Bandaríkjaher gerði áfram árásir á Íran í nótt. Stjórnvöld í Íran segja herinn hafa drepið 14 manns í árásum síðustu tvo sólarhringa. Þau hafa gert gagnárásir á Barein, Kúveit og Katar.
Stjórnvöld í Íran segjast hafa gert árásir á hernaðarleg skotmörk Bandaríkjanna í löndunum þremur, Barein, Kúveit og Katar. Stjórnvöld í Kúveit segja Írana hafa sært einn. Í Bahrein hafa stjórnvöld hvatt almenning til að halda ró sinni að halda sig í skjóli.
Árásir Írana eru svar við árásum Bandaríkjahers á fjölda staða í Íran síðustu tvo sólarhringa. Bandaríkjaher hefur gert árásir á um 90 skotmörk, flest í suðurhluta Írans, svo sem brýr, hafnir og flugvöll.
Írönsk stjórnvöld segja Bandaríkin hafa drepið 14 manns í árásunum og sært 78. Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því yfir í gær að úti væri um viðræður við Írana um vopnahlé. Árásirnar hafi verið svar við árásum Írana á skip á Hormússundi.
Ali Khamenei, æðstiklerkur Írans, sem ráðinn var af dögum í árásum Bandaríkjanna og Ísraels 28. febrúar, verður jarðsettur í heimaborg sinni Mashhad í dag. Milljónir hafa mætt í ýmsar athafnir síðustu vikuna sem voru hluti af útförinni.