Mávur hrifsaði pylsu úr hendi konu við sjoppuna á tíundu holu á Grafarholtsvelli á dögunum og elti síðan golfhópinn upp brautina.
Sigrún Ólafsdóttir var í hópnum og hefur tilheyrt golfklúbbnum í 20 ár. Hún segist aldrei hafa lent í öðru eins á golfvellinum.
„Þetta eru stórir og þungir fuglar. Þegar þeir ráðast á mann með goggi og klóm verður maður hræddur. Hann var mjög aggresívur og hrifsaði pylsuna beint úr hendi vinkonu minnar,“ segir Sigrún.
Elti hollið upp að flötinni
En mávurinn hætti ekki heldur elti hollið alla leið upp að flöt tíundu holu.
„Ég var með súkkulaðistykki utan á vasa golftöskunnar minnar og hann bara réðst á töskuna,“ segir Sigrún.
„Sem betur fer var ég að pútta á flötinni og því svolítið langt frá, en hann goggaði og goggaði. Sem betur fer komst hann ekki í súkkulaðið vegna umbúðanna.“
Alltaf sami mávurinn
Mjöll Daníelsdóttir, veitingasali í klúbbhúsinu, segir að mávurinn haldi sig við sjoppuna og að unnið sé að því að bregðast við vandanum með vörnum og eftirliti.
Mjöll segir að starfsfólkið hafi heyrt af atvikinu og að unnið sé að því að leysa málið.
„Þetta er alltaf sami mávurinn þarna og við getum auðvitað ekki stjórnað því hvað fuglinn gerir. Við erum hins vegar að vinna í málinu með Vörnum og eftirliti [ehf.] til að fjarlægja hann,“ segir Mjöll.