Frá árinu 1972 hefur hlaupsekúndu verið bætt við klukkuna 27 sinnum. Nú hafa alþjóðleg samtök um mælieiningar ákveðið að afnema hana og taka upp hlaupklukkustund í staðinn.
Í þúsundir ára hefur mannkynið notað sólina til þess að reikna út tíma. Einn sólarhringur er 24 klukkustundir og það er tíminn sem það tekur jörðina að snúast í kringum möndul sinn miðað við sólu.
Nema að sólarhringurinn er aldrei nákvæmlega 24 tímar, stundum er hann örlítið lengri eða styttri því jörðin ferðast hraðar um braut sína þegar hún er nær sólinni en hægar þegar hún er fjær henni.
Sérstök samtök reikna út skekkjurnar
Þá þarf að reikna út og leiðrétta skekkjur og sérstök alþjóðasamtök, Alþjóðaskrifstofa mælieininga (e. International Bureau of Weights and Measures), sjá um það. Þau hafa nú ákveðið að hætta að nota hlaupsekúndu og taka í staðinn upp hlaupklukkustund.
Síðast var sekúndu bætt við 31. desember 2016 en það hefur verið gert alls 27 sinnum frá árinu 1972. En af hverju er þetta eitthvað vesen? Í tölvuvæddum heimi veldur þetta talsverðu raski. Stýrikerfi eru nefnilega ekki tilbúin að trúa því að mínúta sé lengri eða styttri en sextíu sekúndur.
Hingað til hafa hlaupsekúndur tryggt það að samræmdur alþjóðlegur tími UTC haldist í takt við UT1. UT1 er tíminn sem ræðst af snúningi jarðar á meðan UTC byggir á tímamælingu með frumeindaklukku.
UTC er sá tími sem er notaður í viðmið almennt í heiminum öllum. Tölvur, símar, GPs o.s.frv. byggja á UTC-tíma sem Alþjóðaskrifstofa mælieininga miðlar. Í stafrænum heimi getur hringl með sekúndur valdið ruglingi.
Þess vegna hafa samtökin ákveðið að breyta þessu. Hlaupklukkustund þarf að bæta við, eða draga frá, mun sjaldnar en hlaupsekúndu. Það gætu liðið þúsundir ára þar til kemur að því.
Höfðu áhyggjur af neikvæðri hlaupsekúndu
Einnig tóku vísindamenn eftir því að snúningur jarðar tók að hraða sér á öðrum áratug 21. aldar. Þá spáðu þeir því að brátt yrði þörf á því að draga frá eina hlaupasekúndu. Það gæti hugsanlega gerst strax árið 2029.
Verkfræðingar telja að neikvæð hlaupsekúnda gæti valdið glundroða og var þetta því tekið með í reikninginn þegar ákveðið var að afnema hlaupsekúnduna.
Sem sagt með breytingunni má munurinn á milli UTC og UT1 vera allt að klukkustund frekar en sekúnda. Samtökin greiddu atkvæði um þetta á fundi í gær og breytingin tekur gildi 20. maí 2027, á alþjóðlegum degi mælieiningafræði.