Hart tekist á um ESB - Vísir

Hart tekist á um ESB - Vísir

Hart tekist á um ESB - Vísir

Vísir bauð upp á Pallborð  í dag þar sem gerð var tilraun til að útkljá málið. 

Hólmfríður Gísladóttir fréttamaður stýrði umræðum af röggsemi og það var hennar markmið. Umræðan hefur verið hatrömm og báðar fylkingar sakað hina um upplýsingaóreiðu. Sumir vilja fá að „kíkja í pakkann“ á meðan aðrir segja deginum ljósara hvað pakkinn hefur að geyma. 

Gestir voru góðir; þau Hjörtur J. Guðmundsson alþjóðastjórnmálafræðingur, Gréta María Grétarsdóttir verkfræðingur, Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður og Gauti B. Eggertsson prófessor í hagfræði en öll hafa þau látið sig málið varða. Sigurður Kári og Hjörtur eru Nei-megin í tilverunni en þau Gauti og Gréta María Já-megin.

Þjóni engum tilgangi að fara í þessar viðræður

„Þetta verður leitt til lykta í dag,“ sagði Hólmfríður brött og vitnaði í aðsenda grein Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra sem hún birti á Vísi í morgun.

„Staðreyndin er þessi: Verði niðurstaðan já, opnast dyr að samningaborði. Ekkert annað,“ segir þar.

Sigurður Kári sagðist vera og hafa verið þeirrar skoðunar að hagsmunum Íslands sé best borgið utan Evrópusambandsins. 

„Eðli máls samkvæmt er ég þeirrar skoðunar að það þjóni engum tilgangi að halda þessum viðræðum áfram. Ég var á þingi 2009 þegar þessi umsókn var lögð fram, greiddi atkvæði gegn henni þá og hef ekki séð ástæðu til að breyta um skoðun.“

Aðildarviðræður eða samningaviðræður?

Hólmfríður spurði hvort ekki væri vert að sjá samninginn en Sigurður Kári sagði hann fyrir framan okkur. „Ég er ósammála Þorgerði Katrínu um að þetta séu samningaviðræður í hefðbundnum skilningi.“

Hann sagði að aðildarviðræðurnar gengju ekki út á að menn væru að semja sín á milli. Lönd gangi inn í Evrópusambandið. Mögulega sé verið að semja um einhverjar tímabundnar tilslakanir en í grundvallaratriðum gangi þetta út á að lönd gangi inn í Evrópubandalagið og taki upp þær reglur sem þar gilda.

„Það liggur fyrir hvað felst í atkvæðagreiðslunni. Það er mín skoðun.“

Hjörtur var sammála en hann sagðist hafa verið að tala um Evrópubandalagið nú í aldarfjórðung. Það sé engin upplýsingaóreiða, það liggi fyrir í öllum meginatriðum hvernig samningurinn verði. 

„Þetta er ekki leyniklúbbur og ef þú þarft meiri upplýsingar þá þarftu bara að kynna þér málin.“ Það verði dómínóáhrif ef það eigi að veita Íslandi einhverjar tilslakanir, því önnur lönd muni ekki sætta sig við það. „Og það má ekki mismuna ríkjum.“

Gauti dáðist að Sigurði Kára sem ekki hefur skipt um skoðun í tuttugu ár. Sjálfur segist hann alltaf vera að skipta um skoðun, í ljósi nýrra upplýsinga.vísir/lýður valberg

Gauti, sem búsettur er í Bandaríkjunum, sagðist hafa lesið í grein eftir mann sem aðstoðaði íslensku samninganefndina á sínum tíma að víst væru undanþágur, svo sem varðandi fiskveiðar, og ef í aðildarsamningnum væri talað um undanþágur þá væri slíkt meginregla. Fyrir því séu skýr lagafordæmi.

„Ég skil Sigga, ef þú heldur að það séu engar líkur á hagstæðum samningi þá segirðu nei. Örugglega er rétt að það er lítið um undanþágur en það hefur verið vegna þess að mest hafa þetta verið austantjaldslönd sem hafa verið að ganga inn í Evrópubandalagið.“

Gott að búa á Íslandi en getur það orðið betra?

Gauti sagði Ísland lýðræðisríki, það væri þegar hluti af vestrænu samstarfi og hér þyrfti enga aðlögun. Gauti sagðist ekkert skilja í því um hvað væri rætt því þetta væri ekkert aðalatriði máls. 

„Það eru góð og gild rök með og á móti.“

 Og Ísland sé í sterkari stöðu en Austur-Evrópuþjóðirnar þegar þær voru að semja um aðild. Bandalagið hafi mikinn áhuga á að fá Ísland inn núna.

Gréta María tilheyrir hópi fólks sem vill segja Já þann 29. ágúst en áskilur sér fullan rétt til að segja nei þegar og ef samningurinn liggur fyrir og hægt er að taka afstöðu til hans.

„Ástæðan er sú að við vitum ekki hvað er í boði eins og komið hefur fram hér,“ sagði Gréta María. Tímarnir breytast mjög mikið. Hún sagði Sigurð Kára hafa verið þessarar skoðunar í tuttugu ár en heimurinn breytist og fólk eigi að vita hvað er í boði. „Það er gott að búa á Íslandi en við vitum ekki hvort það gæti orðið betra,“ sagði Gréta María. Hún vildi treysta þjóðinni og ef það sé verra sem komi fram, eins og Nei-jararnir vilji meina, þá sé einfaldlega hægt að segja nei þegar þar að kemur. „Þá mun þjóðin hafna samningunum. Það er erfitt að segja nei við einhverju sem við vitum ekki hvað er.“

Enginn matseðill

Gréta María nefndi að fólk væri að sligast undan húsnæðiskostnaði en Sigurður Kári greip inn í og sagði ekkert fjallað um vexti eða húsnæðismarkað í aðildarviðræðunum. „Hvað viljið þið sjá?“ Gréta María sagði að það væri heildarpakki í boði og fólki hlyti að vera treystandi til að taka afstöðu til hans.

Hjörtur hvatti til þess að fólk kynnti sér einfaldlega reglur um Evrópubandalagið. Þar lægi þetta allt fyrir og algjör óþarfi að fara í aðildarviðræður til að komast að því.vísir/lýður valberg

Sigurður Kári gaf ekki mikið fyrir þetta og sagði að það væri eins og fólk væri að skrá sig til leiks í námskeið í Evrópurétti. Þetta væri ekki eins og matseðill heldur gildi grundvallarlög í Evrópusambandinu. Hann sagði ljóst að til að mynda Hollendingar myndu ekki sætta sig við neinar undanþágur fyrir Ísland.

Gauti sagði það stórkostlegt ofmat á þeim ummælum sem fram hafa komið, þar séu lobbýistar á ferð sem eru að skapa sér samningsstöðu. Ekkert væri hægt að segja til um það á þessu stigi.

„Hvað óttist þið?“

Hjörtur ítrekaði að menn ættu að kynna sér gögn Evrópusambandsins. Viðræðurnar snúist um aðlögun og engin gögn bendi til þess annars. „Bent hefur verið á að stjórnsýslan sé of lítil. Það þarf að þenja út báknið, þetta kemur fram í gögnunum.“ Þetta taldi Hjörtur kjarna málsins.

Gréta María sagði að nú væri verið að kjósa um að klára samningana. „Hvað óttist þið?“ spurði hún. Jú, skýrsla frá Hagstofu Íslands benti til þess að það þyrfti að bæta við einum fimmtíu stöðugildum en af hverju er þjóðinni ekki treystandi til að segja nei þegar að því kemur?

Sigurður Kári Kristjánsson sagði að hann hefði barist fyrir þjóðaratkvæðagreiðslum lengi og hann hefði lengi haft þá skoðun að ganga ekki í Evrópubandalagið. Hann kallaði eftir breiðari umræðu en svo að hún snerist um verð á mjólkurfernum og pítsasneiðum. 

Efast um að samningurinn komi nokkurn tímann fyrir augu þjóðarinnar

Sigurður Kári sagði að miðað við þær forsendur sem Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín hefðu lagt til grundvallar þá teldi hann ólíklegt að við fengjum nokkru sinni að sjá þennan samning því vafasamt væri að það næðist að klára hann fyrir næstu kosningar og það væri afar ólíklegt að aðildarríki Evrópubandalagsins fallist á undanþágur fyrir Ísland. „Og þær Kristrún og Þorgerður Katrín hafa sagt að þær muni ekki bera á borð fyrir þjóðina samning sem felur í sér afsal á auðlindum þjóðarinnar.“

Gréta María sagðist að þjóðin væri fullfær um að meta það, þegar samningur lægi fyrir, hvað hún ætti að gera. vísir/lýður valberg

Gauti sagðist sammála um að verið væri að ræða stærra mál en svo að það snerist um mjólkurfernur, við værum að tala tuttugu til þrjátíu ár fram í tímann og það skipti máli fyrir börnin okkar. Gauti nefndi að Noregur hefði farið í tvennar samningaviðræður en Hjörtur sagði að það hefði verið áður en til kom krafa frá Evrópubandalaginu um að þar væri um aðildarviðræður að ræða.

Huglægt mat

Gauti sagðist hafa það frá tólf manna nefnd sem Noregur skipaði að stór hluti evrópsks lagaverks væri þegar gildandi fyrir Noreg og hann ætlaði að það sama gilti um Ísland. En Gauta fannst þessi atriði ekki hluti af stóru myndinni.

Sigurður Kári sagði það vafasamt að fullyrða að Ísland væri þegar búið að taka upp 75 prósent lagaverks Evrópubandalagsins, það ætti ekki við um sjávarútveg, landbúnað, ekki mynt, ekki tollbandalagið og svo framvegis. Gauti sagði þetta ekki sitt mat heldur þeirra tólf einstaklinga sem skipuðu norsku sérfræðinganefndina.

Hjörtur sagði það mat huglægt og hann þyrfti varla að útskýra hvað í því fælist. 

Hnúturinn pikkfastur

Þarna var umræðan hlaupin í hnút og hinn röggsami stjórnandi greip inn í. Hún sagði margt hafa breyst á síðustu árum, ekki síst í alþjóðaumhverfinu, og hvort ekki væri akkúrat rétti tíminn til að staldra við og spyrja okkur hvar við ættum heima?

Sigurður Kári sagði Ísland í úrvalsdeild, hvergi á byggðu bóli væru lífskjör betri og af hverju að vera að hætta því með því að færa sig niður um deild?vísir/lýður valberg

Hjörtur spurði hvað Evrópusambandið væri. Það lægi fyrir að lokamarkmið þess væri að verða eitt sambandsríki, að koma til að mynda kola- og stálframleiðslu undir yfirþjóðlegt vald. Sigurður Kári sagði sjálfsagt mál að setjast niður og spyrja hvert við vildum stefna til framtíðar. En það væri ekki slæm staða sem við Íslendingum blasti: „Lífskjör eru hvergi betri, við erum með tekjuhæstu þjóðum heims, kaupmáttur hvergi meiri, jafnrétti er hvergi meira, fátækt lítil … og framtíðin er björt. Þetta er staðan sem við erum í.“

Sigurður Kári sagði að samkvæmt alþjóðlegum mælikvörðum stæðum við fremst meðal þjóða, við værum með öll trompin og hvers vegna ættum við þá að vilja ganga í Evrópubandalagið? „Við erum í Meistaradeildinni, Evrópusambandið er í utandeildinni, hvers vegna eigum við að færa okkur niður milli deilda?“

Hagvísar bendi í allt aðra átt

Nú gat hagfræðingurinn Gauti ekki orða bundist og sagði súrrealískt að heyra þessi ummæli. Einföldun umræðunnar væri með miklum ósköpum og við sveifluðumst frá því að vera meðal fátækari þjóða yfir í að vera sú ríkasta. 

„En að Ísland sé í meistaradeild og Evrópusambandið í sinni núverandi mynd sé einhvers staðar um miðja aðra deildina. Þetta stenst ekki nokkra fræðilega skoðun.“

Gauti nefndi að hann dáðist að Sigurði Kára fyrir að hafa aldrei breytt um skoðun, sjálfur væri hann alltaf að breyta um skoðun. En hann sagðist þjálfaður í að rýna í hagtölur og þar gleymdist einatt að deila í með fólksfjölda. Því sé haldið fram að hagvöxtur sé hér um níu prósent en 1,4 í Evrópu. Það sé afar villandi í umræðunni að tala um Evrópusambandið sem eina heild, að það sé svo skuldugt. Þar eru 27 sjálfstæð ríki, og að það sé verið að halda þessu fram, að taka saman heildarskuldsetningu ríkja, þá eru 12 ríki af þessum 27 sem eru með minni skuldir en við. Skoði fólk hagvísa rétt þá sé það svona.

Eins og lesendur ættu að vera farnir að sjá voru umræður afar fjörlegar og má horfa á þáttinn í heild sinni hér ofar. En Hólmfríður stjórnandi varð í lokin að horfast í augu við að henni hafði ekki tekist hið ómögulega, að leiða málið til lykta í eitt skipti fyrir öll.

Fréttin hefur verið uppfærð.

#esb #hart #tekist #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262912900d/hart-tekist-a-um-esb

📰 Aðrar fréttir

Tillögur Bandaríkjamanna sagðar innihalda „áhrifaríkar lausnir“
📅 06.09.2026 👁️ 0
Tillögur Bandaríkjamanna sagðar innihalda „áhrifaríkar lausnir“
Þær tillögur sem erindrekar Bandaríkjastjórnar lögðu fyrir úkraínska ráðamenn í dag gætu raunverulega orðið til að ljúka innrásarstríðinu að sögn tals...
Fimm látnir eftir að flugvél fór útaf flugbraut í lendingu
📅 06.09.2026 👁️ 0
Fimm látnir eftir að flugvél fór útaf flugbraut í lendingu
Að minnsta kosti fimm eru látnir og aðrir fimm slasaðir eftir að flutningaflugvél tæknirisans Amazon fór út af enda flugbrautar í lendingu á alþjóðafl...
„Merki­legt að sjá hvað aula­aftur­haldinu dettur næst í hug“ - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 0
„Merki­legt að sjá hvað aula­aftur­haldinu dettur næst í hug“ - Vísir
Ummæli Magnúsar Árna Skjöld Magnússonar koma í kjölfar viðtals við Hannes Hólmstein Gissurarson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, í Spursmálum ...
„Bjuggumst ekki við því að Ísraelsher yrði svona illskeyttur í garð hjálparstarfsmanna“
📅 06.09.2026 👁️ 1
„Bjuggumst ekki við því að Ísraelsher yrði svona illskeyttur í garð hjálparstarfsmanna“
Grimmd Ísraelshers á Gaza og vanvirðing við alþjóðalög komu Younis Al Khatib, forseta Rauða hálfmánans í Palestínu, á óvart þrátt fyrir að hafa upplif...
Maryam Moshiri: BBC News presenter reveals she has blood cancer
📅 06.09.2026 👁️ 1
Maryam Moshiri: BBC News presenter reveals she has blood cancer
Maryam Moshiri tells the BBC she wanted to reveal her diagnosis to raise awareness about the cancer.
Vilja fjarlægja klettinn af slysstaðnum á Krýsuvíkurvegi
📅 06.09.2026 👁️ 1
Vilja fjarlægja klettinn af slysstaðnum á Krýsuvíkurvegi
Þrjú ungmenni létust í bílslysi á Krýsuvíkurvegi aðfaranótt mánudags. Nú vill Vegagerðin láta fjarlægja klett af slysstað, en banaslys varð á nákvæmle...
Minnst fimm látnir eftir flug­slys í Flórída - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Minnst fimm látnir eftir flug­slys í Flórída - Vísir
Bandarísk flugmálayfirvöld segja að Boeing 767-þotan hafi farið út af flugbrautinni um klukkan 14 að staðartíma, eða um 18 á íslenskum tíma. Sky News ...
Svarar Hannesi fullum hálsi - „Er ekki að „leika mér” með þennan pening til að komast til útlanda“
📅 06.09.2026 👁️ 1
Svarar Hannesi fullum hálsi - „Er ekki að „leika mér” með þennan pening til að komast til útlanda“
0Magnús Árni Skjöld Magnússon, prófessor við Háskólann á Bifröst og formaður Evrópuhreyfingarinnar, segir ekkert athugavert um að hann hafi hltið Jean...
Lögboðin þjónusta þyrfti að víkja eigi Múlaþing að bjarga Valaskjálf
📅 06.09.2026 👁️ 1
Lögboðin þjónusta þyrfti að víkja eigi Múlaþing að bjarga Valaskjálf
Afstaða sveitarstjórnar Múlaþings til framtíðar samkomusalarins í Valaskjálf á Egilsstöðum liggur ekki fyrir.Íbúafundur var á Egilsstöðum í kvöld. Á f...
Kort eigi að sýna heiminn eins og hann er
📅 06.09.2026 👁️ 1
Kort eigi að sýna heiminn eins og hann er
Sum lönd stækka og önnur minnka á nýju heimskorti eftir að ályktun um það var samþykkt á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Landfræðingur segir landa...
Eftir­förin endaði með hvelli þegar hópur lög­reglu­manna skellti sér á öku­manninn - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Eftir­förin endaði með hvelli þegar hópur lög­reglu­manna skellti sér á öku­manninn - Vísir
Talsverður viðbúnaður var á svæðinu og heyrðust sírenur óma víða um borgina. Ökumaðurinn var að lokum handtekinn en hann er grunaður um að hafa ekið u...
Eftir­förin endaði með hvelli - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Eftir­förin endaði með hvelli - Vísir
Talsverður viðbúnaður var á svæðinu og heyrðust sírenur óma víða um borgina á meðan á eftirför stóð. Ökumaðurinn var að lokum handtekinn en hann er gr...
Gætu orðið söguleg kosningaúrslit í Þýskalandi
📅 06.09.2026 👁️ 1
Gætu orðið söguleg kosningaúrslit í Þýskalandi
Þýski harðlínuflokkurinn AfD meira en tvöfaldar fylgi í sambandsríkinu Saxlandi-Anhalt samkvæmt útgönguspám.Flokknum er spáð 44,5% fylgi og Kristilegu...
Úkraína og Rússland þurfa bæði að gefa eftir ef friður á að nást
📅 06.09.2026 👁️ 1
Úkraína og Rússland þurfa bæði að gefa eftir ef friður á að nást
Bæði Úkraína og Rússland verða að slá af ítrustu kröfum sínum ef friður á að nást milli ríkjanna. Þetta sagði Steve Witkoff, annar sérlegra erindreka ...
„Svona er bara lit­róf mann­lífsins“ - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
„Svona er bara lit­róf mann­lífsins“ - Vísir
„Okkur þykir alltaf leiðinlegt þegar ökumenn lenda í vandræðum á bílunum okkar en ég get ekkert tjáð mig sérstaklega um þetta mál, segir Kristín Hrefn...
Vilja fjarlægja klett af slysstað
📅 06.09.2026 👁️ 1
Vilja fjarlægja klett af slysstað
Vegagerðin vill láta fjarlægja klettinn við Krýsuvíkurveg þar sem þrjú ungmenni létu lífið í bílslysi aðfaranótt mánudags. Banaslys varð á nákvæmlega ...
Ökumanns köfunarbíls leitað erlendis – köfuðu einn og hálfan kílómetra eftir efnunum
📅 06.09.2026 👁️ 1
Ökumanns köfunarbíls leitað erlendis – köfuðu einn og hálfan kílómetra eftir efnunum
Í fyrri hluta júnímánaðar var bíl ekið út úr ferjunni Norrænu og í land í Seyðisfjarðarhöfn, eftir siglingu frá Hirtshals í Danmörku. Íslenska lögregl...
50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? - Vísir
Í raun erum við að tala um leynilega léttinn: Þar sem þó samviskan okkar sem foreldri spyr: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Í Áskoru...
Margrét Danadrottning lögð inn á spítala
📅 06.09.2026 👁️ 1
Margrét Danadrottning lögð inn á spítala
Margrét Þórhildur Danadrottning hefur verið lögð inn á Ríkissjúkrahúsið í Kaupmannahöfn. Á vef danska ríkisútvarpsins, DR, er haft eftir konungsfjölsk...
Flúði lögreglu á Hopp-deilibíl og skemmdi bíla
📅 06.09.2026 👁️ 1
Flúði lögreglu á Hopp-deilibíl og skemmdi bíla
Lögregla veitti ökumanni Hopp-deilibíls eftirför frá Lágmúla upp í Víðidal í Reykjavík stuttu eftir hádegi í dag. Ökumaðurinn ók utan í að minnsta kos...
Útgönguspár benda til stór­sigurs AfD - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Útgönguspár benda til stór­sigurs AfD - Vísir
Miðað við kannanir var flokkurinn að mælast með um 40 prósenta fylgi en útgönguspár segja að flokkurinn muni sigra með um 44 prósent atkvæða. Flokkuri...
Útgönguspár spá AfD stórsigri í Saxlandi-Anhalt
📅 06.09.2026 👁️ 1
Útgönguspár spá AfD stórsigri í Saxlandi-Anhalt
Kjörstöðum hefur verið lokað í þýska sambandsríkinu Saxlandi-Anhalt. Samkvæmt útgönguspám þýska ríkisútvarpsins hefur harðlínuflokkurinn Alternative f...
Stefnir í stórsigur AfD í Saxlandi-Anhalt
📅 06.09.2026 👁️ 1
Stefnir í stórsigur AfD í Saxlandi-Anhalt
Kjörstöðum hefur verið lokað í þýska sambandsríkinu Saxlandi-Anhalt. Samkvæmt útgönguspám þýska ríkisútvarpsins hefur harðlínuflokkurinn Alternative f...
Iran warns of 'faster, heavier, more painful response' to US attacks
📅 06.09.2026 👁️ 1
Iran warns of 'faster, heavier, more painful response' to US attacks
The comments came a day after Washington said it had struck Iranian oil tankers in response to Tehran's attacks on US warships in the region.
German far-right set for big win in eastern state of Saxony-Anhalt - projections
📅 06.09.2026 👁️ 1
German far-right set for big win in eastern state of Saxony-Anhalt - projections
Germany's AfD has hailed a "historic result" and is projected to win 44.5% of the vote, far ahead of the conservative CDU on 18.5%.
German far-right set for big win in eastern state of Saxony-Anhalt, projections show
📅 06.09.2026 👁️ 1
German far-right set for big win in eastern state of Saxony-Anhalt, projections show
Germany's AfD has hailed a "historic result" and is projected to win more than 44% of the vote, far ahead of the conservative CDU on 18.4%.
Germany's far-right AfD set for big win in eastern state, just short of majority
📅 06.09.2026 👁️ 1
Germany's far-right AfD set for big win in eastern state, just short of majority
Germany's AfD has hailed a "historic result" and is projected to win 44% of the vote, far ahead of the conservatives on 17%.
Margrét Þór­hildur lögð inn á sjúkra­hús - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 2
Margrét Þór­hildur lögð inn á sjúkra­hús - Vísir
Margrét Þórhildur II Danadrottning hefur verið lögð inn á sjúkrahús. Hún hafði fundið fyrir vanlíðan samkvæmt upplýsingum frá konungsfjölskyldunni.
140 migrants in single dinghy rescued in English Channel
📅 06.09.2026 👁️ 1
140 migrants in single dinghy rescued in English Channel
They were transferred onto two lifeboats and taken to shore in the UK.
Björn Jón skrifar: Ný þjóðernisleg vakning
📅 06.09.2026 👁️ 1
Björn Jón skrifar: Ný þjóðernisleg vakning
Mynd Á dögunum kom út bókin Den usynlige ånd eftir Alex Vanopslagh, forma
Sífellt fleiri börn á aldrinum 10-14 ára grunuð um alvarleg ofbeldisbrot á undanförnum árum
📅 06.09.2026 👁️ 1
Sífellt fleiri börn á aldrinum 10-14 ára grunuð um alvarleg ofbeldisbrot á undanförnum árum
Sífellt fleiri börn á aldrinum 10-14 ára grunuð um alvarleg ofbeldisbrot á undanförnum árum Fréttin6. september 2026ErlentLeave a Comment Sífellt flei...
„Nánast útilokað“ að koma í veg fyrir útbreiðslu fíkniefna á Litla-Hrauni
📅 06.09.2026 👁️ 2
„Nánast útilokað“ að koma í veg fyrir útbreiðslu fíkniefna á Litla-Hrauni
Á síðasta ári voru 71 brot gegn reglum um vímuefni og lyf í fangelsum skráð hjá Fangelsismálastofnun. Fjöldinn er þó minni en árin á undan og hefur fa...
Eitt allra krúttlegasta mót ársins - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 2
Eitt allra krúttlegasta mót ársins - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu um mótið en þar kom fram að yngstu börnin hófu mótið á sparkhjólum og svo koll af kolli eftir aldri o...
Öku­maður bif­hjóls flaug út af Kvart­mílu­brautinni - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 2
Öku­maður bif­hjóls flaug út af Kvart­mílu­brautinni - Vísir
Þrír sjúkraflutningarbílar voru kallaðir til á vettvang og var maðurinn fluttur á slysadeild. Þetta staðfestir Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hj...
Jamaican officials to bring reparations petition to King Charles
📅 06.09.2026 👁️ 2
Jamaican officials to bring reparations petition to King Charles
The King will be asked to refer three questions to the Judicial Committee of the Privy Council.
Gríðar­leg aukning í sölu á fánastöngum - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 2
Gríðar­leg aukning í sölu á fánastöngum - Vísir
Eftir að fánalögum var breytt á Alþingi í vor mátti íslenski fáninn blakta á húni allan sólarhringinn frá 1. maí til 15. ágúst, en fyrir breytinguna m...
Var sagt að hún væri of ljót til að birta sjálfsmyndir á netinu og ávað að snúa vörn í sókn
📅 06.09.2026 👁️ 2
Var sagt að hún væri of ljót til að birta sjálfsmyndir á netinu og ávað að snúa vörn í sókn
Árið 2019 birti CNN aðsenda grein sem sjálfstætt starfandi blaðakonan Melissa Blake hafði ritað um Donald Trump Bandaríkjaforseta. Greinin setti netið...
Von der Leyen vill nota sparnað Evrópubúa í verkefni innan ESB
📅 06.09.2026 👁️ 2
Von der Leyen vill nota sparnað Evrópubúa í verkefni innan ESB
Von der Leyen vill nota sparnað Evrópubúa í verkefni innan ESB Fréttin6. september 2026Erlent, EvrópusambandiðLeave a Comment Ursula von der Leyen, fo...
Mótorhjólaslys í Hafnarfirði
📅 06.09.2026 👁️ 2
Mótorhjólaslys í Hafnarfirði
Maður missti stjórn á mótorhjóli á Kvartmílubrautinni í Hafnarfirði á þriðja tímanum í dag.Samkvæmt varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu ...
Fjöldi sólskinsstunda vel yfir meðallagi í annars köldum ágúst
📅 06.09.2026 👁️ 2
Fjöldi sólskinsstunda vel yfir meðallagi í annars köldum ágúst
Ágústmánuður var tiltölulega kaldur. Það var úrkomusamt á norðan- og vestanverðu landinu en þurrara á suður- og austurhluta landsins. Norðan- og norðv...
Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á há­lendið - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 2
Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á há­lendið - Vísir
Þetta staðfestir Ásgeir Erlingsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar en hann segir vettvang slyssins vera við Blautulón við Skælinga sem eru á fj...
Dozens feared trapped in collapsed building in Delhi
📅 06.09.2026 👁️ 1
Dozens feared trapped in collapsed building in Delhi
As many as 50 people are thought to have been inside the five-storey hostel when it came down.
Mætt til Græn­lands með pyngju fulla af peningum - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 2
Mætt til Græn­lands með pyngju fulla af peningum - Vísir
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, heimsækir landið í dag ásamt Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur. Þær lentu í höfuðbor...
Áhrifavaldur lést eftir að hann lét sprauta fylliefni í lim sinn
📅 06.09.2026 👁️ 2
Áhrifavaldur lést eftir að hann lét sprauta fylliefni í lim sinn
Bresk-nígeríski áhrifavaldurinn Igho „Tiny“ Ubiribo, betur þekktur sem Ego, lést á Taílandi í mars eftir að hann lét sprauta um 40 millilítrum af fyll...
Orðið á götunni: Dæmdur ritþjófur ræðst á fræðimenn
📅 06.09.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Dæmdur ritþjófur ræðst á fræðimenn
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, sem verið hefur á framfæri íslensku þjóðarinnar í gegnum Sjálfstæðisflokkinn og hlotið sporslur frá auðmönnum og kvótak...
Umferðarslys á Breiðholtsbraut
📅 06.09.2026 👁️ 2
Umferðarslys á Breiðholtsbraut
Umferðarslys átti sér stað á Breiðholtsbraut skammt frá Norðlingaholti rétt fyrir klukkan eitt. Þetta kemur fram á Vísi en þar segir að slysið hafi át...
Fundu 255 ára gamlan skilding Sveins Pálssonar í Öræfum
📅 06.09.2026 👁️ 2
Fundu 255 ára gamlan skilding Sveins Pálssonar í Öræfum
Það var heldur óvenjulegur fundur sem beið gönguhóps sem var á ferð um Kvísker í Öræfum í sumar. Skildingur sem geymdur hafði verið inni í vörðu í 232...
Banda­ríkja­menn sendu ekki skip til Ís­lands - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 2
Banda­ríkja­menn sendu ekki skip til Ís­lands - Vísir
„Já, Bandaríkin voru ekki með neinar flugvélar eða skip í Norður-Víkingi í ár,“ staðfestir ofurstinn Martin O'Donnell, háttsettur talsmaður Atlantshaf...
Ekkert óeðlilegt að ríkið sé hluti af samtalinu
📅 06.09.2026 👁️ 1
Ekkert óeðlilegt að ríkið sé hluti af samtalinu
Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra segir að ráðuneytið hafi verið í viðræðum við aðila vinnumarkaðarins síðan í vor, þegar ljóst va...
„Af hverju situr þú þá hér í þessu láglaunastarfi?“
📅 06.09.2026 👁️ 2
„Af hverju situr þú þá hér í þessu láglaunastarfi?“
„Af hverju situr þú þá hér í þessu láglaunastarfi?“ Þóra Jakobína Ol­sen Hrafns­dótt­ir fékk spurn­ingu sem hún gat ekki svar­að, fór heim og íhug­aði...