Persónuvernd vekur athygli á yfirlýsingunni í tilkynningu á vef sínum. Þar segir að gleraugun geti verið búin myndavélum og hljóðnemum sem gera notendum kleift að taka upp myndir og hljóð án þess að þeir sem verða fyrir upptöku verði þess varir.
„Ráðið bendir á að sérstök áhætta geti skapast við notkun þeirra á viðkvæmum stöðum, svo sem á sjúkrahúsum, í skólum og á vinnustöðum, auk þess sem huga þurfi sérstaklega að vernd barna,“ segir í tilkynningunni.
Hjálpartæki sjónskertra
Lögð er áhersla á að einstaklingum þurfi að vera ljóst hvenær upptaka fer fram, til dæmis með skýrum ljós- eða hljóðmerkjum. Þá geti notendur snjallgleraugna sjálfir talist ábyrgðaraðilar að vinnslu persónuupplýsinga, meðal annars þegar myndefni er birt á opinberum samfélagsmiðlareikningum.
Gleraugun njóta mikilla vinsælda erlendis og geta umbreytt lífi fólks sem glímir við sjónskerðingu. Í grein Breska ríkisútvarpsins er rætt við lögblindan mann sem notar gleraugun til að „sjá“ þegar hann gengur á milli staða. Myndavélin skynjar hvaða hlutir eru í kringum hann og er honum tilkynnt hvað sé fram undan í gegnum hátalara gleraugnanna.
Þau eru þó einnig vinsæl hjá þeim sem vilja taka myndbönd af fólki án þess að það viti af því. Dæmi eru um að fólk eigi í samskiptum við annað fólk á götum úti og sjái svo myndbönd af samtalinu á netinu síðar, án þess að hafa nokkra hugmynd um að sá sem rætt var við var að taka allt upp með gleraugunum. Þannig hafa gleraugun fengið viðurnefnið „perragleraugu“.
@thetimes Would you notice if smart glasses were filming you? News Reporter Lara Wildenberg tested a pair of Ray-Ban Meta glasses, which look like tortoise-shell sunglasses, and no one was able to identify the technology without being prompted. The subsequent reactions were a mixture of surprise, curiosity and discomfort. Multiple members of the public described the shades as “freaky”, “sneaky” and ripe for misuse. Most said it was not obvious when they were filming. A Meta spokesperson said: “The people who use them and those around them need to trust them. That’s why we built privacy into our AI glasses from the ground up. For example, every pair has a capture LED that blinks when you take a photo or video that you can save or share, it can’t be turned off, and if someone covers or damages the LED, the camera is disabled. We will keep strengthening our protections as our glasses become even more capable.” A government spokesperson said: “Recording someone in public to cause alarm or distress may constitute offences such as harassment or stalking. We are already further strengthening protections for victims of intimate image abuse through new offences in the Crime and Policing Act.” 🔗 Tap the link to read more #meta #rayban #smartglasses #technology #glasses ♬ original sound - The Times and Sunday Times