Hvað er það versta sem þú hefur gert? - Vísir
⚠️ Eldri en 6 mánuðir

Hvað er það versta sem þú hefur gert? - Vísir

Hvað er það versta sem þú hefur gert? - Vísir

Þannig mætti í stuttu máli lýsa kjarnanum í The Drama sem er svört rómantísk gamanmynd þar sem áhorfendur eru spurðir áleitinna spurninga um fyrirgefningu, traust í nánum samböndum og það hvernig álit annarra litar skynjun okkar á heiminum.

Hinn norski Kristoffer Borgli leikstýrir myndinni, skrifar handritið og klippir hana. Borgli hefur áður gert svörtu absúrd-grínmyndirnar Syk Pike (2022) og Dream Scenario (2023) með Nicolas Cage. 

Stórstjörnurnar Zendaya og Robert Pattinson fara með aðalhlutverk myndarinnar en leikhópurinn er einnig skipaður þeim Alönu Haim, Mamoudou Athie og Hailey Gates.

Breski safnstjórinn Charlie (Pattinson) og bandaríski bóksalinn Emma (Zendaya) eru að fara að gifta sig þegar óvænt játning hennar á hræðilegum gjörningi úr fortíðinni setur allt úr skorðum. Við tekur undarleg, súrrealísk og sprenghlægileg atburðarás þar sem tilvonandi hjónin reyna að sigla gegnum ólgusjó tilfinninga og uppákoma.

The Drama var frumsýnd 9. apríl hérlendis og er sýnd í Sambíóunum og Smárabíói. Völdum þáttum kvikmyndarinnar hefur þurft að spilla í dóminum að neðan.

Vandræðalegheit, rómantík og hryllingur

The Drama hefst þegar safnstjórinn Charlie er að fara yfir brúðkaupsræðuna með besta vini sínum, Mike (Athie), og rifjar upp vandræðaleg fyrstu kynni sín af tilvonandi eiginkonu sinni, Emmu. 

Sambandið hefst með „meet-cute“ þar sem Charlie sér Emmu lesa bók á kaffihúsi og heillast af henni. Hann flettir upp bókinni á netinu, fer upp að Emmu og segist elska bókina en hún svarar engu og virðist hunsa hann. 

Uppákoman er martraðarkennd, Charlie er í losti, líður eins og allir séu að horfa á hann og hrökklast í burtu. Hann fer svo aftur upp að henni til að biðjast afsökunar og þá kemur í ljós að Emma er heyrnarlaus á öðru eyra og heyrði þess vegna ekki í honum. Hún býður honum að byrja samtalið upp á nýtt og þau fara í kjölfarið saman á stefnumót. 

Emma er að lesa bók með heyrnartól í öðru eyra í byrjun.

Þessar upphafssenur setja tóninn fullkomlega fyrir það sem tekur við. Samspil myndatöku, klippingar og tónlistar magnar upp óþægindin sem eiga bara eftir að aukast. Óöryggi, tortryggni og klaufska Charlie eru kjörnuð í þessari stuttu senu og sömuleiðis meðvitund hans um álit annarra. Persóna Emmu er dularfyllri vegna þess hve opin hún er í garð þessa aulalega manns. Síðar meir kemur í ljós hvers vegna hún er svona tilbúin að fyrirgefa.

Sýnt er örlítið frá undirbúningi turtildúfanna þar til kemur að lykilsenu myndarinnar. Charlie og Emma bjóða vinapari, Mike og Rachel (Haim), að smakka með sér brúðkaupsmatseðilinn og þegar þau eru orðin vel í glasi ákveða þau að fara í samkvæmisleik: „Hvað er það versta sem þú hefur gert?“ Öll hafa þau gert eitthvað virkilega ljótt á lífsleiðinni en þegar kemur að Emmu játar hún nokkuð sem slær alla út af laginu.

Hvað er það versta sem þú hefur gert?

Ég ætla ekki að spilla því fyrir lesendum hverju Emma ljóstrar upp um. Þó má segja að það sé í senn hræðilegt og sprenghlægilegt vegna þess hve fáránlegt það er. 

Viðbrögð borðgestanna eru misjöfn en þau eru þó öll í hálfgerðu áfalli. Charlie hlær taugaveiklunarhlátri og trúir unnusti sinni ekki en Rachel, sem hefur sjálf lýst hræðilegu bernskubreki, hefur engan húmor fyrir uppljóstruninni og slúttar partýinu um leið.

Játningin virðist marka spor í sandinn og setur brúðkaupið í uppnám. Charlie finnst hann ekki geta treyst unnustunni lengur og festist í sínum eigin súru hugsunum og ímyndunum. Á sama tíma finnst Emmu hún ekki geta unnið traust hans aftur sama hvað hún reynir. Við tekur lokaundirbúningurinn fyrir brúðkaupið þar sem hver vandræðalega senan á fætur annarri fær áhorfendur til að engjast um af hlátri og aulahrolli.

Persónurnar píndar til að skemmta áhorfendum

The Drama er ekki hefðbundin rómantísk gamanmynd enda hefur sú grein umbreyst með tilkomu samfélagsmiðla, stefnumótaforrita og streymisveita. Rétt eins og The Materialists eftir Chloe Zhao (sem missti sig reyndar í pælingum), tekst The Drama á við illviðráðanlegan nútímann og ýmsa anga hans.

Snilldin við myndina byggir á þremur grunnstoðum, frábærum leik aðalleikaranna tveggja, snjöllu handriti og leikstjóra sem keyrir markvisst upp súra stemminguna og óþægindin. Játningin sem keyrir söguna áfram virkar svo vel því hún er í grunninn mjög fyndin en á sama tíma getur maður ekki alveg afskrifað hryllinginn að baki henni.

Pattinson leikur Charlie sem hálfgerða rolu og aumingja.

Frá játningunni byggjast óþægindin jafnt og þétt upp með góðu dassi af svörtum húmor. Parið á í spennuþrungnum og erfiðum samtölum hvort við annað og óþægilegum samskiptum við fólkið í kringum sig. 

Borgli nýtur þess að láta bæði áhorfendur og persónurnar sínar þjást og gengur sífellt lengra. Atburðir sögunnar eru absúrd en það krefst samt ákveðinnar jafnvægislistar að viðhalda og byggja upp fáránleikann. Einstaka sinnum finnst manni gengið aðeins of langt sem veikir trú manns á framvinduna, þar hefði þurft sterkari persónusköpun og undirbyggingu. Borgli hefur sömuleiðis meiri áhuga á gríni en því að dýpka persónurnar eða kafa dýpra ofan í verknað Emmu. 

Áhorfendur fylgja aðallega sjónarhorni Charlie í myndinni þannig Robert Pattinson fær nokkuð meira að gera. Pattinson leikur Charlie sem taugastrekktan, kjarklítinn og dálítið brjóstumkennanlegan, þessir eiginleikar birtast bæði í líkamshreyfingum hans og hikandi tali. Zendaya fær minna pláss á skjánum en tekst þrátt fyrir það að koma allri þjáningunni, skömminni og vonbrigðunum til skila með virkilega sannfærandi frammistöðu.

Zendaya er frábær sem brúðurin Emma.

Skilin óskýrast milli raunverulegra sena og ímyndunar aðalpersónanna tveggja þar sem þau mála skrattann á vegginn. Borgli nær að blekkja áhorfendur, mála upp myrkustu hugsanir persónanna og sýna hið ósagða sjónrænt. Myndataka Arsenis Khachaturan og klipping Borgli eru nauðsynleg til að fanga þennan martraðarkennda veruleika sem tekur á köflum yfir. 

Í myndinni óma popplög í bland við kvikmyndatónlist Daniels Pemberton sem einkennist af þrúgandi, skerandi strengjum sem passa vel við. Útlit myndarinnar er fyrsta flokks: lýsingin er björt, búningar Katinu Danabassis sannfærandi og leikmynd Zosiu Mackenzie falleg. 

Þó Borgli njóti þess að láta persónurnar þjást til að skemmta áhorfendum er þetta ekki hreinræktað grín. Myndin tekst á við áleitnar spurningar um málefni sem hafa verið mikið í deiglunni: slaufun, fyrirgefningu og álit annarra. Eftir að hafa hlegið mig máttlausan í bíósalnum hefur myndin leitað aftur og aftur til mín.

Undir óþægindunum, ljótri hegðuninni og allri óreiðunni er nefnilega líka mikil rómantík. Traust og fyrirgefning í samböndum eru rauðir þræðir gegnum myndina. Sama hvað Borgli dregur Emmu og Charlie gegnum hræðilegar aðstæður þá tekst honum líka að selja áhorfendum ástina sem býr undir niðri. Ást er: að fyrirgefa og skeyta engu um allan hávaðann í kring.

Niðurstaða

The Drama er kolsvört rómantísk gamanmynd fyrir okkar skrítna, súra nútíma þar sem maður á að skammast sín fyrir öll sín mistök og helst hverfa af yfirborði jarðar. Robert Pattinson og Zendaya eru bæði stórgóð í sínum hlutverkum. Leikstjórn Borgli er snjöll, hann kann að teyma áhorfendur áfram og skemmta þeim en gengur stundum of langt í að pína þá. Handritið er heilt yfir gott, uppfullt af stórkostlegu og pínlegu gríni, en skortir stundum betri undirbyggingu og persónusköpun.

#gert #hefur #hvað #versta #vísir

📰 Aðrar fréttir

Kristnir sæta vaxandi ofsóknum í Kína – handtökur, kirkjulokanir og eftirlit kommúnistastjórnarinnar
📅 22.10.2026 👁️ 2
Kristnir sæta vaxandi ofsóknum í Kína – handtökur, kirkjulokanir og eftirlit kommúnistastjórnarinnar
Kristnir sæta vaxandi ofsóknum í Kína – handtökur, kirkjulokanir og eftirlit kommúnistastjórnarinnar Fréttin22. október 2026Erlent, Mannréttindi, Trúm...
Bresk lyfjayfirvöld afturkalla leyfi bóluefnis eftir alvarlegar aukaverkanir og tilkynningar um dauðsföll
📅 22.10.2026 👁️ 2
Bresk lyfjayfirvöld afturkalla leyfi bóluefnis eftir alvarlegar aukaverkanir og tilkynningar um dauðsföll
Bresk lyfjayfirvöld afturkalla leyfi bóluefnis eftir alvarlegar aukaverkanir og tilkynningar um dauðsföll Fréttin22. október 2026Bólusetningar, Erlent...
Ætlaði að skríða í þrjá daga en horfir fram á sex - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Ætlaði að skríða í þrjá daga en horfir fram á sex - Vísir
Vísir fjallaði á þriðjudaginn um þennan gjörning Axels sem ákvað að sýna í beinu streymi á TikTok frá sér skríða frá Njarðvík til Bessastaða þar sem h...
Hættir við að af­létta ráðningarbanni vegna manndráps - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Hættir við að af­létta ráðningarbanni vegna manndráps - Vísir
Þetta kemur fram í svari félags- og húsnæðismálaráðuneytisins við fyrirspurn Vísis. Vísir greindi frá áformunum á þriðjudag, en Einhverfusamtökin höfð...
Félag atvinnurekenda mótmælir leigubremsu á atvinnuhúsnæði - „Hyggjast skerða samningsfrelsi“
📅 22.10.2026 👁️ 3
Félag atvinnurekenda mótmælir leigubremsu á atvinnuhúsnæði - „Hyggjast skerða samningsfrelsi“
Félag atvinnurekenda (FA) gerir alvarlegar athugasemdir við að fyrirhuguð leigubremsa muni einnig ná til atvinnuhúsnæðis. Engin fullnægjandi rök hafi ...
Öflugur jarðskjálfti af stærð 7,0 skekur Tíbet – óttast umfangsmikið tjón
📅 22.10.2026 👁️ 1
Öflugur jarðskjálfti af stærð 7,0 skekur Tíbet – óttast umfangsmikið tjón
Öflugur jarðskjálfti af stærð 7,0 skekur Tíbet – óttast umfangsmikið tjón Fréttin22. október 2026ErlentLeave a Comment Öflugur jarðskjálfti af stærð 7...
Hafa ekki hugmynd um útbreiðslu ólöglegra peptíða
📅 22.10.2026 👁️ 2
Hafa ekki hugmynd um útbreiðslu ólöglegra peptíða
Engin gögn eru til um hversu útbreidd notkun ólöglegra peptíða er hér á landi. Efnagreining á stórri sendingu sem Tollgæslan haldlagði frá Kína leiddi...
Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingju­söm? - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingju­söm? - Vísir
Fundurinn fer fram í Hátíðarsal HÍ frá klukkan fjögur til fimm. Halla og Sunstein munu sérstaklega ræða hvernig sjónarmið ungs fólks geta mótað stafræ...
Ekki krónu varið í bókakaup á nokkrum leikskólum
📅 22.10.2026 👁️ 2
Ekki krónu varið í bókakaup á nokkrum leikskólum
Til eru leikskólar hér á landi þar sem ekki er gert ráð fyrir að krónu sé varið til bókakaupa vegna fjárskorts. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem G...
Vill bæta eftir­lit með lyfjagjöfum aldraðra - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Vill bæta eftir­lit með lyfjagjöfum aldraðra - Vísir
Málið var tekið upp á Alþingi í dag í kjölfar umfjöllunar fréttaskýringaþáttanna Kompáss um umfang svefnlyfjanotkunar og Kveiks um lyfjanotkun aldraðr...
Starmer gæti þurft að bera vitni vegna nauðgunargengja í rannsókn sem hann fyrirskipaði sjálfur
📅 22.10.2026 👁️ 2
Starmer gæti þurft að bera vitni vegna nauðgunargengja í rannsókn sem hann fyrirskipaði sjálfur
Keir Starmer, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, gæti þurft að bera vitni fyrir rannsóknarnefndinni sem hann sjálfur boðaði til að rannsaka pakis...
Finnskir hvolpar í beinni útsendingu slá í gegn
📅 22.10.2026 👁️ 2
Finnskir hvolpar í beinni útsendingu slá í gegn
Pentulive er komið í loftið í sjötta sinn hjá finnska ríkissjónvarpinu Yle og viðbúið er að áhorfsmet falli. Yfir sex milljónir hafa þegar horft á Pen...
Pútín, Xi og Trump gætu átt „sögulegan leiðtogafund“
📅 22.10.2026 👁️ 2
Pútín, Xi og Trump gætu átt „sögulegan leiðtogafund“
Pútín, Xi og Trump gætu átt „sögulegan leiðtogafund“ Fréttin22. október 2026ErlentLeave a Comment Júrí Úshakov. Vladimír Pútín Rússlandsforseti, Xi Ji...
Fjar­vera Þor­gerðar á pari við for­vera hennar - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Fjar­vera Þor­gerðar á pari við for­vera hennar - Vísir
Þetta kemur fram í skriflegu svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu. Samkvæmt útreikningi fréttastofu nemur meðaltal fjarveru utanrík...
Oddur Thorarensen Stefánsson skrifar: Hver ber ábyrgð á árunum sem tapast?
📅 22.10.2026 👁️ 3
Oddur Thorarensen Stefánsson skrifar: Hver ber ábyrgð á árunum sem tapast?
Skólaár byrjar og endar. Næsta skólaár tekur við. Fyrir þann sem bíður eftir nauðsynlegri aðstoð getur þetta þýtt að enn eitt tækifærið líður hjá. Þeg...
Flóttamaður með þrjú nöfn fór huldu höfði eftir nauðgunarákæru – Fingraför komu upp um hann á Keflavíkurflugvelli
📅 22.10.2026 👁️ 2
Flóttamaður með þrjú nöfn fór huldu höfði eftir nauðgunarákæru – Fingraför komu upp um hann á Keflavíkurflugvelli
Meintur nauðgari hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19. október, en hann hafði verið í felum til að sleppa annars vegar undan ákæru fyrir kyn...
Vilja af­sökunar­beiðni frá Kim vegna jarð­sprengju - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Vilja af­sökunar­beiðni frá Kim vegna jarð­sprengju - Vísir
Yfirvöld í Suður-Kóreu ætla að senda bréf til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem kallað verður eftir því að ráðamenn í Norður-Kóreu biðjist afsöku...
White Lotus-stjarna bætist í leik­hópinn - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
White Lotus-stjarna bætist í leik­hópinn - Vísir
Bransamiðillinn Hollywood Reporter greinir frá ráðningunni. Spennumyndin Hafið er svart (Dark Ocean á ensku) er framleidd af Glassriver en Baldvin Zop...
Væri eðlilegast að draga umsókn til baka en er ekki á stefnuskránni
📅 22.10.2026 👁️ 3
Væri eðlilegast að draga umsókn til baka en er ekki á stefnuskránni
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist ekki ætla að styðja þingsályktunartillögu formanna stjórnarandstöðuflokkanna um að draga formlega til ba...
Síminn stoppar ekki vegna heimildar­myndar - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Síminn stoppar ekki vegna heimildar­myndar - Vísir
Myndin er úr smiðju bandaríska sjónvarpsmannsins Nathan Fielder sem gert hefur garðinn frægan með sjónvarpsþáttunum Nathan For You og síðast The Rehea...
Six months of overnight roadworks to begin on the TF-1 this Sunday
📅 22.10.2026 👁️ 3
Six months of overnight roadworks to begin on the TF-1 this Sunday
Night-time traffic restrictions are due to begin on the TF-1 this Sunday, 25th October, as the Tenerife Cabildo starts a six-month programme to resurf...
Gríðar­leg sjúkdómsbyrði meðal niður­staðna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Gríðar­leg sjúkdómsbyrði meðal niður­staðna - Vísir
Skýrsla vinnuhóps sem Alma Möller heilbrigðisráðherra skipaði í ágúst 2025 var birt í dag. Markmið hópsins var að fjalla um fyrirkomulag heilbrigðisþj...
Eftir­sjá að Eggerti: „Lífið heldur á­fram“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Eftir­sjá að Eggerti: „Lífið heldur á­fram“ - Vísir
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, segir stofnunina hafa viljað halda Eggerti áfram. Vísir greindi frá ráðningu h...
Kempa leik­stýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Kempa leik­stýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra - Vísir
Bransamiðillinn Deadline greinir frá tíðindunum. Stóri bróðir/Vigilant er samevrópskt samstarfsverkefni íslenska framleiðslufyrirtækisins ACT4, streym...
Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifs­stöð - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifs­stöð - Vísir
Þetta segir í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp þann 19. október og staðfestur af Landsrétti í gær. Í honum segir að í greinargerð ...
Opnað fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA - Þú getur tekið þátt í valinu
📅 22.10.2026 👁️ 4
Opnað fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA - Þú getur tekið þátt í valinu
Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA 2027. Atvinnulífið og almenningur eru hvött til að tilnefna konur sem hafa skarað fram úr, ...
Afhjúpar átakanlegan veruleika að baki brúðkaupsþætti Friends
📅 22.10.2026 👁️ 4
Afhjúpar átakanlegan veruleika að baki brúðkaupsþætti Friends
Systir Matthew Perry sagði að hinn frægi þáttur Friends, þar sem persóna hans, Chandler, gengur að eiga Monicu, hafi verið fjölskyldu Perry bæði gleði...
Svarthöfði skrifar: Tók þá fjallið jóðsótt og fæddist lítil mús
📅 22.10.2026 👁️ 4
Svarthöfði skrifar: Tók þá fjallið jóðsótt og fæddist lítil mús
Ekki er laust við að margir hafi hreinlega verið búnir að gleyma Sigurði Inga Jóhannssyni, fyrrverandi formanni Framsóknar. Ugglaust héldu margir að h...
Landsnet og landeigendur ræða aftur saman um Holtavörðuheiðarlínu 1
📅 22.10.2026 👁️ 4
Landsnet og landeigendur ræða aftur saman um Holtavörðuheiðarlínu 1
Landsnet hefur tilkynnt landeigendum á fyrirhugaðri leið Holtavörðuheiðarlínu 1 að viðræður um bætur fyrir land hefjist að nýju á næstunni.Landsnet he...
Landsnet vill ræða aftur við landeigendur um Holtavörðuheiðarlínu 1

Dóttir Kol­brúnar skrifar undir harða við­vörun um leigu­bremsuna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Dóttir Kol­brúnar skrifar undir harða við­vörun um leigu­bremsuna - Vísir
Karen Áslaug Vignisdóttir, framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu hjá Seðlabankanum, undirritar umsögn bankans ásamt Flóka Halldórssyni, framkvæmd...
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir Alrík­is­sak­sókn­ari segir mann­inn hafa aflað upp­lýs­inga um fram­leiðslu bryn­var­inn...
Ilhan Omar says 'bizarre' pre-dawn raid on her home is forcing her to move out
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ilhan Omar says 'bizarre' pre-dawn raid on her home is forcing her to move out
The congresswoman said federal agents seized over a dozen items, including cell phones and notebooks, as part of a federal investigation.
Maður sem vísa átti úr landi settur í gæsluvarðhald svo hann flýi ekki land
📅 22.10.2026 👁️ 3
Maður sem vísa átti úr landi settur í gæsluvarðhald svo hann flýi ekki land
Landsréttur staðfesti í gær gæsluvarðhald til 16. nóvember yfir karlmanni sem er grunaður um nauðgun. Hann hefur játað sök að hluta. Illa hefur gengið...
Á­rásir hófust áður en gallarnir voru lag­færðir - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Á­rásir hófust áður en gallarnir voru lag­færðir - Vísir
Alvarlegir veikleikar fundust í PHP-forritunarmálinu sem er notað fyrir um sjötíu prósent vefsíðna heimsins. Vegna gallanna var fjölmörgum vefsíðum lo...
Ætlar að halda þing­sætinu þrátt fyrir rann­sókn á svikum - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ætlar að halda þing­sætinu þrátt fyrir rann­sókn á svikum - Vísir
Sænsk yfirvöld rannsaka enn tilraunir hóps manns til þess að kaupa atkvæði í Dölunum í Norður-Svíþjóð í þingkosningunum sem fóru fram í síðasta mánuði...
Margrét Löf vill komast í opið fangelsi - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Margrét Löf vill komast í opið fangelsi - Vísir
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður Margrétar gerir málinu skil í Facebook færslu. Þar gerir hann skóflustungu að nýju fangelsi Stóra-Hrauni að umfjölluna...
Kröfur ESB um endurnotkun umbúða valda fiskútflytjendum áhyggjum
📅 22.10.2026 👁️ 4
Kröfur ESB um endurnotkun umbúða valda fiskútflytjendum áhyggjum
Um níu milljón einnota frauðplastkassar, fullir af ferskum fiski og ís, eru á hverju ári fluttir út frá Íslandi, aðallega með flugi, til viðskiptavina...
Þetta er það sem Harry Bretaprins sér mest eftir - „Af því að ég er prins!“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Þetta er það sem Harry Bretaprins sér mest eftir - „Af því að ég er prins!“
Það sem Harry Bretaprins sér hvað mest eftir í lífinu er seinasta símtalið sem hann átti við móður sína, Díönu prinsessu, áður en hún lést í bílslysi ...
Engin staðfest innbrot vegna öryggisgallans
📅 22.10.2026 👁️ 4
Engin staðfest innbrot vegna öryggisgallans
Engin staðfest innbrot hafa orðið vegna öryggisgallans í PHP-forritunarmálinu að sögn Antons Más Egilssonar, forstjóra netöryggisfyrirtækisins Syndis....
French weekend protests to be limited to union demos only, says Macron
📅 22.10.2026 👁️ 4
French weekend protests to be limited to union demos only, says Macron
Some cities including Lyon and Nice have banned all protests, and the French president said only authorised demos would be allowed.
Wintering in the Canaries with Canada and US Tax ties
📅 22.10.2026 👁️ 4
Wintering in the Canaries with Canada and US Tax ties
Every winter, the Canary Islands draw visitors from much further away than Manchester or Madrid. Canadians escaping frozen mornings and Americans chas...
Stjórnvöld buðu leigusala næstum þrefalda leigu fyrir að henda leigjendum út og taka inn hælisleitendur í staðinn
📅 22.10.2026 👁️ 4
Stjórnvöld buðu leigusala næstum þrefalda leigu fyrir að henda leigjendum út og taka inn hælisleitendur í staðinn
Leigusali í Lundúnum segir að fyrirtæki sem útvegar breskum stjórnvöldum húsnæði fyrir hælisleitendur hafi boðið honum 4.500 pund í mánaðarleigu fyrir...
Andrew Tate fárveikur í fangelsinu og lögmaður biður fólk um að biðja fyrir honum
📅 22.10.2026 👁️ 4
Andrew Tate fárveikur í fangelsinu og lögmaður biður fólk um að biðja fyrir honum
Áhrifavaldurinn Andrew Tate, sem er grunaður um kynferðisbrot, er að sögn lögmanns hans fárveikur í fangelsi. Biður hann fólk um að biðja fyrir Tate.B...
Elva Hrönn segir fréttirnar frá París gefa ranga mynd – „Lögreglan í Frakklandi hefur beitt mikilli hörku gagnvart börnum“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Elva Hrönn segir fréttirnar frá París gefa ranga mynd – „Lögreglan í Frakklandi hefur beitt mikilli hörku gagnvart börnum“
Elva Hrönn Hjartardóttir, fjáröflunarstýra hjá Amnesty International, er nýkomin frá París. Hún segir fréttir af borginni í ljósum logum gefa ranga my...
Telur rök Há­skólans á Akur­eyri ekki hald­bær - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Telur rök Há­skólans á Akur­eyri ekki hald­bær - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í þremur nýjum skýrslum Ríkisendurskoðunar um stofnanakerfi ríkisins sem kynntar voru fyrir stjórnskipunar- og efti...
Firefighters rescue man trapped in overturned car in Lanzarote
📅 22.10.2026 👁️ 4
Firefighters rescue man trapped in overturned car in Lanzarote
A man was rescued from an overturned car in Lanzarote yesterday afternoon (Wednesday) after firefighters used hydraulic tools to open the driver’s doo...
Ríkisstofnunum fækkað um tæpan fimmtung – starfsfólki fjölgar
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ríkisstofnunum fækkað um tæpan fimmtung – starfsfólki fjölgar
Ríkisstofnunum hefur fækkað um 18,7% frá því árið 2020 og telur Ríkisendurskoðun stjórnvöld hafa brugðist við að fullu við tveimur af fjórum tillögum ...
Þorsteinn Már beið lægri hlut gegn Seðlabankanum
📅 22.10.2026 👁️ 4
Þorsteinn Már beið lægri hlut gegn Seðlabankanum
Þorsteini Má Baldvinssyni, fyrrverandi forstjóra Samherja, og lögmanni hans tókst ekki að sýna fram á að hann hefði orðið fyrir miska þó að persónuupp...
How did AI discover the internet's massive cyber-security risk?
📅 22.10.2026 👁️ 4
How did AI discover the internet's massive cyber-security risk?
The BBC's technology correspondent Joe Tidy explains how it happened, and what it means for you.