Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins lýsir yfir sérstakri óánægju með orð Guðmundar Ara Sigurjónssonar, þingflokksformanns Samfylkingarinnar, um frumvarp hennar sem snýr m.a. að breytingum á stöðu RÚV. Segir hún Guðmund Ara hafa sakað sig að ósekju um að hafa lagt fram frumvarpið til að klekkja á RÚV vegna fréttaflutnings þess af hneykslismálum sem tengjast flokkssystkinum Hildar.Hildur gerir málið að umtalsefni á Facebook-síðu sinni.
Hildur ósátt við að vera sökuð um hefndarleiðangur gegn RÚV - „Hefur verið að fjalla um hneykslismál sjálfstæðismanna“