Hótuðu að loka Vogi - Vísir

Hótuðu að loka Vogi - Vísir

Hótuðu að loka Vogi - Vísir

Sú ábyrgð hvíldi áður á herðum Valgerðar Rúnarsdóttur, framkvæmdastjóra lækninga, sem sagði starfi sínu lausu í byrjun mánaðar eftir deilur við formann og framkvæmdastjórn samtakanna. Fljótlega höfðu aðrir læknar SÁÁ lýst yfir vantrausti á þau síðarnefndu og jafnvel farið í veikindaleyfi. 

Úr varð að leitað var út fyrir SÁÁ og Jón Áki Jensson geðlæknir snarlega ráðinn sem framkvæmdastjóri lækninga áður en klukkan sló 16 á mánudag. 

Jón hefur ekki starfað áður fyrir SÁA og vinnur enn að því að losna úr sínu fyrra starfi. Starfsfólk hefur lýst yfir áhyggjum af því að hann hafi takmarkaða þekkingu á sérhæfðri starfsemi SÁÁ en þrír lykilstjórnendur á meðferðarsviði samtakanna hafa yfirgefið sviðið á stuttu tímabili.

Vísi frá fólki í alvarlegri neyslu vegna mönnunarvanda

SÁÁ glímir nú við mikinn mönnunarvanda og starfar sjúkrahúsið Vogur á um helmingsafköstum, að sögn Elínar Þórdísar Meldal, aðstoðarfagstjóra á Vogi. Hópur starfsfólks sé kominn í veikindaleyfi og hún hafi raunverulegar áhyggjur af því að spítalinn gæti orðið órekstrarhæfur.

Á fimmtudag voru 25 sjúklingar inniliggjandi á sjúkrahúsinu sem getur alla jafna tekið við allt að 45. Elín telur líklegt að plássunum eigi enn eftir að fækka og bendir á að það hafi verið biðlistar eftir fíknimeðferð þegar Vogur var á fullum afköstum.

„Starfsfólk er auðvitað undir miklu álagi og horfir á hálftóman spítala og svo eru ritararnir sveittir allan daginn að fresta fólki sem er í alvarlegri neyslu, alvarlegri stöðu, hafa jafnvel ekkert að fara, eiga innlagnardag og það er ekki hægt að taka þau inn vegna manneklu,“ segir Elín.

Hún kveðst ekki hafa yfirsýn yfir það hversu marga starfsmenn vanti til að fullmanna spítalann eða hversu margir séu í leyfi.

Ekki náðist í Önnu Hildi Guðmundsdóttur, formann SÁÁ, við vinnslu fréttarinnar. Í tilkynningu frá aðalstjórn SÁÁ á þriðjudag kom fram að það væri í forgangi að funda með starfsfólki og tryggja „vinnufrið, öryggi og traust“ innan samtakanna. Aðalstjórnin lýsti svo yfir stuðningi við framkvæmdastjórn SÁÁ. 

Hvað gerðist eiginlega hjá SÁÁ?

En hvernig hófst þessi atburðarás? Stjórnendur meðferðarsviðs og formaður SÁÁ voru lengst af ekki gjafmild á nákvæmar skýringar en síðustu daga hefur teiknast upp aðeins skýrari mynd af ágreiningnum milli fylkinganna sem leiddi til þess að forstjóri SÁÁ, fagstjóri á Vík og framkvæmdastjóri lækninga hættu öll störfum.

Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ, gaf ekki kost á viðtali.Vísir/Hulda Margrét

Í kjölfarið af því lýstu 63 starfsmenn yfir vantrausti á formann og framkvæmdastjórn SÁÁ og hefur starfsfólk kallað eftir því að þau sjái að sér, dragi í land og fái þremenningana aftur til starfa. Þess í stað er nú búið að ráða nýtt fólk í tvær af áðurnefndum stjórnunarstöðum.

Á sama tíma virðist heilbrigðisþjónusta samtakanna vera í uppnámi vegna veikindaleyfa og mönnunarvanda.

Fram hefur komið að formaður og framkvæmdastjórn vilji til að mynda útvíkka þjónustu SÁÁ og bjóða upp á fleiri úrræði til viðbótar við þau sem boðið er upp á í dag. Til dæmis hefur verið rætt um að koma á fót meðferð fyrir fólk með spilafíkn, meðferð fyrir aðstandendur og auka almennt stuðning og fræðslu.

Stjórnendur samtakanna SÁÁ annars vegar og stjórnendur meðferðarsviðs SÁÁ hins vegar hafa deilt um það hvort þau fyrrnefndu hafi haft óeðlileg afskipti af faglegu heilbrigðisstarfi samtakanna.

Starfsfólk þurfi til að sinna nýjum verkefnum

Elín telur að sá ágreiningur liggi að einhverju leyti í því að formaður SÁÁ líti svo á að þessar fyrirhuguðu viðbætur liggi fyrir utan þá heilbrigðisþjónustu sem er í dag fjármögnuð af ríkinu. Þar með sé ekki um afskipti af faglegu starfi að ræða. Elín er ósammála þessu.

Til skoðunar er að hefja meðferð við spilafíkn.Vísir/Baldur

„Mér finnst svo merkilegt að hún sé að tala um að hún sé ekki að skipta sér af faglegu starfi. Það sem hún er að tala um í Kastljósi eru úrræði sem munu þurfa að heyra undir heilbrigðisþjónustuna.“

„Þetta er ekkert annað en heilbrigðisþjónusta, einmitt það sem er verið að tala um að hún eigi ekki að vera að vasast með puttana í.“ Heilbrigðisstarfsfólk muni þurfa að sinna þessum nýju úrræðum.

Þó að framkvæmdastjórnin ætli sér að nýta sjálfsaflafé samtakanna til að fjármagna nýja þjónustu breyti það því ekki að það þurfi fagfólk til að sinna verkefnunum og það sé ekki auðvelt að fá.

Um óeðlileg afskipti sé að ræða

Mikið hefur verið rætt um nýlegan samning Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og SÁÁ sem setur fram breyttar kröfur til þjónustunnar og leggur aukið fjármagn til hennar.

„Hvar ætlar hún að ná í þetta fagfólk til þess að vera með þessi meðferðarúrræði? Ef hún er að fara að sækja það í meðferðina hjá okkur þá er það fólk í greiddri þjónustu frá SÍ, það gengur ekki. Hún er að tala um heilbrigðisþjónustu sem hún er að pressa forstjórann í að fá að setja upp á vegum samtakanna.“ Þarna liggi óeðlileg afskipti að mati Elínar.

„Allt sem hún er að leggja til er eitthvað sem fagfólk kemur til með að þurfa að sinna,“ bætir hún við og vísar til Önnu, formanns SÁÁ. Einnig þurfi fólk með tilskilin leyfi og fagþekkingu til að þróa ný meðferðarúrræði.

Anna sagði í Kastljósi að fyrrverandi forstjóri hefði ekki viljað framfylgja stefnu hennar og framkvæmdastjórnarinnar. Valgerður Rúnarsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri lækninga, sakar þau um að hafa viljað losna við forstjórann í nokkurn tíma.

Sjúkrahúsið Vogur
er ein af nokkrum meðferðarstofnunum sem SÁÁ rekur fyrir opinbert fé. Vísir/Vilhelm

Talar um skort á samráði

Valgerður hefur staðhæft að formaður SÁÁ hafi ekki haft samráð við forstjóra eða aðra faglega stjórnendur um fyrirhugaðar breytingar á umgjörðinni í kringum fjölskyldur þar sem börn eða ungmenni glími við fíknivanda. Hún sjái ekki annað en að slík þjónusta myndi vera á hendi fagfólks SÁÁ þar sem um heilbrigðisþjónustu sé að ræða.

Formaðurinn hafi haldið því fram að um annars konar þjónustu sé að ræða og því þurfi ekki samráð við stjórnendur fagfólks SÁÁ. Auk þess myndi þessi þjónusta hugsanlega skarast við hluta af samningi Sjúkratrygginga við SÁÁ. Ef svo sé þurfi að ræða áformin við stjórnendur heilbrigðisþjónustunnar.

„Það er fullt af áþreifanlegum hlutum á gólfinu en auðvitað á stjórn og meðferðin að slá í takt. Það á að vera þannig en þessi stjórn, henni er sama þó að fólkið sé með áralanga reynslu vari við því að taka út lykilstjórnendur. Þeim er alveg sama um það að hún sé eitthvað fyrir þeim, þau vilji gera eitthvað annað en það sem okkur þykir mikilvægt,“ sagði Valgerður við Vísi á föstudag.

Fyrrverandi framkvæmdastjóri SÁÁ líkir átökum innan samtakanna við „klassíska valdabaráttu“ og sakar fráfarandi forstjóra og framkvæmdastjóra lækninga um að hafa ætlað að sölsa undir sig völd.

Átti sig ekki á alvarleika stöðunnar

Alls skrifuðu 63 starfsmenn undir vantraustsyfirlýsingu á formann og framkvæmdastjórn SÁÁ og hefur Elín og fleiri farið fram á að þau stigi til hliðar. Hún fullyrðir að það sé eindreginn vilji starfsfólks að stjórnendur samtakanna SÁÁ hefðu átt að koma til móts við fráfarandi forstjóra, fagstjóra á Vík og framkvæmdastjóra lækninga og fá þau aftur til starfa.

„Allir urðu fyrir mjög miklum vonbrigðum með það að vantraustsyfirlýsingin var ekki tekin alvarlega og hún eiginlega sett til hliðar og svo á bara að fara að vinna í trausti. Fólk vill bara að þessi formaður og framkvæmdastjórn segi af sér.“

Elín telur að þau átti sig ekki á því hversu alvarleg staðan er orðin.

„Það er eitt að funda reglulega og lesa um stöðuna í fréttunum og svo er bara allt annað að vera fagmaður á gólfinu og takast á við skaðann á hverjum einasta degi sem heldur bara áfram að versna. Það er ekkert að lagast. Það heldur bara áfram að þyngjast róðurinn.“

Fleiri hugsi sér til hreyfings

Mikið af starfsfólki á meðferðarsviði SÁÁ er að íhuga sína stöðu og jafnvel farið að hugsa sér til hreyfings, að sögn Elínar. Ekki sé auðvelt að manna stöður og þar að auki sé mikil óvissa um það hver beri ábyrgð á ýmsum mikilvægum verkefnum eftir að fyrri stjórnendur hurfu af braut.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem deilur rísa upp milli stjórnenda heilbrigðisþjonustunnar og stjórnenda SÁÁ.Vísir/Vilhelm

„Hvernig er hægt að standa við samninga sem þarf að standa við þegar það vantar fagfólk í allar helstu lykilstöður hreinlega? Svo erum við líka með áfengis- og vímuefnaráðgjafanema. Hver ber ábyrgð á náminu þeirra í dag?“

„Þetta er auðvitað bara algjörlega galið og óásættanlegt með öllu. Það vill enginn hafa þetta svona. Þetta þarf ekki að vera svona. Þetta hefði aldrei þurft að fara svona. Ef við værum ekki með þennan fyrirmyndarforstjóra sem var hrakinn úr starfi þá værum við ekki í þessari stöðu. Með toppfólk sem hefði viljað halda áfram og halda áfram að gera hlutina vel og við erum búin að missa þau úr starfseminni sem var bara á lygnum sjó.“

Blöskraði framkvæmd aukaaðalfundar

Aðalstjórn SÁÁ boðaði til aukafundar á mánudag vegna stöðunnar sem upp er komin. Á dagskrá var áðurnefnd vantraustsyfirlýsing 63 starfsmanna.

Í henni er lýst yfir vantrausti á formann og framkvæmdastjórn SÁÁ og farið fram á að aðalstjórn „taki þegar í stað til formlegrar umfjöllunar ábyrgð formanns og framkvæmdastjórnar á þeirri atburðarás sem leitt hefur til núverandi stöðu og grípi til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru til að endurreisa traust innan samtakanna.“

Elín og fleiri starfsmenn gagnrýna harðlega að þetta hafi ekki verið gert. Þess í stað hafi starfsmenn og fráfarandi stjórnendur fengið takmarkaðan tíma til að tjá sig á fundinum og stjórnarmenn krafið þá svara.

„Það var engin yfirferð á gögnum og þetta er ekki sanngjörn málsmeðferð. Svo er lýst yfir trausti við formann og framkvæmdastjórn. Vantraustsyfirlýsingunni var bara ýtt til hliðar. Okkar upplifun var ekki að það ætti að taka neitt til vandlegrar yfirferðar eins og kom þarna fram í einhverri fréttatilkynningu,“ segir Elín.

Starfsfólk hafi verið beðið um að yfirgefa fundinn áður en frekari umræður fóru fram meðal stjórnar en stjórnarmaður síðar sagt að fundarstjóri hafi þar hafnað að taka vantraustsyfirlýsinguna til formlegrar afgreiðslu.

Séu í áfalli

Elín segir að boðað hafi verið að yfirlýsingin yrði tekin til vandlegrar yfirferðar en svo hafi ekki verið greidd atkvæði um hana.

„Fólk er alveg gífurlega ósátt ofan í allt sem á undan er gengið við að fá fregnir af því hvernig þetta hefur verið afgreitt og bara sett til hliðar.“

Alls eru 48 í aðalstjórn SÁÁ.Vísir/Sigurjón

Starfsmenn og stjórnarmaður hafa sömuleiðis gert athugasemd við það að framkvæmdastjórn hafi ráðið sér utanaðkomandi aðstoð en starfsmönnum á sama tíma ekki verið boðinn aðgangur að lögfræðiþjónustu til að fara yfir það sem þeim þótti að í samskiptum við framkvæmdastjórn eða meint afskipti þeirra af faglegu starfi.

Elín segir starfsfólk í áfalli yfir málsmeðferðinni á fundinum. „Það er eins og það hafi verið skipulega stigið á upp undir 70 manns.“ Ekki hafi verið hlustað á þau og stjórnin ákveðið að halda ótrauð áfram. „Svo erum við að sökkva.“

Enginn til að þjálfa óreyndan framkvæmdastjóra

Starfsfólk hefur áhyggjur af því að nýr framkvæmdastjóri lækninga þekki ekki inn á sérhæfða starfsemi SÁÁ og hvernig eigi að stíga í hin og þessi mál, að sögn Elínar.

„Það er enginn að fara að þjálfa þennan mann inn.“ Valgerður sé farin og enginn annar læknir með starfsleyfi sé að störfum til að leiða hann inn í neitt.

Elín hefði viljað að formaður og framkvæmdastjórn hefðu þess í stað reynt að koma til móts við fyrrverandi forstjóra og framkvæmdastjóra lækninga. Valgerður hafði gefið til kynna í viðtölum að hún gæti hugsað sér að snúa aftur til starfa ef breytingar yrðu gerðar.

Valgerður Rúnarsdóttir hafði starfað hjá SÁÁ í 26 ár. Vísir

„Það átti bara að vera löngu búið að taka skref til baka og hringja í Ragnheiði [fyrrverandi forstjóra SÁÁ] sem vildi svo sannarlega sinna sínu starfi og fá bara vinnufrið til þess, vinna bara undir eðlilegum kröfum og vera í eðlilegum samskiptum við þetta fólk,“ segir Elín. 

„Þegar þú ert með svona sleggju sem treystir sér ekki til þess að halda áfram í þessu ástandi þá höfum við sem þekkjum vel til og erum búin að vinna lengi auðvitað áhyggjur af framhaldinu líka. Það gengur enginn út frá ævistarfinu sínu bara af því bara,“ bætir hún við um Valgerði og heldur áfram:

„Það er þyngra en tárum taki að horfa á færasta sérfræðing á sínu sviði ganga út í hádeginu eftir 26 ár í starfi, ganga út frá ævistarfinu sínu gjörsamlega. Þetta tekur á og er gjörsamlega galin staða.“

Einnig horfi margir á eftir Rannveigu Huldu Friðriksdóttur, fyrrverandi forstjóra SÁÁ, en Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir var ráðin í stað hennar í vikunni.

„Ragnheiður var frábær og til fyrirmyndar í öllu sem hún gerði gjörsamlega: vinnan og starfsánægjan aldrei verið meiri og hún lyfti öllu faglegu starfi upp á hærra plan og var mjög vel liðin. Allir voru í skýjunum með hennar störf. Þetta var mikið reiðarslag fyrir okkur öll að missa hana út svona. Það er mikil óánægja með þetta og svo missum við bara fleira fólk í leiðinni,“ segir Elín.

Ástæða sé til að velta því upp hvort spítalinn verði áfram rekstrarhæfur með þessu áframhaldi.

„Maður hefur áhyggjur af framtíð SÁÁ eins og staðan er núna, allra vegna.“

#hótuðu #loka #vogi #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262937155d/hotudu-ad-loka-vogi

📰 Aðrar fréttir

Trump skiptir um starfsmannastjóra Hvíta hússins
📅 06.11.2026 👁️ 1
Trump skiptir um starfsmannastjóra Hvíta hússins
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað Stephen Miller starfsmannastjóra Hvíta hússins frá og með mánudeginum. Forsetinn tilkynnti um þetta í færs...
Sam­þykktu van­traust á hendur stjórn­endum Cornell - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 1
Sam­þykktu van­traust á hendur stjórn­endum Cornell - Vísir
Bandarískir miðlar greina frá en konan, sem fer undir nafninu Jane Doe í fjölmiðlum, höfðaði einkamál gegn Cornell og bræðrafélaginu Chi Phi. Málið va...
With Stephen Miller pick, Trump readies for a battle
📅 06.11.2026 👁️ 1
With Stephen Miller pick, Trump readies for a battle
The US president's promotion of Miller, a loyal partisan firebrand to be his new chief of staff sets up likely clashes with Congress.
Nýjar ratsjárstöðvar eiga að greina skip sem gefa ekki upp staðsetningu
📅 06.11.2026 👁️ 2
Nýjar ratsjárstöðvar eiga að greina skip sem gefa ekki upp staðsetningu
Landhelgisgæslan hefur sett upp ratsjárstöðvar á fjórum stöðum sem eiga að efla eftirlit á hafsvæðum nærri landi og fylgjast með skipaumferð sem gefa ...
Kastaði upp þegar hún heyrði dóminn yfir manninum sem stakk hana 22 sinnum
📅 06.11.2026 👁️ 1
Kastaði upp þegar hún heyrði dóminn yfir manninum sem stakk hana 22 sinnum
Ung móðir í New York kastaði upp af geðshræringu þegar hún heyrði hversu vægan fangelsisdóm maðurinn sem stakk hana 22 sinnum með hnífi hafði hlotið. ...
„Svína­bændur eiga að fara að lögum“ - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
„Svína­bændur eiga að fara að lögum“ - Vísir
Einar Logi Pétursson hefur birt umdeild myndskeið úr tveimur svínabúum Stjörnugríss þar sem meðal annars mátti sjá dauð svín og með áverka.  Sjá einni...
Skilnaðardeilur fóru fyrir dóm því maðurinn taldi það bersýnilega ósanngjarnt að skipta eignum til helminga
📅 06.11.2026 👁️ 1
Skilnaðardeilur fóru fyrir dóm því maðurinn taldi það bersýnilega ósanngjarnt að skipta eignum til helminga
Það er aldrei skemmtilegt að skilja, sérstaklega þegar deilt er um skiptingu eigna. Að meginreglu er eignum skipt í helminga eftir svokallaðri helming...
Waterford: Child, 6, dies weeks after arson attack on family home
📅 06.11.2026 👁️ 2
Waterford: Child, 6, dies weeks after arson attack on family home
The attack happened last month at the family home on the outskirts of Waterford in the Republic of Ireland.
Snjórinn féll á Dönsku kránni
📅 06.11.2026 👁️ 2
Snjórinn féll á Dönsku kránni
Sala á jólabjór Tuborg hófst í kvöld, sem er orðinn hluti af jólaundirbúningi margra. J-dagurinn, sem er stytting á julebryg dag, eða „jólabjórsdagur“...
Meghan's father Thomas Markle appears in court over child sex abuse material
📅 06.11.2026 👁️ 2
Meghan's father Thomas Markle appears in court over child sex abuse material
The 82-year-old was arrested in Florida after the FBI searched two Los Angeles-area storage units he rented.
Fölsuð gögn hafi verið lögð fram - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 1
Fölsuð gögn hafi verið lögð fram - Vísir
Garpur Elísabetarson og dóttir hans báru bæði vitni fyrr í vikunni þar sem þau greindu frá meintu umsáturseinelti af hálfu Írisar Helgu. Sögðu þau frá...
Hræðsla valdi lækkun á hlutabréfum
📅 06.11.2026 👁️ 4
Hræðsla valdi lækkun á hlutabréfum
Snorri Jakobsson hagfræðingur segir að hræðsla við hertar reglugerðir gagnvart gagnaverum og gervigreindarfyrirtækjum valdi fallinu sem varð á gengi b...
Björn Leví svarar fyrir sig og hjólar í þingmennina: „Þetta eru gersamlega vanhæfir einstaklingar“
📅 06.11.2026 👁️ 2
Björn Leví svarar fyrir sig og hjólar í þingmennina: „Þetta eru gersamlega vanhæfir einstaklingar“
Björn Leví Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, tekur upp hanskann fyrir Sjálfstæðismenn vegna þeirra fjölmörgu fyrirspurna sem Guðlaugur Þór Þór...
Óhugnanleg frásögn úr æsku Russell Brand – Faðirinn keypti vændiskonu handa honum
📅 06.11.2026 👁️ 3
Óhugnanleg frásögn úr æsku Russell Brand – Faðirinn keypti vændiskonu handa honum
Breski grínistinn og leikarinn Russell Brand, sem hefur verið sakfelldur fyrir alvarleg kynferðisbrot, var aðeins 17 ára þegar faðir hans keypti vændi...
MAST boðar rannsókn og gagnrýnir Einar Loga - „Aldrei réttlætanlegt með neinum hætti“
📅 06.11.2026 👁️ 3
MAST boðar rannsókn og gagnrýnir Einar Loga - „Aldrei réttlætanlegt með neinum hætti“
Einar Logi Pétursson, sem var handtekinn vegna innbrota og sleppinga dýra á nokkrum búum á Kjalarnesi, birti myndband úr innbrotinu í verksmiðju Stjör...
Líti ekki á and­lát dóttur sinnar sem slys - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Líti ekki á and­lát dóttur sinnar sem slys - Vísir
Er þetta meðal þess sem kemur fram í viðtali Heimildarinnar við foreldra Hönnuh, þau Samönthu og Gregory Lane.  Hannah Jane Large lést ásamt tveimur ö...
Hefja ákæruferli á hendur forseta vegna hruns banka
📅 06.11.2026 👁️ 2
Hefja ákæruferli á hendur forseta vegna hruns banka
Ólga og mótmæli hafa verið í Paragvæ í vikunni eftir að seðlabankinn tók yfir stærsta banka landsins, Ueno-banka.Nær helmingur Paragvæ-búa var í viðsk...
Formaður Dýraverndarsambandsins segir svínabúum bera að huga frekar að velferð dýra en hámarksframleiðslu
📅 06.11.2026 👁️ 4
Formaður Dýraverndarsambandsins segir svínabúum bera að huga frekar að velferð dýra en hámarksframleiðslu
Linda Karen Gunnarsdóttir formaður Dýraverndarsambands Íslands segir aðbúnað dýra á búi Stjörnugríss ekki standast núgildandi reglugerð um velferð sví...
Covid-19 bólu­efni landsins að fyrnast - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Covid-19 bólu­efni landsins að fyrnast - Vísir
Þetta kemur fram í farsóttarfréttum embættis landlæknis þar sem segir að þátttaka í bólusetningum gegn Covid-19 bólusetningum hafi farið minnkandi og ...
Ferðamenn nefna stærstu mistökin sem þeir gerðu á Íslandi – „Ég fór á hestbak án góðs brjóstahaldara“
📅 06.11.2026 👁️ 4
Ferðamenn nefna stærstu mistökin sem þeir gerðu á Íslandi – „Ég fór á hestbak án góðs brjóstahaldara“
Ferðalög eru ekki alltaf einföld. Sérstaklega ekki til framandi og fjarlægra landa þar sem aðstæður eru ekki eins og fólk er vant. Fyrir marga ferðame...
Vika með fimm tíma svefni lækkaði testósterón ungra karla um 10-15%
📅 06.11.2026 👁️ 5
Vika með fimm tíma svefni lækkaði testósterón ungra karla um 10-15%
Testósteróngildi að degi til lækkuðu um 10-15% hjá tíu ungum, heilbrigðum körlum sem fengu aðeins fimm tíma svigrúm til svefns á nóttu í tilraun við C...
Kourani er enn að hrella Íslendinga
📅 06.11.2026 👁️ 4
Kourani er enn að hrella Íslendinga
Sprengjuhótanir hafa borist opinberum stofnunum, leikskólum og fyrirtækjum undanfarna daga, en málin eru til rannsóknar lögreglu. RÚV greinir frá því ...
Prince Harry and five others seek to challenge Mail publisher privacy ruling
📅 06.11.2026 👁️ 2
Prince Harry and five others seek to challenge Mail publisher privacy ruling
The Duke of Sussex and other public figures lost a High Court case against the publisher of the Daily Mail and Mail on Sunday.
Trump ræður sér nýjan starfs­manna­stjóra - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Trump ræður sér nýjan starfs­manna­stjóra - Vísir
 „Mér er ánægja að tilkynna að Stephen Miller, núverandi aðstoðarstarfsmannastjóri Trump-stjórnarinnar og einn af mínum traustustu ráðgjöfum, verður s...
„Það skiptir engu máli hvort þú sért með fötlun eða ekki“
📅 06.11.2026 👁️ 3
„Það skiptir engu máli hvort þú sért með fötlun eða ekki“
Þær Katrín Lilja, Guðlaug Esther, Bergdís, Klara og Katrín Líf skipa danshópinn Dans án hindrana.Þær eru á aldrinum 11 til 18 ára, æfa hjá Danslistars...
Hélt að svínin myndu hlaupa glöð út - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Hélt að svínin myndu hlaupa glöð út - Vísir
Einar Logi hefur vakið mikla athygli eftir að hann birti tvö myndskeið úr svínabúum Stjörnugríss á Instagram og Facebook þar sem meðal annars má sjá d...
Dæmdur í 200 ára fangelsi fyrir að svelta 190 börn til dauða - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Dæmdur í 200 ára fangelsi fyrir að svelta 190 börn til dauða - Vísir
Saksóknarar höfðu farið fram á dauðarefsingu gegn Mackenzie og lífstíðardóm fyrir hina 28. Sum barnanna voru bundin á meðan þau sveltu til dauða. Yfir...
Reykjavíkurborg tók niður síðuna eftir fyrirspurn Nútímans – Efnið þó enn á lista fyrir miðstig
📅 06.11.2026 👁️ 5
Reykjavíkurborg tók niður síðuna eftir fyrirspurn Nútímans – Efnið þó enn á lista fyrir miðstig
Svo virðist sem Reykjavíkurborg hafi tekið niður síðu sem var til umfjöllunar hjá Nútímanum fyrr í dag, 6. nóvember. Síðan var opin snemma dagsins 6. ...
Trump names Stephen Miller as new  chief of staff, replacing Susie Wiles
📅 06.11.2026 👁️ 3
Trump names Stephen Miller as new chief of staff, replacing Susie Wiles
Miller, considered the architect of Trump's hard-line immigration policy, will move into the role on Monday.
Þrír dauðadæmdir fangar teknir af lífi sama daginn – Einn baðst afsökunar rétt fyrir dauða sinn
📅 06.11.2026 👁️ 2
Þrír dauðadæmdir fangar teknir af lífi sama daginn – Einn baðst afsökunar rétt fyrir dauða sinn
Þrír dauðadæmdir fangar voru teknir af lífi í Bandaríkjunum í gær, einn í Flórída, annar í Alabama og sá þriðji í Indiana.Slíkt er afar sjaldgæft en þ...
How match momentum, red cards, and late goals influence live betting on Spanish football
📅 06.11.2026 👁️ 3
How match momentum, red cards, and late goals influence live betting on Spanish football
Spanish football always gives us a captivating backdrop for live betting, with matches shifting between slow-built possession and high pressing, amid ...
Ánægð með að Chrome-bækurnar hafi verið læstar inni í skápum
📅 06.11.2026 👁️ 3
Ánægð með að Chrome-bækurnar hafi verið læstar inni í skápum
„Við í Hagaskóla ákváðum í sameiningu, það er að segja kennarar, á síðasta skólaári, að endurhugsa svolítið hvernig við notuðum upplýsingatækni eða tæ...
Orange weather warnings activated in Tenerife for heavy rain
📅 06.11.2026 👁️ 4
Orange weather warnings activated in Tenerife for heavy rain
Tenerife is facing an orange rain warning on Sunday as storm Bruna moves across the Canary Islands, with up to 100 millimetres of rain expected in 12 ...
Sprengdi krúttskalann og vill ekki búa í græna gímaldinu - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Sprengdi krúttskalann og vill ekki búa í græna gímaldinu - Vísir
Svörin leyndu ekki á sér. Gulur og bleikur eru í uppáhaldi en ekki grár eða steinngrár sem einkennir íslenska byggingarlist og bílaflotan hér á landi....
Stóri glæpurinn sé inn­brotið sjálft - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Stóri glæpurinn sé inn­brotið sjálft - Vísir
Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður sem játað hefur innbrotin Stjörnugríss á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ, birti í dag myndband af innbrot...
Starfsfólki háskólaráðuneytisins fækkar um átta
📅 06.11.2026 👁️ 4
Starfsfólki háskólaráðuneytisins fækkar um átta
Stöðugildum innan Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis fækkar um átta með ráðstöfunum sem gripið var til í vikunni.Í skriflegu svari frá ráðun...
Ráðherra þvertekur fyrir niðurskurð hjá Landbúnaðarháskólanum
📅 06.11.2026 👁️ 4
Ráðherra þvertekur fyrir niðurskurð hjá Landbúnaðarháskólanum
Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, sagði í tilkynningu frá skólanum í gær að nauðsynlegt væri að leiðrétta fjármögnun ...
„Við þurfum að laga þetta“
📅 06.11.2026 👁️ 4
„Við þurfum að laga þetta“
Dagur gegn einelti var haldinn hátíðlegur í Hlíðaskóla. Halla Tómasdóttir forseti Íslands veitti Fjölbrautaskóla Suðurlands hvatningarverðlaun fyrir f...
Orðið á götunni: Örvæntingarfull tilraun skrímsladeildar til að gera ráðherra tortryggilegan vegna Landsvirkjunar
📅 06.11.2026 👁️ 3
Orðið á götunni: Örvæntingarfull tilraun skrímsladeildar til að gera ráðherra tortryggilegan vegna Landsvirkjunar
Örvænting stjórnarandstöðunnar og Morgunblaðsins hefur náð nýjum hæðum með þeirri ofuráherslu sem lögð hefur verið á að snúa út úr öllu sem snýr að má...
Lögregla á þyrlu teiknaði typpi á flugkortið – „Ég er ekki reiður, ég er vonsvikinn yfir sóuninni“
📅 06.11.2026 👁️ 2
Lögregla á þyrlu teiknaði typpi á flugkortið – „Ég er ekki reiður, ég er vonsvikinn yfir sóuninni“
Flugmaður lögregluþyrlu í Bretlandi hefur verið sakaður um að „teikna“ typpamynd á flugkort. Flugmaðurinn segist hafa verið að hringsóla við leit.Bres...
Sprengjuhótanir í Evrópu – „Aðeins byrjunin á því sem bíður Evrópuríkja“
📅 06.11.2026 👁️ 3
Sprengjuhótanir í Evrópu – „Aðeins byrjunin á því sem bíður Evrópuríkja“
Breska sjónvarpsstöðin Sky, búlgarska stöðin Nova TV og RTÉ, írska ríkissjónvarpið, fengu í dag sprengjuhótanir. Rask varð á starfsemi enda þurfti að ...
Spain's rail authorities face European fraud probe after Urda rail disaster
📅 06.11.2026 👁️ 3
Spain's rail authorities face European fraud probe after Urda rail disaster
Prosecutors begin investigating EU funds meant for upgrading the Spanish railway line where a train crash killed 69 people.
Gögn frá Akureyrarbæ sýna formlegar athugasemdir Síðuskóla við opinber skrif Helgu Daggar
📅 06.11.2026 👁️ 3
Gögn frá Akureyrarbæ sýna formlegar athugasemdir Síðuskóla við opinber skrif Helgu Daggar
Nútíminn hefur fengið afhent gögn frá Akureyrarbæ sem varpa nýju ljósi á ágreining Helgu Daggar Sverrisdóttur, fyrrverandi kennara við Síðuskóla, og s...
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp
📅 06.11.2026 👁️ 2
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp Fréttin6. nóvember 2026ErlentLeave a Comment Mikill eldur braust...
Upp­taka sýnir á­tökin sem leyddu til manndráps - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Upp­taka sýnir á­tökin sem leyddu til manndráps - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu. Upptakan sýnir tvo menn fylgja feðgum eftir en mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að kúga fé út úr syninum. Sa...
Upp­taka sýnir á­tökin sem leiddu til manndráps - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Upp­taka sýnir á­tökin sem leiddu til manndráps - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu. Upptakan sýnir tvo menn fylgja feðgum eftir en mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að kúga fé út úr syninum. Sa...
„Er þetta pöngurinn á honum?“ - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
„Er þetta pöngurinn á honum?“ - Vísir
Fyrsta sería af ferðaþáttunum Einni stjörnu kom út árið 2024 þar sem Dóri og Steindi flökkuðu milli ólíkra staða í leit að einnar stjörnu afþreyingu o...
Rottupungurinn reyndist vera æxli - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Rottupungurinn reyndist vera æxli - Vísir
Fyrsta sería af ferðaþáttunum Einni stjörnu kom út árið 2024 þar sem Dóri og Steindi flökkuðu milli ólíkra staða í leit að einnar stjörnu afþreyingu o...
Sveitarstjóri Norðurþings: „Við könnumst bara ekki við þetta“
📅 06.11.2026 👁️ 3
Sveitarstjóri Norðurþings: „Við könnumst bara ekki við þetta“
Elvar Árni Lund sagði upp starfi sínu sem sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Norðurþings vegna ágreinings um fyrirhugað vindorkuver á Hnotastein...
Gefur út plötu og heldur út í Ung­frú al­heim - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Gefur út plötu og heldur út í Ung­frú al­heim - Vísir
Það er nóg um að vera hjá Siggu Ózk þessa dagana. Í dag gaf hún út aðra plötu sína, Pink Static, sem samanstendur af fimm glænýjum lögum auk hinna áðu...