Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu Ferjuleiða sem sjá um ferjuna Baldur. Áætlað er að ferjan verði í slippnum í fjórar til sex vikur og verður því síðasta áætlunarferð Baldurs yfir Breiðafjörð mánudaginn 5. október.
Ingólfi er alla jafna siglt á Vestfjörðum en hann kemur frá Ísafirði og verður siglt leiðina á þriðjudögum, föstudögum og sunnudögum.
„Upplýsingar um brottfarartíma verða gefnar út þegar nær dregur,“ segir í tilkynningu Ferjuleiða.
Allir sem þurfa að flytja þunga hluti á milli og vörur til og frá Flatey eru hvattir til að ljúka því áður en Baldri verður siglt til Hafnarfjarðar.