Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur lagt fyrir ónefndan iðnaðarmann að endurgreiða viðskiptavini megnið af innborgun, sem var alls ein og hálf milljón króna, sem hann greiddi inn á umfangsmikið verk sem þeir höfðu samið um að iðnaðarmaðurinn tæki að sér. Iðnaðarmaðurinn vann aðeins lítinn hluta af verkinu áður en hann hætti að mæta án þess þó að endurgreiða viðskiptavininum eina krónu af innborguninni.
Iðnaðarmaður tók við hárri upphæð fyrir umfangsmikið verk og lét sig svo hverfa