Haraldur konungur er fimmti norski konungurinn sem ber það nafn. Hann fæddist 21. febrúar 1937, sonur Ólafs krónprins og Mörthu krónprinsessu.
Haraldur fór í útlegð ásamt fjölskyldu sinni þegar Þjóðverjar hernumu Noreg 1940 og ólst upp hluta ævinnar í Svíþjóð og Bandaríkjunum.
Haraldur keppti í siglingum á þrennum Ólympíuleikum, frá 1964 til 1972.
Haraldur varð krónprins 1957 þegar Hákon afi hans lést og Ólafur faðir hans varð konungur. Haraldur varð konungur 17. janúar 1991, fyrir 35 árum. Haraldur varð fyrsti konungur Noregs frá 1380 sem fæddist sjálfur í Noregi.
Haraldur giftist Sonju Haraldsen 1968 og eiga þau tvö börn, Hákon krónprins og Mörthu Lovísu prinsessu. Ólafur konungur, faðir Haraldar, var í fyrstu tregur til að samþykkja hjónabandið því Sonja er ekki af konungsættum.
Norska ríkisútvarpið NRK leitaði til Ole-Jørgen Schulsrud-Hansen, sérfræðings í málefnum norsku konungsfjölskyldunnar, og fékk hann til að rýna í tilkynningu hirðarinnar um heilsu konungs.
Schulsrud-Hansen sagði að alla jafna notaðist hirðin við yfirvegað orðfæri í tilkynningum sínum. Nú vekti athygli að hún notaði afdráttarlaus og sterk orð í tilkynningu og segði ástand konungs mjög alvarlegt.
Hann segir að þetta valdi sér áhyggjum því fólk hafi vonast til að fyrri orð um að ástand konungs væri stöðugt væru enn í fullu gildi. Nú virðist það ekki lengur eiga við.
Haraldur konungur hefur lengi glímt við heilsubrest. Í febrúar var hann lagður inn á sjúkrahús meðan hann var í fríi á Tenerife og síðan fluttur heim til Noregs.
Haraldur var lagður inn á spítala í Ósló 17. ágúst vegna blóðsýkingar og hefur dvalið þar síðan.
Hákon krónprins, Mette-Marit krónprinsessa, Sonja drottning og Sverrir Magnús prins eru komin á sjúkrahúsin til að vera hjá konuningum.
Góðan dag og velkomin í fréttavakt um heilsufar Haraldur Noregskonungs.
Norska hirðin tilkynnti í morgun að heilsu konungs hefði hrakað enn og að ástand hans væri mjög alvarlegt. Krónprinsinn og drottningin hafa aflýst öllum þeim viðburðum sem þau áttu að taka þátt í.