Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, segir að þingnefnd um málefni barna með fjölþættar stuðningsþarfir sem Jón Gnarr, þingmaður utan flokka, fór fyrir hafi ekki komið saman undanfarna mánuði.
„Það hefur verið mjög lítil vinnsla í henni undanfarna mánuði,“ sagði Grímur í Vikulokunum.
Jón ákvað að segja sig úr þingflokki Viðreisnar í vikunni, meðal annars vegna óánægju með forgangsröðun ríkisstjórnar hvað varðar málefni barna með fjölþættar þarfir.
Grímur segir að starfsmaður ráðuneytisins hafi átt að vinna með nefndinni en hann kannast ekki við boðun á slíkan fund.
Þingnefndin hefur aldrei fundað?
„Jú, bara ekki undanfarið.“
Grímur segist ekki kannast við að deilur hafi verið milli ráðherra líkt og Jón nefndi né hafi hann orðið var við klíkuskap.