluti skipulagsráðs Reykjanesbæjar fer fram á að í nýju aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar verði tekið mið af hljóðvist og samfélagslegum áhrif f...
Lög­regla kölluð til vegna drengjana í Goða­fossi - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Lög­regla kölluð til vegna drengjana í Goða­fossi - Vísir
Greint var frá því í gær að myndband af tveimur bandarískum strákum stökkva ofan í Skjálfandafljót af kletti við Goðafoss hefði verið birt á samfélags...
Lög­regla kölluð til vegna drengjanna í Goða­fossi - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Lög­regla kölluð til vegna drengjanna í Goða­fossi - Vísir
Greint var frá því í gær að myndband af tveimur bandarískum strákum stökkva ofan í Skjálfandafljót af kletti við Goðafoss hefði verið birt á samfélags...
Jón Gnarr segir Viðreisn í krísu – útilokar ekki að hætta stuðningi við ríkisstjórnina
📅 26.10.2026 👁️ 4
Jón Gnarr segir Viðreisn í krísu – útilokar ekki að hætta stuðningi við ríkisstjórnina
Jón Gnarr þingmaður segir Viðreisn glíma við uppsafnaðan samskiptavanda, skipulagsleysi og pólitískar deilur. Hann hyggst áfram styðja ríkisstjórnina ...
Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána - Vísir
Maðurinn hefur verið ákærður fyrir gróft brot á vopnalögum auk vörslu fíkniefna og sprengifimra og eldfimra hluta. Málið verður tekið fyrir í Kalmar n...
Lögregla kölluð til vegna manna sem stukku í hylinn við Goðafoss
📅 26.10.2026 👁️ 4
Lögregla kölluð til vegna manna sem stukku í hylinn við Goðafoss
Myndband af bandarískum piltum stökkva ofan í Skjálfandafljót við Goðafoss hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlinum Instagram.Skjálfandafljót er ...
Calima pre-alert declared across the Canary Islands as air quality worsens
📅 26.10.2026 👁️ 3
Calima pre-alert declared across the Canary Islands as air quality worsens
A pre-alert for calima has been activated across the Canary Islands after a deterioration in air quality was recorded at monitoring stations in Teneri...
Mosfellsbær kefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
📅 26.10.2026 👁️ 3
Mosfellsbær kefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
Mosfellsbær hefur skorað formlega á ræstingafyrirtækið iClean að afhenda verkalýðsfélaginu Eflingu gögn sem snúa meðal annars að verklýsingum, tímaútr...
Mosfellsbær krefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
📅 26.10.2026 👁️ 4
Mosfellsbær krefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
Mosfellsbær hefur skorað formlega á ræstingafyrirtækið iClean að afhenda verkalýðsfélaginu Eflingu gögn sem snúa meðal annars að verklýsingum, tímaútr...
Machado reiðbúin að ræða við sitjandi forseta
📅 26.10.2026 👁️ 3
Machado reiðbúin að ræða við sitjandi forseta
Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela og handhafi friðarverðlauna Nóbels, er reiðbúin til að setjast niður með sitjandi fors...
Tóku mann af lífi fyrir að hafa tekið þátt í mótmælum 14 ára gamall – Játning knúin fram með pyndingum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Tóku mann af lífi fyrir að hafa tekið þátt í mótmælum 14 ára gamall – Játning knúin fram með pyndingum
Yfirvöld í Sádi Arabíu hafa tekið 29 ára mann að nafni Hassan Zaki al-Faraj af lífi. Hassan tók þátt í mótmælum þegar hann var 14 ára gamall en var sí...
„Þetta fæ ég fyrir að tjá mér um samfélagsmál“
📅 26.10.2026 👁️ 4
„Þetta fæ ég fyrir að tjá mér um samfélagsmál“
„Þetta fæ ég fyrir að tjá mér um samfélagsmál,“ segir Jasmina Vajzovic um færslu Sigfúsar Aðalsteinssonar í hópnum Ísland – Þvert á flokka þar sem han...
Planning a quiet island travel film with Seedance 3.0
📅 26.10.2026 👁️ 3
Planning a quiet island travel film with Seedance 3.0
A folded map rests on a terrace table as the morning light reaches its edge. Beyond the railing, the sea is still a soft strip of colour. For a travel...
„Mestu fjárframlög til Loftbrúar nokkru sinni“
📅 26.10.2026 👁️ 3
„Mestu fjárframlög til Loftbrúar nokkru sinni“
Eyjólfur Ármannsson mun leggja fram breytingu á fyrirhugaðri breytingu á Loftbrú. Í frumvarpi til fjárlaga næsta árs var gert ráð fyrir 600 milljónum ...
Israelis and Americans are both voting - with global consequences
📅 26.10.2026 👁️ 3
Israelis and Americans are both voting - with global consequences
The next fortnight sees two elections on different continents. The outcomes will shape geopolitics and the global economy, writes James Landale
Alma bað Runólf að sinna starfi forstjóra áfram
📅 26.10.2026 👁️ 3
Alma bað Runólf að sinna starfi forstjóra áfram
Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans hefur fallist á beiðni Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra að sinna starfi forstjóra áfram. Fimm ára skipunart...
Á­hrifa­valdar sektaðir fyrir að aug­lýsa veð­mál - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Á­hrifa­valdar sektaðir fyrir að aug­lýsa veð­mál - Vísir
Norski áhrifavaldurinn Christian Brennhovd var í sumar sektaður um 120.000 norskar krónur, sem gera um 1,5 milljónir íslenskra króna, vegna ólöglegra ...
Orðið á götunni: Ógnarstjórn Hildar í Reykjavík
📅 26.10.2026 👁️ 3
Orðið á götunni: Ógnarstjórn Hildar í Reykjavík
Orðið á götunni er að gamanið sé tekið að kárna hjá meirihlutanum í Reykjavíkurborg. Ferillinn hingað til, sem raunar er ekki ýkja langur, er varðaður...
Segist vera mættur til að brjóta og bramla
📅 26.10.2026 👁️ 3
Segist vera mættur til að brjóta og bramla
„Við erum bara hér til að brjóta allt og bramla,“ svarar ungur maður þegar hann er spurður hvers vegna hann taki þátt í mótmælum í Frakklandi. Maðurin...
Chris Brown á skil­orði - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Chris Brown á skil­orði - Vísir
BBC greinir frá. Hinn meðákærði, raddþjálfi Browns og rapparinn Omololu Akinlolu eða HoodyBaby, var dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundinn dóm. Báði...
Temu ætlar að grípa til aðgerða gegn sölu á ólöglegum vörum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Temu ætlar að grípa til aðgerða gegn sölu á ólöglegum vörum
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segist hafa samþykkt aðgerðaáætlun kínversku netverslunarinnar sem ætlað er að bæta úr brotum á reglugerð ESB um st...
Chris Brown fær 8 mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm
📅 26.10.2026 👁️ 3
Chris Brown fær 8 mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm
Bandaríski söngvarinn Chris Brown fékk átta mánaða skilorðsbundinn dóm í dag í tengslum við slagsmál á næturklúbbi í Lundúnum fyrir þremur árum. Refsi...
Runólfur verður á­fram for­stjóri - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Runólfur verður á­fram for­stjóri - Vísir
Runólfur hefur gegnt stöðunni í tæp fimm ár og hefði upphaflegum skipunartíma hans lokið þann 1. mars næstkomandi. Í nýjum Spítalapúlsi Landspítalans ...