Háskólaprófessor um aðild Íslands að ESB: „Ekki málefnalegt að lofa lægri vöxtum, meiri fjárfestingu og hærri lífskjörum án þess að sýna forsendurnar“ - DV

Háskólaprófessor um aðild Íslands að ESB: „Ekki málefnalegt að lofa lægri vöxtum, meiri fjárfestingu og hærri lífskjörum án þess að sýna forsendurnar“ - DV

Háskólaprófessor um aðild Íslands að ESB: „Ekki málefnalegt að lofa lægri vöxtum, meiri fjárfestingu og hærri lífskjörum án þess að sýna forsendurnar“ - DV

Sigurður Gylfi Magnússon, sagnfræðiprófessor við Háskóla Íslands, birti í vikunni áhugaverða færslu á Facebook þar sem hann veltir upp nokkrum punktum til umhugsunar um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. DV gerði frétt um hugleiðingar Sigurðar.

Sjá einnig: Háskólaprófessor: Andstæðingar aðildar hengja sig í algjör smáatriði – drepa innihaldsríkri umræðu á dreif

Sigurður segir að sama dag hafi Haraldur Ólafsson veðurfræðingur og formaður Heimssýnar birt mikla heimsendaspá um afleiðingar af hugsanlegri inngöngu í Evrópusambandið.

„Honum reiknaðist til að aðild myndi kosta Íslendinga 118 milljarða kr. á hverju ári. Þessar reikningskúnstir sem þarna voru reiddar fram eru vonandi ekki þær sömu og hann notar við veðurspárnar hjá Veðurstofunni, því þá væri óveður í kortunum á hverjum degi á Íslandi. En að öllu gríni slepptu þá gleymdi veðurspámaðurinn að reikna með hver ávinningurinn væri af aðild okkar að bandalaginu. Við sem fórum í gegnum Vesló á sínum tíma vitum að það er eitthvað sem heitir debet og kredit! Og við vitum líka að það er ekki hægt að slumpa á kostnað með einhverjum hundakúnstum og koma síðan upp með tölu sem er sett fram til að fólk standi á öndinni yfir stöðu mála. Það eru ekki góð vísindi, það vitum við sem stundum slík fræði í Háskóla Íslands, þar sem Haraldur Ólafsson er reyndar innanbúðarmaður!“

Sigurður segir í nýrri færslu sinni að þó tölur um ávinning og kostnað af bandalagsaðild séu vandmeðfarnar og óvissa um niðurstöður há þá er hann viss um að töluglöggir menn geti lagst í slíka útreikinga. Hann ætli sér hins vegar ekki út á þann hála ís.

„Ég kýs frekar að fara almennum orðum um hinn efnahagslega ávinning og hugsanlega nefna einhverjar tölur í lokin sem ég hef séð í umræðunni. Í þessari umræðu geng ég út frá því að Íslendingar taki upp Evruna á einhverjum tímapunkti á næstu árum.“

Sigurður fer í ítarlegu máli yfir þær hugleiðingar sínar og segist undirstrika að allt séu þetta almennar umræður og margt sem komi fram sé örugglega vanreiknað og annað ofreiknað. „Samt gefa þessar hagstærðir okkur einhverja hugmynd um hver ávinningurinn yrði á móti kostnaði Haraldar Ólafssonar sem hann birti í sérstakri grein í málgagni andstæðinga ESB á Íslandi, Morgunblaðinu – debet og kredit“:

Sigurður segir efnahagslega ábatann af aðildarviðræðum felast ekki nema að hluta í sjálfri ESB-aðildinni. „Hann gæti einkum falist í því sem kæmi til skoðunar í framhaldinu: mögulegri evruupptöku, minni gjaldmiðilsáhættu, dýpri fjármagnsmarkaði og lægra áhættuálagi. Þetta kemur þó ekki sjálfkrafa með aðild og andstæðingar hafa auðvitað litla trú á því að við munum uppfylla skilyrðing, með réttu eða röngu, til að taka upp Evruna.“

Viðskiptatengsl milli Íslands og ESB myndu aukast

Sigurður segir varla nokkurn vafa leika á því að með inngöngu Íslands í Evrópusambandið og með upptöku Evrunnar myndu viðskiptatengsl milli landsins og ESB aukast, eins og fjárfestingar evrópskra félaga í innlendum félögum sem myndi að sjálfsögðu auka verðgildi þeirra til muna. Innlend félög væru einnig líklegri til að hasla sér völl í Evrópu.

„Hlutabréfamarkaðurinn innlendi hefur verið í mikilli lágdeiðu um tíma vegna þess að erlendum fjárfestum finnst krónan fyrirstaða. Íslenskur hlutabréfamarkaður er því mjög einangraður. Smæð krónunnar, gengisáhætta og takmarkaður seljanleiki fæla trúlega frá erlenda fjárfesta, jafnvel þegar félögin sjálf eru áhugaverð. Það er ekki víst að ESB-aðild ein og sér myndi leysa þetta, en möguleg evruupptaka og minni gjaldmiðilsáhætta gætu breytt fjárfestingarforsendum.“

„Átthagafjötrar“ lífeyrissjóða hættulegir íslensku efnahagslífi

Sigurður snýr sér að lífeyrissjóðunum og segir stöðu þeirra ekki góða.

„Þeir hafa vissulega tækifæri til að fjárfesta í erlendum félögum en eru samt háðir ákveðnum takmörkunum sem hamlar vexti þeirra og stöðu. Þeir verða að fjárfesta hér á landi í innlendum félögum og skekkja þannig hlutabréfamarkaðinn mikið. „Átthagafjötrar“ þessara mikilvægu sjóða okkar eru án nokkurs vafa hættulegar íslensku efnahagslífi. Sjóðirnir búa sem sagt við gjaldmiðlaáhættu og reglulegar skorður en hafa verður í huga að þær snúast um íslensk lög um hlutfall eigna í sama gjaldmiðli og skuldbindingar sjóðanna. Reglurnar fela í sér lágmarkshlutfall eigna í sama gjaldmiðli og skuldbindingar. Þetta tengist því gengisáhættunni, en ekki einhverju sem leiðréttist við inngöngu af því að þeir verði frjálsara við það að ganga inn í ESB.“

Segir Sigurður stöðu íslensku lífeyrisjóðanna vera þá að þeir eru sterkir að stærð, en starfa í mjög sérkennilegu umhverfi. Skuldbindingar þeirra eru að mestu í íslenskum krónum, en æskileg eignadreifing kallar á miklar erlendar fjárfestingar. „Þar verður til viðvarandi spenna milli áhættudreifingar, gjaldmiðilsáhættu og reglna um eignasamsetningu. Smæð krónunnar þrengir því mjög að virkri eignastýringu, jafnvel þótt sjóðirnir hafi þegar byggt upp töluverðar erlendar eignir.“

Erlendir aðilar treysta sér ekki inn á íslenska markaðinn

Sigurður rekur að erlendir aðilar treysta sér ekki inn á krónumarkaðinn hér á landi, þar sem þeir hafa ekki þekkingu á honum og hafa ekki löngun til að fjárfesta tíma og fjármagni til að setja sig inn í kima hans.

„Sum íslensk sprotafyrirtæki hafa ríkan hvata til að sækja fjármagn, stofna eignarhaldsfélög eða byggja upp starfsemi erlendis, ekki endilega vegna þess að hugmyndirnar séu veikar, heldur vegna þess að íslenski fjármagnsmarkaðurinn er lítill. Erlendir fjárfestar horfa ekki aðeins á félagið sjálft, heldur líka gjaldmiðilinn, seljanleikann, lögsöguna og möguleika á útgöngu.“

Íslenska krónan er einn minnsti sjálfstæði fljótandi gjaldmiðill meðal þróaðra hagkerfa

Þegar litið er til íslensku krónunnar segir Sigurður:

„Íslenska krónan er einn minnsti sjálfstæði fljótandi gjaldmiðill meðal þróaðra hagkerfa og fórnarkostnaður þess að binda fé í honum með neikvæðum vaxtamun er mikill. Seðlabankinn setur stórfé í gjaldeyrisvarasjóð landsmanna, upphæðir sem eru teknar að láni með tilheyrandi kostnaði.“

Umræðan um vaxtamun hér og í ESB er endalaus

Sigurður segir vaxtastigið hér á landi þekkt af endalausri umræðu um vaxtamuninn hér og í löndum ESB. Hver fjölskylda sé í raun að leigja peninga á mun hærra verði en fjölskyldur í Evrópu.

„Ástæðan er sú að vextir eru eftir allt saman leiga á peningum og breytir þar engu hvort að við séum að leigja þessa peninga fyrir kaupum á íbúð eða leigu á húsnæði,  allt er þetta leiga á fjármagni og það er hér leigt á mjög háu verði, miklu hærra verði en þekkt er annars staðar í Evrópu. Vaxtakjör ráðast líka af ríkisfjármálum, lánshæfi, bankasamkeppni, eiginfjárkröfum, áhættuálagi og uppbyggingu húsnæðislánamarkaðar. Þess vegna eru vextir ekki allir eins í Evrópu,“ segir Sigurður og heldur áfram:

„Ég tel ekki að það verði strax breyting á vaxtakjörum hér á landi við inngöngu í ESB og að innlendir vextir verði eins og hjá evrópska Seðlabankanum. Rétta spurningin sem mikilvægt er að spyrja og er vissulega hófsamari en fyrri yfirlýsing, spurning sem er samt mjög stór: Hversu stór hluti af íslenska vaxtaálaginu skýrist af smæð krónunnar, gengisáhættu og óstöðugleika? Ef aðeins hluti þess álags hyrfi við trúverðuga evruvegferð væri fjárhagslegt umfang málsins verulegt.“

Sigurður snýr sér næst að leik með nokkrar tölur. Vísar hann í að Benedikt Jóhannesson fyrrverandi fjármálaráðherra komst að þeirri niðurstöðu að kostnaðurinn við krónuna væri vel yfir hundrað milljörðum á hverju ári og þetta voru útreikningar sem gerðir voru fyrir rúmum tíu árum.

„Þessi kostnaður er vegna vaxtastigsins, almenns verðlags í landinu og gríðarlegum fjármagnskostnaði sem kemur til vegna verðtryggingar og óstöðugleika gjaldmiðilsins. Ætli við getum ekki margfaldað þessa tölu með tveimur eða þremur í dag þannig að við erum að tala um verulegar upphæðir.“

„Húsnæðislán heimilanna eru há, þau skulda nú um 2000 milljarða. Vaxtamunurinn á milli Íslands og margra Evrópulanda er ca 3,5% sem er frekar varlega áætlað. Hann stendur þá í 70 milljörðum árlega sem krónan kostar íslensk heimili bara þegar kemur að húsnæðislánum. Samkvæmt nýlegum fréttum frá Seðlabankanum þá er staðan þessi: „Staða á útlánum fjármálafyrirtækja til heimila í lok 4. ársfjórðungs 2025 var 3.294,7 ma.kr. þar af námu skuldir heimila með veði í íbúð 2.896,5 ma.kr.“.

Gjaldeyrisvarasjóðurinn sem ég nefndi hér að framan slagar hátt í 1000 milljarða og 60–70% af honum er fjármagnaður með lántökum, að langstærstu leyti í íslenskum krónum. Í ljósi vaxtamunar milli krónu og annarra mynta er ekki óvarlegt að ætla að vaxtakostnaðurinn við 600 milljarða umfram ávöxtun hlaupi á einhverjum 20 milljörðum árlega.“

Aukin samkeppni á fákeppnismörkuðum myndi draga úr kostnaði heimila

Sigurður segir að aukin samkeppni á þessum fákeppnismörkuðum hér á landi myndi draga úr kostnaði íslenskra heimila og atvinnulífs sem um munaði og  stuðla að lífskjarabótum. Hann segir erfitt að setja verðmiða á þessa staðreynd, en vonar að einhver ráðist í slíka útreikninga og aðra sem tengjast þessu efni öllu.

„Þegar allt kemur til alls þá held ég að það sé mikið meira en þess virði að skoða aðild Íslendinga að Evrópusambandinu. Tölurnar sem hér hafa verið nefndar eru auðvitað ágiskanir, og hér eru bara einstaka liðir er varða ávinning taldir til frekar en tæmandi listi. Tölurnar eru samt byggðar á umræðu sem hefur verið á sveimi á síðari árum en við höfum ekki heyrt mikið af að undanförnu. Mig langar til að hvetja þá sem þekkja vel til að leitast við að draga fram þessa fjárhagsstöðu. Margir eru sannfærðir um að við myndum hafa mikinn ávinning af því að bindast ESB enda eru ákveðnar hagstærðir svo skakkar hér á landi. Aðrir eru algjörlega á öndverðu meiði og finna þessari umræðu allt til foráttu.“

Niðurstaðan er þessi:

„Mergur málsins er þá þessi: Ef ræða á kostnað Íslands af ESB-aðild verður jafnframt að ræða kostnaðinn af því að standa utan hennar og halda úti eigin örgjaldmiðli. Sú umræða þarf að vera tvíhliða. Það er ekki málefnalegt að telja aðeins útgjöldin og sleppa mögulegum ábata. Vissulega tel ég bara til ávinning hér, en það er gert til mótvægis við kostnaðarútreikninga sem áður voru komnir fram. En það er heldur ekki málefnalegt að lofa lægri vöxtum, meiri fjárfestingu og hærri lífskjörum án þess að sýna forsendurnar. Ef til vill þurfum við beinar aðildarviðræður við ESB til að fá þessar hagstærðir allar upp á borðið?“

#aðild #ekki #esb #háskólaprófessor #íslands


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/eyjan/2026/5/3/haskolaprofessor-um-adild-islands-ad-esb-ekki-malefnalegt-ad-lofa-laegri-voxtum-meiri-fjarfestingu-og-haerri-lifskjorum-thess-ad-syna-forsendurnar/

📰 Aðrar fréttir

Bandaríkin senda skýr skilaboð: Varnarsamningurinn við Ísland í forgrunni, ekki NATO
📅 21.06.2026 👁️ 0
Bandaríkin senda skýr skilaboð: Varnarsamningurinn við Ísland í forgrunni, ekki NATO
Þjóðhátíðarkveðja Marco Rubio til Íslendinga á 17. júní vekur athygli fyrir það sem þar er sagt – en ekki síður fyrir það sem þar er ekki sagt. Í kveð...
Vonast eftir bandaríska hernum
📅 21.06.2026 👁️ 0
Vonast eftir bandaríska hernum
Vonast eftir bandaríska hernum Þótt meiri­hluti Græn­lend­inga vilji ekk­ert með Banda­ríkja­menn hafa gegn­ir öðru máli um íbúa Nars­ar­su­aq. Þeir b...
Temperatures start to rise across the Canary Islands this Sunday
📅 21.06.2026 👁️ 0
Temperatures start to rise across the Canary Islands this Sunday
The Canary Islands are set for another warm and mostly sunny day today, Sunday, with temperatures expected to edge higher in inland areas and some par...
Sól úti um allt og hátt í sau­tján gráður - Vísir
📅 21.06.2026 👁️ 0
Sól úti um allt og hátt í sau­tján gráður - Vísir
Veðurfræðingur Veðurstofu Íslands segir í hugleiðingum sínum að nú í morgunsárið sé áhrifasvæði lægðarinnar sem haldið hefur úrkomubakka upp að Norður...
„Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ - Vísir
📅 21.06.2026 👁️ 0
„Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ - Vísir
Erlendur er fæddur árið 1990 og Guðrún Edda 1991 en hjónin hafa verið par í átta ár og eiga saman tvö börn sem slógu algjörlega í gegn í veislunni. Gu...
Þrír voru drepnir og 22 særðust í árásum Rússa í Austur-Úkraínu
📅 21.06.2026 👁️ 0
Þrír voru drepnir og 22 særðust í árásum Rússa í Austur-Úkraínu
Þrír voru drepnir og 22 eru særðir eftir árásir Rússa í Dnipropetrovsk og Poltava-héruðum í austur Úkraínu í gærkvöld.Stigmögnun hefur orðið í átökum ...
Krakkatía vikunnar: Dor­rit, fjall­konan og lítil­menni - Vísir
📅 21.06.2026 👁️ 0
Krakkatía vikunnar: Dor­rit, fjall­konan og lítil­menni - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Sem fyrr er einungis montrétturinn í verðlaun. (Og að sjálfsögðu er ...
Viðræður hefjast í Sviss í dag
📅 21.06.2026 👁️ 0
Viðræður hefjast í Sviss í dag
JD Vance varaforseti Bandaríkjanna er kominn til Sviss til að hefja viðræður við Írana. Samninganefndir frá Bandaríkjunum og Íran ræða saman um framkv...
Leadership uncertainty costs public money, Simon Case says
📅 21.06.2026 👁️ 2
Leadership uncertainty costs public money, Simon Case says
Leadership uncertainty is "enormously disruptive" and presents a "big challenge" for the government, a former cabinet secretary has said.Simon Case, t...
World Cup 2026: Eloy Room equals saves record as Curacao create history
📅 21.06.2026 👁️ 1
World Cup 2026: Eloy Room equals saves record as Curacao create history
Curacao's Eloy Room makes a record-equalling 15 saves to help his tiny island nation to a first World Cup point against Ecuador.
Bretakonungur ætlar að birta skattaskýrslu sína í fyrsta sinn
📅 21.06.2026 👁️ 1
Bretakonungur ætlar að birta skattaskýrslu sína í fyrsta sinn
Karl Bretakonungur ætlar að birta skattaskýrslu sína á fimmtudaginn. Karl verður fyrsti konungborni þjóðhöfðinginn í Bretlandi til að birta skattaskýr...
US-Iran talks to begin in Switzerland as Tehran says it closed Strait of Hormuz
📅 21.06.2026 👁️ 1
US-Iran talks to begin in Switzerland as Tehran says it closed Strait of Hormuz
Direct talks between the US and Iran are set to begin in Switzerland despite the Iranian military saying it has closed the Strait of Hormuz again over...
Backstage at Gorillaz' epic, one-off stadium show: 'The vibe is ridiculous'
📅 21.06.2026 👁️ 0
Backstage at Gorillaz' epic, one-off stadium show: 'The vibe is ridiculous'
Damon Albarn has forgotten himself.It's Friday night at Tottenham Hotspur Stadium, and he's in the middle of rehearsals for Gorillaz' first ever stadi...
Jökull gaf forseta Íslands axlarskjólið sitt
📅 21.06.2026 👁️ 2
Jökull gaf forseta Íslands axlarskjólið sitt
Jökull Júlíusson söngvari Kaleo gaf Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, axlarskjól sitt eftir tónleikahátíðina Bergmál sem fram fór á Þingvöllum í gær...
World Cup 2026: Deniz Undav's journey from factory floor to World Cup star
📅 21.06.2026 👁️ 1
World Cup 2026: Deniz Undav's journey from factory floor to World Cup star
It was not long ago that his manager Julian Nagelsmann called him out openly - but Deniz Undav is proving himself a key player for Germany at the Worl...
Níu í lífs­hættu og einn látinn eftir lestar­slys í Eng­landi - Vísir
📅 21.06.2026 👁️ 1
Níu í lífs­hættu og einn látinn eftir lestar­slys í Eng­landi - Vísir
Lestarstjóri annarrar lestarinnar lést við áreksturinn og eitt hundrað manns slösuðust. Þar af töldust fimmtíu og sjö bera minniháttar áverka. Slysið ...
World Cup 2026: Fastest World Cup to 100 goals in 68 years - does new format skew figures?
📅 20.06.2026 👁️ 2
World Cup 2026: Fastest World Cup to 100 goals in 68 years - does new format skew figures?
The 2026 World Cup becomes the fastest edition of the tournament to hit 100 goals since 1958 - with the landmark reached in the 33rd game. But what is...
Three men killed following fire in west London
📅 20.06.2026 👁️ 1
Three men killed following fire in west London
Three men have died after a fire burnt down a building in west London, the London Fire Brigade has said.Firefighters rescued three men from a single-s...
Why the social media ban is about so much more than social media
📅 20.06.2026 👁️ 1
Why the social media ban is about so much more than social media
"Everyone's really upset mum - loads of them have got their own YouTube channels."That was my 12-year-old son's summary of how the news about the soci...
How the social media ban could reshape how all of us use the internet
📅 20.06.2026 👁️ 1
How the social media ban could reshape how all of us use the internet
"Everyone's really upset mum - loads of them have got their own YouTube channels."That was my 12-year-old son's summary of how the news about the soci...
Man charged after suspected anti-Muslim attacks in Edinburgh
📅 20.06.2026 👁️ 2
Man charged after suspected anti-Muslim attacks in Edinburgh
A man has been charged following a series of suspected anti-Muslim attacks in Edinburgh which left five men injured. The BBC understands the attacks b...
Hafði fé af mótsgesti - Vísir
📅 20.06.2026 👁️ 1
Hafði fé af mótsgesti - Vísir
Mótsgesturinn óheppni var rukkaður um umtalsverða fjárhæð í erlendri mynt. Vísir greindi í vikunni frá ferðum manns í Árbænum sem lék slíkt hið sama e...
HR út­skrifaði rúm­lega sjö hundruð í dag - Vísir
📅 20.06.2026 👁️ 2
HR út­skrifaði rúm­lega sjö hundruð í dag - Vísir
Dr. Ragnhildur Helgadóttir rektor flutti ávarp og talaði um sannleikann og mikilvægi þess að nýta menntunina til að greina á milli sannleika og viðurk...
160 ker undir landeldi hjá First Water í Ölfusi
📅 20.06.2026 👁️ 2
160 ker undir landeldi hjá First Water í Ölfusi
Það er allt að gerast hjá First Water í Ölfusi skammt frá Þorlákshöfn því þar er verið að koma upp risakerjum undir landeldið og nú þegar er slátrun h...
Veggur af fólki mætti svöngum tón­leika­gestum - Vísir
📅 20.06.2026 👁️ 2
Veggur af fólki mætti svöngum tón­leika­gestum - Vísir
Fréttastofa bar áhyggjurnar undir Jakob Frímann Magnússon, aðalskipuleggjanda hátíðarinnar. Jakob segir stemninguna á svæðinu einstaka og margar falle...
Zelensky sviptur pólskri heiðursorðu vegna umdeilds nafns á úkraínskri hersveit
📅 20.06.2026 👁️ 2
Zelensky sviptur pólskri heiðursorðu vegna umdeilds nafns á úkraínskri hersveit
Volodymyr Zelensky tilkynnti í dag að hann hefði skilað pólskri heiðursorðu, eftir að forseti Póllands, Karol Nawrocki, svipti hann viðurkenningunni.Z...
Iran says it has closed Strait of Hormuz over Israeli attacks in Lebanon
📅 20.06.2026 👁️ 2
Iran says it has closed Strait of Hormuz over Israeli attacks in Lebanon
The Iranian military says it has closed the Strait of Hormuz again over Israel's attacks on southern Lebanon - although the US military has disputed t...
King Charles to reveal personal tax bill for first time as monarch
📅 20.06.2026 👁️ 2
King Charles to reveal personal tax bill for first time as monarch
King Charles will become Britain's first monarch in modern times to reveal his personal tax bill.His tax payments will be shared on Thursday as a new ...
Helgi tengir íhaldssöm gildi við öfgahægri: „Kynin aðeins tvö“ og gagnrýni á femínsima sett í sama flokk og nasismi
📅 20.06.2026 👁️ 2
Helgi tengir íhaldssöm gildi við öfgahægri: „Kynin aðeins tvö“ og gagnrýni á femínsima sett í sama flokk og nasismi
Prófessorinn og afbrotafræðingurinn Helgi Gunnlaugsson varar við því í nýlegri grein á Vísi að hugmyndafræði þýska flokksins Alternative für Deutschla...
Vesturbæingar kvöddu Kjötborg
📅 20.06.2026 👁️ 2
Vesturbæingar kvöddu Kjötborg
Vesturbæingar kvöddu verslunina Kjötborg með trega þegar dyrum verslunarinnar var lokað í dag í hinsta sinn eftir áratuga rekstur. Góð stemmning var í...
Blönduðu áður ó­séðu efni frá alda­mótum við upphitunaratriðið - Vísir
📅 20.06.2026 👁️ 2
Blönduðu áður ó­séðu efni frá alda­mótum við upphitunaratriðið - Vísir
Mikill fjöldi sótti sýninguna en að henni lokinni spilaði DJ Kocoon, Árni Bragi Hjaltason, tónlist og gestir gátu keypt varning frá REW. Volruptus og ...
„Þetta er stór­merki­legur á­fangi“ - Vísir
📅 20.06.2026 👁️ 2
„Þetta er stór­merki­legur á­fangi“ - Vísir
Tillaga um skipun framkvæmdanefndar og í kjölfarið vinnu í tengslum við hátíðahöldin var samþykkt samhljóða á þingi. Forseti Alþingis segir að áhersla...
Ísraelar drepa eitt barn daglega á Gaza, að meðaltali
📅 20.06.2026 👁️ 1
Ísraelar drepa eitt barn daglega á Gaza, að meðaltali
Að jafnaði hefur Ísraelsher drepið eitt barn í árásum á Gaza á hverjum degi síðan tilkynnt var um vopnahlé. Talsmaður Unicef segir þær þjáningar sem l...
Mörg þúsund manns á Þingvöllum: „Varla hægt að hreyfa sig“
📅 20.06.2026 👁️ 1
Mörg þúsund manns á Þingvöllum: „Varla hægt að hreyfa sig“
Allt að tuttugu þúsund manns verða á tónlistar- og fjölskylduhátíðarinnar BERGMÁL - KALEO og vinir á Þingvöllum. Stuðið byrjaði kl. 14:30 þegar Kaleo ...
Rútum ekið í for­gangs­akstri fram fyrir bílaröðina - Vísir
📅 20.06.2026 👁️ 2
Rútum ekið í for­gangs­akstri fram fyrir bílaröðina - Vísir
„Þetta hefur verið heilmikil áskorun og mikil umferð,“ viðurkennir Árni. „En þetta rúllar allt og það eru allir að gera sitt besta.“ Búist var við tut...
Lögregla hefur yfir engu að kvarta á Þingvöllum
📅 20.06.2026 👁️ 2
Lögregla hefur yfir engu að kvarta á Þingvöllum
Lögreglan hefur yfir engu að kvarta á tónlistarhátíðinni Bergmál á Þingvöllum enn sem komið er. Þetta segir Jón Gunnar Þórhallsson yfirlögregluþjónn á...
Allt að 44 stiga hiti og rauðar veðurviðvaranir í Evrópu
📅 20.06.2026 👁️ 2
Allt að 44 stiga hiti og rauðar veðurviðvaranir í Evrópu
Öflug hitabylgja gengur yfir stóran hluta Evrópu og eru hitamet fyrir júnímánuð víða slegin. Yfirvöld í meðal annars Ungverjalandi, Póllandi, Ítalíu, ...
Maður á rafskútu rass­skellti hlaupakonur - Vísir
📅 20.06.2026 👁️ 1
Maður á rafskútu rass­skellti hlaupakonur - Vísir
Þá var maður í Kópavogi bitinn af hundi. Lögreglu er ekki kunnugt um ástand mannsins og stendur rannsókn máls yfir. Þá sauð upp úr í fjölskylduerjum í...
Myndir: Mikil stemmning í blíðskaparveðri - MBL.IS
📅 20.06.2026 👁️ 3
Myndir: Mikil stemmning í blíðskaparveðri - MBL.IS
Mikil stemmning er á Þingvöllum þar sem tónlistarhátíðin Bergmál stendur nú yfir, en búist er við allt að 20 þúsund gestum á svæðinu.  Búist er við 20...
Lék á móti Eric Cantona - MBL.IS
📅 20.06.2026 👁️ 2
Lék á móti Eric Cantona - MBL.IS
Franska fótboltagoðsögnin Eric Cantona leikur hlutverk í myndinni Hólmavík sem var tekin upp á Íslandi og á Spáni. Elma Lísa Gunnarsdóttir leikur eigi...
Fullorðins | Vaxa saman í gegnum stjörnuspekina
📅 20.06.2026 👁️ 2
Fullorðins | Vaxa saman í gegnum stjörnuspekina
FullorðinsHera Gísladóttir, heilsumarkþjálfi og stjörnuspekingur, ólst upp úti á landi en fann alltaf að hún væri meiri borgarstelpa. Hún byrjaði snem...
„Ég hef valið að vinna með börnum og standa með börnum“
📅 20.06.2026 👁️ 1
„Ég hef valið að vinna með börnum og standa með börnum“
Jensína Edda Hermannsdóttir, leikskólastjóri Laufásborgar, er Reykvíkingur ársins 2026. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri í Reykjavík tilkynnti valið v...
Alvarlegt umferðarslys austan við Vík
📅 20.06.2026 👁️ 2
Alvarlegt umferðarslys austan við Vík
Tveggja bíla árekstur varð austan við Vík í Mýrdal um klukkan 16. Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi, segir bílana hafa e...
Five injured in suspected anti-Muslim attacks after armed man roamed Edinburgh streets
📅 20.06.2026 👁️ 2
Five injured in suspected anti-Muslim attacks after armed man roamed Edinburgh streets
Five men have been injured in a series of suspected anti-Muslim attacks as a bare-chested man was seen roaming the streets of Edinburgh with a large w...
Four-year-old girl dies after hotel pool incident in Playa Blanca
📅 20.06.2026 👁️ 2
Four-year-old girl dies after hotel pool incident in Playa Blanca
A four-year-old girl has died after being rescued from a hotel swimming pool in Playa Blanca, Lanzarote, earlier this afternoon (Saturday).Emergency s...
Vara við skriðuhættu og grjóthruni - MBL.IS
📅 20.06.2026 👁️ 2
Vara við skriðuhættu og grjóthruni - MBL.IS
Lögreglan á Norðurlandi vestra varar við aukinni hættu á skriðum og grjóthruni, meðal annars í Almenningum, vegna mikillar úrkomu síðustu daga.Þetta k...
Sólveig Anna ósátt við að vera kölluð rasisti – „Ég hef aldrei barist gegn aðfluttu fólki, aldrei“
📅 20.06.2026 👁️ 2
Sólveig Anna ósátt við að vera kölluð rasisti – „Ég hef aldrei barist gegn aðfluttu fólki, aldrei“
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, er ósátt við að tveir menn hafi í Facebook-umræðum bendlað hana við rasisma. Hún bendir á að hún hafi í st...
Búið að sleppa öllum úr haldi - MBL.IS
📅 20.06.2026 👁️ 2
Búið að sleppa öllum úr haldi - MBL.IS
Þeim fimm sem vistaðir voru í fangaklefa á Akureyri í nótt hefur verið sleppt úr haldi.„Áframhaldandi rannsóknir kröfðust þess ekki að þeir dveldu hér...
Um­ferðar­slys austan við Vík - Vísir
📅 20.06.2026 👁️ 1
Um­ferðar­slys austan við Vík - Vísir
Umferðarslys varð austan við Vík í Mýrdal á fimmta tímanum í dag. Viðbragðsaðilar eru á vettvangi. 
Slysið austan við Vík var al­var­legt - Vísir
📅 20.06.2026 👁️ 1
Slysið austan við Vík var al­var­legt - Vísir
Lögregla, sjúkralið og þyrla Landhelgisgæslu sinntu útkalli vegna slyssins. Í samtali við fréttastofu staðfestir Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri hj...