ListaVestrið hefur fest sig í sessi sem metnaðarfullur vettvangur fyrir samtímalist og menningarviðburði á Vestfjörðum á síðustu árum. ListaVestrið sameinar starfsemi þriggja sýningarrýma á Flateyri, Gallerísins undir brúnni á Sólbakka, Gömlu Slökkvistöðvarinnar og Tanksins, sem öll hafa undanfarin ár staðið fyrir fjölbreyttum listviðburðum, sýningum og opnunum.
Opnun hátíðarinnar fer fram 11. júlí klukkan 15 í Tankinum á Sólbakka og á aðaldagskrá ListaVestursins í sumar verða fjórar myndlistarsýningar.
Í Gömlu Slökkvistöðinni munu Jón Óskar og Hulda Hákon sýna verk sín, í Galleríinu undir brúnni mun Krassasig, Kristinn Arnar Sigurðsson, gera staðbundna innsetningu, á neðri hæð Tanksins sýna Ísfirðingarnir og systkinin Gunnar og Rannveig Jónsbörn verk sín og föður þeirra, Jóns heitins Sigurpálssonar og á efri hæð Tanksins sýnir Einar Örn Benediktsson, tón- og myndlistarmaður, auk þess sem Jóel Pálsson saxafónleikari flytur hljóðverk við opnun hátíðarinnar.
Sem fyrr verður fjöldi annarra innsetninga og sýninga settar upp víða á Flateyri, sem sýningar utan dagskráar.
Þá verður gestum hátíðarinnar boðið að spreyta sig á að mála fjallið Þorfinn sem stendur handan fjarðar og boðið upp á listasmiðju fyrir börn dagana 14.–17. júlí í Samkomuhúsinu á Flateyri, undir leiðsögn Einars Viðars Thoroddsen og Fannars Skarphéðinssonar.