Harðar deilur innan klerka­stjórnarinnar - Vísir

Harðar deilur innan klerka­stjórnarinnar - Vísir

Harðar deilur innan klerka­stjórnarinnar - Vísir

Harðlínumenn innan stjórnvalda í Íran hafa sakað Masoud Pezeshkian, forseta, og Abbas Araghchi, utanríkisráðherra, um að reyna að taka völdin af nýjum æðstaklerki Íran, sem hefur ekki sést opinberlega síðan stríðið hófst, og leiðtogum byltingarvarðarins sem stjórna með honum.

Bandaríkjamenn hættu árásum á Íran um síðustu helgi, eftir tæplega tvær vikur af daglegum árásum sem hófust eftir að vopnahlé gaf eftir. Í aðdraganda þeirrar ákvarðanar lýsti Trump því yfir að hann væri að íhuga að auka umfang árása gegn Íran talsvert.

Á föstudaginn fundaði hann þó með ráðgjöfum sínum og herforingjum en margir á þeim fundi eru sagðir hafa lýst yfir áhyggjum af stöðunni og dregið í efa að frekari árásir myndu skila tilætluðum árangri.

Þá töluðu herforingjar um áhyggjur af því hve mikið væri búið að ganga á birgðir Bandaríkjamanna af flugskeytum í loftvarnarkerfi, vegna skotflauga og drónaárása Írana á nágranna ríki sín og bandaríska hermenn á svæðinu.

Því ákvað Trump að hætta árásum með því markmiði að reyna að liðka fyrir viðræðum. Sá friður entist ekki lengi.

Sjá einnig: „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að árásirnar á Hormússundi og í Jórdaníu hefðu verið gerðar af „öðrum hópi“ en hans fólk væri í viðræðum við. Hann sagðist þegar hafa fengið afsökunarbeiðni en þrátt fyrir það þyrftu Bandaríkin að svara fyrir sig.

Hvaða „hópa“ Trump var að tala um fór hann ekki yfir en það er ljóst að ráðamenn í Íran eru ekki sammála um viðræður við Bandaríkjamenn og áframhaldið í átökunum sem Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu í febrúar.

Stuðningsmenn klerkastjórnarinnar á götum Teheran í vikunni.AP/Vahid Salemi

Utanríkisráðherrann grýttur í jarðarför

Ali Khamenei, fyrrverandi æðstiklerkur Íran, var felldur í árásum í upphafi stríðsins. Sonur hans, Mojtaba Khamenei, tók við af föður sínum en hann hefur ekki sést síðan þá og er sagður hafa særst í árásinni sem faðir hans og fleiri fjölskyldumeðlimir dóu í.

Mojtaba er sagður meiri harðlínumaður en faðir hans og er af Bandaríkjamönnum talinn hafa meiri áhuga á því að koma upp kjarnorkuvopnum.

Hann er einnig sagður hafa minni ítök en faðir hans hafði en herforingjar og aðrir valdamiklir menn, sem flestir tengjast byltingarverði Íran, taka flestar ákvarðanir sem nýi æðstiklerkurinn samþykkir svo.

Byltingarvörðurinn spilaði stóra rullu í því að koma Mojtaba Khamenei til valda á sínum tíma.

Blaðamaður New York Times, sem fékk að sækja Íran heim fyrr í mánuðinum og fylgjast með jarðarför Ali Khamenei, í mjög svo stýrðri ferð, sagðist hafa séð Írana kalla eftir hefnd vegna dauða Ali Khamenei. Hann sá einnig mótmælendur veitast að forseta og utanríkisráðherra Íran vegna þess að þeir tækju þátt í viðræðum við Bandaríkjamenn.

Þetta fólk hafði ekki áhuga á því að ræða við Bandaríkjamenn og kallaði eftir Donald Trump. Utanríkisráðherrann var grýttur og þurfti að flýja vegna þessa fólks.

Var leyft að sjá deilurnar

Abdi Latif Dahir, áðurnefndur blaðamaður, sagði í nýlegum hlaðvarpsþætti NYT að það að hann hafi í raun fengið að sjá þetta sé til marks um deilur meðal æðstu stjórnenda Íran.

Innan stjórnvalda í Íran séu miklir harðlínumenn sem vilji hefnd.

Blaðamaður CNN sem var einnig viðstaddur jarðarförina sagði harðlínumenn ganga hart fram gegn öðrum ráðamönnum og jafnvel hafa hótað því að gert yrði valdarán ef samið yrði um frið við Bandaríkjamenn.

Harðlínumennirnir hafa þar að auki sakað forsetann, utanríkisráðherrann og aðra um að reyna að taka völd í Íran í fjarveru nýja æðstaklerksins.

Í samtali við CNN sagði sérfræðingur í málefnum Íran að harðlínumennirnir væru tiltölulega fámennir en þeir væru áhrifamiklir og sætu í mikilvægum embættum í Íran. Það gæti reynst forsetanum erfitt að jaðarsetja þá.

Kona gengur hjá veggmynd af Ali Khamenei, fyrrverandi æðstaklerki Íran, í Teheran.AP/Vahid Salemi

Árásirnar komu forsetanum á óvart

Annar starfsmaður NYT, kona sem hefur lengi sérhæft sig í málefnum Íran, sagði heimildarmenn sína hafa sagt sér að árásirnar á þriðjudaginn hefðu komið forsetanum, utanríkisráðherranum og öðrum á óvart.

Harðlínumenn innan byltingarvarðarins hefðu gert árásirnar og þeir hefðu áhuga á að halda stríðinu áfram.

Í Íran var, samkvæmt Farnas Fassihi, litið á árásirnar sem tilraun til að stöðva viðræður við Bandaríkjamenn.

Hún sagði í áðurnefndum hlaðvarpsþætti að ef þessar fregnir væru réttar, gæti það haft miklar afleiðingar. Velti hún vöngum yfir því hvað það að harðlínumenn væru tilbúnir til að taka svo stórt skref án samráðs við stjórnvöld markaði þegar kæmi að sundrung meðal almennra hermanna í Íran.

Þetta benti til þess að ríkisstjórn Íran og leiðtogar ríkisins væru í stríði sín á milli en ekki eingöngu í stríði við Bandaríkin.

Fassihi sagði að nú væri ekki hægt að líta á deilurnar sem stigmögnun á langvarandi deilum í Íran, milli þeirra sem vilja halda hugmyndafræði klerkastjórnarinnar annars vegar og þeirra sem vilja umbætur hins vegar.

Þessar deilur væru enn til staðar en núna væru einnig miklar deilur innan klerkastjórnarinnar sjálfrar. Það er að segja, á milli mannanna sem stjórna landinu að miklu leyti með Mojtaba Khamenei en margir þeirra eru herforingjar í byltingarverðinum.

Ein fylkingin væri skipuð hinum öfgafyllstu harðlínumönnum. Það væri tiltölulega lítill minnihluti þjóðarinnar sem sú fylking stæði fyrir en það væri ekki hægt að jaðarsetja þennan hóp. Fólkið væri alltaf til í að koma saman í milljónatali til að styðja klerkastjórnina.

Fassihi segir þennan hlut þjóðarinnar grunninn að klerkastjórn ríkisins og giskar á að hópurinn sé myndaður af um tíu til tuttugu prósentum þjóðarinnar. Þessi fylking vill ekki eiga í nokkrum samskiptum við Bandaríkjamenn og vill að gert sé út af við Ísrael, svo eitthvað sé nefnt.

Kona með mynd af Mojtaba Khamenei, nýjum æðstaklerki Íran.AP/Vahid Salemi

Vilja nýta þrýtsting í viðræðum

Hin fylkingin er skipuð leiðtogum ríkisstjórnar landsins og nokkrum valdamiklum herforingjum í byltingarverðinum. Þeir vilja nýta árangur þeirra í að standa af sér árásir Bandaríkjamanna og þann þrýsting sem þeim hefur tekist að skapa með árásum á skip á Hormússundi og nágrannaríki sín í viðræðum við Bandaríkjamenn.

Þessi hópur telur Írana ekki geta barist eða staðið af sér árásirnar að eilífu og að það að semja feli ekki sjálfkrafa í sér tap gegn Bandaríkjunum.

Enn fremur segir Fassihi að það að Mojtaba Khamenei sé í felum, geti ekki beitt sér almennilega og hafi aldrei verið jafn valdamikill og faðir hans, hafi aukið á þessar deilur. Tómarúm hafi skapast innan klerkastjórnarinnar og þar hafi deilurnar stigmagnast.

Báðar fylkingar segjast hafa stuðning æðstaklerksins en hann getur ekki stigið fram og tekið afgerandi afstöðu af ótta við að vera ráðinn af dögum.

#deilur #harðar #innan #klerkastjórnarinnar #vísir

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262915356d/hardar-deilur-innan-klerkastjornarinnar

📰 Aðrar fréttir

Trump skiptir um starfsmannastjóra Hvíta hússins
📅 06.11.2026 👁️ 1
Trump skiptir um starfsmannastjóra Hvíta hússins
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað Stephen Miller starfsmannastjóra Hvíta hússins frá og með mánudeginum. Forsetinn tilkynnti um þetta í færs...
Sam­þykktu van­traust á hendur stjórn­endum Cornell - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 1
Sam­þykktu van­traust á hendur stjórn­endum Cornell - Vísir
Bandarískir miðlar greina frá en konan, sem fer undir nafninu Jane Doe í fjölmiðlum, höfðaði einkamál gegn Cornell og bræðrafélaginu Chi Phi. Málið va...
With Stephen Miller pick, Trump readies for a battle
📅 06.11.2026 👁️ 1
With Stephen Miller pick, Trump readies for a battle
The US president's promotion of Miller, a loyal partisan firebrand to be his new chief of staff sets up likely clashes with Congress.
Nýjar ratsjárstöðvar eiga að greina skip sem gefa ekki upp staðsetningu
📅 06.11.2026 👁️ 2
Nýjar ratsjárstöðvar eiga að greina skip sem gefa ekki upp staðsetningu
Landhelgisgæslan hefur sett upp ratsjárstöðvar á fjórum stöðum sem eiga að efla eftirlit á hafsvæðum nærri landi og fylgjast með skipaumferð sem gefa ...
Kastaði upp þegar hún heyrði dóminn yfir manninum sem stakk hana 22 sinnum
📅 06.11.2026 👁️ 1
Kastaði upp þegar hún heyrði dóminn yfir manninum sem stakk hana 22 sinnum
Ung móðir í New York kastaði upp af geðshræringu þegar hún heyrði hversu vægan fangelsisdóm maðurinn sem stakk hana 22 sinnum með hnífi hafði hlotið. ...
„Svína­bændur eiga að fara að lögum“ - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
„Svína­bændur eiga að fara að lögum“ - Vísir
Einar Logi Pétursson hefur birt umdeild myndskeið úr tveimur svínabúum Stjörnugríss þar sem meðal annars mátti sjá dauð svín og með áverka.  Sjá einni...
Skilnaðardeilur fóru fyrir dóm því maðurinn taldi það bersýnilega ósanngjarnt að skipta eignum til helminga
📅 06.11.2026 👁️ 1
Skilnaðardeilur fóru fyrir dóm því maðurinn taldi það bersýnilega ósanngjarnt að skipta eignum til helminga
Það er aldrei skemmtilegt að skilja, sérstaklega þegar deilt er um skiptingu eigna. Að meginreglu er eignum skipt í helminga eftir svokallaðri helming...
Waterford: Child, 6, dies weeks after arson attack on family home
📅 06.11.2026 👁️ 2
Waterford: Child, 6, dies weeks after arson attack on family home
The attack happened last month at the family home on the outskirts of Waterford in the Republic of Ireland.
Snjórinn féll á Dönsku kránni
📅 06.11.2026 👁️ 2
Snjórinn féll á Dönsku kránni
Sala á jólabjór Tuborg hófst í kvöld, sem er orðinn hluti af jólaundirbúningi margra. J-dagurinn, sem er stytting á julebryg dag, eða „jólabjórsdagur“...
Meghan's father Thomas Markle appears in court over child sex abuse material
📅 06.11.2026 👁️ 2
Meghan's father Thomas Markle appears in court over child sex abuse material
The 82-year-old was arrested in Florida after the FBI searched two Los Angeles-area storage units he rented.
Fölsuð gögn hafi verið lögð fram - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 1
Fölsuð gögn hafi verið lögð fram - Vísir
Garpur Elísabetarson og dóttir hans báru bæði vitni fyrr í vikunni þar sem þau greindu frá meintu umsáturseinelti af hálfu Írisar Helgu. Sögðu þau frá...
Hræðsla valdi lækkun á hlutabréfum
📅 06.11.2026 👁️ 4
Hræðsla valdi lækkun á hlutabréfum
Snorri Jakobsson hagfræðingur segir að hræðsla við hertar reglugerðir gagnvart gagnaverum og gervigreindarfyrirtækjum valdi fallinu sem varð á gengi b...
Björn Leví svarar fyrir sig og hjólar í þingmennina: „Þetta eru gersamlega vanhæfir einstaklingar“
📅 06.11.2026 👁️ 2
Björn Leví svarar fyrir sig og hjólar í þingmennina: „Þetta eru gersamlega vanhæfir einstaklingar“
Björn Leví Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, tekur upp hanskann fyrir Sjálfstæðismenn vegna þeirra fjölmörgu fyrirspurna sem Guðlaugur Þór Þór...
Óhugnanleg frásögn úr æsku Russell Brand – Faðirinn keypti vændiskonu handa honum
📅 06.11.2026 👁️ 3
Óhugnanleg frásögn úr æsku Russell Brand – Faðirinn keypti vændiskonu handa honum
Breski grínistinn og leikarinn Russell Brand, sem hefur verið sakfelldur fyrir alvarleg kynferðisbrot, var aðeins 17 ára þegar faðir hans keypti vændi...
MAST boðar rannsókn og gagnrýnir Einar Loga - „Aldrei réttlætanlegt með neinum hætti“
📅 06.11.2026 👁️ 3
MAST boðar rannsókn og gagnrýnir Einar Loga - „Aldrei réttlætanlegt með neinum hætti“
Einar Logi Pétursson, sem var handtekinn vegna innbrota og sleppinga dýra á nokkrum búum á Kjalarnesi, birti myndband úr innbrotinu í verksmiðju Stjör...
Líti ekki á and­lát dóttur sinnar sem slys - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Líti ekki á and­lát dóttur sinnar sem slys - Vísir
Er þetta meðal þess sem kemur fram í viðtali Heimildarinnar við foreldra Hönnuh, þau Samönthu og Gregory Lane.  Hannah Jane Large lést ásamt tveimur ö...
Hefja ákæruferli á hendur forseta vegna hruns banka
📅 06.11.2026 👁️ 2
Hefja ákæruferli á hendur forseta vegna hruns banka
Ólga og mótmæli hafa verið í Paragvæ í vikunni eftir að seðlabankinn tók yfir stærsta banka landsins, Ueno-banka.Nær helmingur Paragvæ-búa var í viðsk...
Formaður Dýraverndarsambandsins segir svínabúum bera að huga frekar að velferð dýra en hámarksframleiðslu
📅 06.11.2026 👁️ 4
Formaður Dýraverndarsambandsins segir svínabúum bera að huga frekar að velferð dýra en hámarksframleiðslu
Linda Karen Gunnarsdóttir formaður Dýraverndarsambands Íslands segir aðbúnað dýra á búi Stjörnugríss ekki standast núgildandi reglugerð um velferð sví...
Covid-19 bólu­efni landsins að fyrnast - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Covid-19 bólu­efni landsins að fyrnast - Vísir
Þetta kemur fram í farsóttarfréttum embættis landlæknis þar sem segir að þátttaka í bólusetningum gegn Covid-19 bólusetningum hafi farið minnkandi og ...
Ferðamenn nefna stærstu mistökin sem þeir gerðu á Íslandi – „Ég fór á hestbak án góðs brjóstahaldara“
📅 06.11.2026 👁️ 4
Ferðamenn nefna stærstu mistökin sem þeir gerðu á Íslandi – „Ég fór á hestbak án góðs brjóstahaldara“
Ferðalög eru ekki alltaf einföld. Sérstaklega ekki til framandi og fjarlægra landa þar sem aðstæður eru ekki eins og fólk er vant. Fyrir marga ferðame...
Vika með fimm tíma svefni lækkaði testósterón ungra karla um 10-15%
📅 06.11.2026 👁️ 5
Vika með fimm tíma svefni lækkaði testósterón ungra karla um 10-15%
Testósteróngildi að degi til lækkuðu um 10-15% hjá tíu ungum, heilbrigðum körlum sem fengu aðeins fimm tíma svigrúm til svefns á nóttu í tilraun við C...
Kourani er enn að hrella Íslendinga
📅 06.11.2026 👁️ 4
Kourani er enn að hrella Íslendinga
Sprengjuhótanir hafa borist opinberum stofnunum, leikskólum og fyrirtækjum undanfarna daga, en málin eru til rannsóknar lögreglu. RÚV greinir frá því ...
Prince Harry and five others seek to challenge Mail publisher privacy ruling
📅 06.11.2026 👁️ 2
Prince Harry and five others seek to challenge Mail publisher privacy ruling
The Duke of Sussex and other public figures lost a High Court case against the publisher of the Daily Mail and Mail on Sunday.
Trump ræður sér nýjan starfs­manna­stjóra - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Trump ræður sér nýjan starfs­manna­stjóra - Vísir
 „Mér er ánægja að tilkynna að Stephen Miller, núverandi aðstoðarstarfsmannastjóri Trump-stjórnarinnar og einn af mínum traustustu ráðgjöfum, verður s...
„Það skiptir engu máli hvort þú sért með fötlun eða ekki“
📅 06.11.2026 👁️ 3
„Það skiptir engu máli hvort þú sért með fötlun eða ekki“
Þær Katrín Lilja, Guðlaug Esther, Bergdís, Klara og Katrín Líf skipa danshópinn Dans án hindrana.Þær eru á aldrinum 11 til 18 ára, æfa hjá Danslistars...
Hélt að svínin myndu hlaupa glöð út - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Hélt að svínin myndu hlaupa glöð út - Vísir
Einar Logi hefur vakið mikla athygli eftir að hann birti tvö myndskeið úr svínabúum Stjörnugríss á Instagram og Facebook þar sem meðal annars má sjá d...
Dæmdur í 200 ára fangelsi fyrir að svelta 190 börn til dauða - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Dæmdur í 200 ára fangelsi fyrir að svelta 190 börn til dauða - Vísir
Saksóknarar höfðu farið fram á dauðarefsingu gegn Mackenzie og lífstíðardóm fyrir hina 28. Sum barnanna voru bundin á meðan þau sveltu til dauða. Yfir...
Reykjavíkurborg tók niður síðuna eftir fyrirspurn Nútímans – Efnið þó enn á lista fyrir miðstig
📅 06.11.2026 👁️ 5
Reykjavíkurborg tók niður síðuna eftir fyrirspurn Nútímans – Efnið þó enn á lista fyrir miðstig
Svo virðist sem Reykjavíkurborg hafi tekið niður síðu sem var til umfjöllunar hjá Nútímanum fyrr í dag, 6. nóvember. Síðan var opin snemma dagsins 6. ...
Trump names Stephen Miller as new  chief of staff, replacing Susie Wiles
📅 06.11.2026 👁️ 3
Trump names Stephen Miller as new chief of staff, replacing Susie Wiles
Miller, considered the architect of Trump's hard-line immigration policy, will move into the role on Monday.
Þrír dauðadæmdir fangar teknir af lífi sama daginn – Einn baðst afsökunar rétt fyrir dauða sinn
📅 06.11.2026 👁️ 2
Þrír dauðadæmdir fangar teknir af lífi sama daginn – Einn baðst afsökunar rétt fyrir dauða sinn
Þrír dauðadæmdir fangar voru teknir af lífi í Bandaríkjunum í gær, einn í Flórída, annar í Alabama og sá þriðji í Indiana.Slíkt er afar sjaldgæft en þ...
How match momentum, red cards, and late goals influence live betting on Spanish football
📅 06.11.2026 👁️ 3
How match momentum, red cards, and late goals influence live betting on Spanish football
Spanish football always gives us a captivating backdrop for live betting, with matches shifting between slow-built possession and high pressing, amid ...
Ánægð með að Chrome-bækurnar hafi verið læstar inni í skápum
📅 06.11.2026 👁️ 3
Ánægð með að Chrome-bækurnar hafi verið læstar inni í skápum
„Við í Hagaskóla ákváðum í sameiningu, það er að segja kennarar, á síðasta skólaári, að endurhugsa svolítið hvernig við notuðum upplýsingatækni eða tæ...
Orange weather warnings activated in Tenerife for heavy rain
📅 06.11.2026 👁️ 4
Orange weather warnings activated in Tenerife for heavy rain
Tenerife is facing an orange rain warning on Sunday as storm Bruna moves across the Canary Islands, with up to 100 millimetres of rain expected in 12 ...
Sprengdi krúttskalann og vill ekki búa í græna gímaldinu - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 4
Sprengdi krúttskalann og vill ekki búa í græna gímaldinu - Vísir
Svörin leyndu ekki á sér. Gulur og bleikur eru í uppáhaldi en ekki grár eða steinngrár sem einkennir íslenska byggingarlist og bílaflotan hér á landi....
Stóri glæpurinn sé inn­brotið sjálft - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Stóri glæpurinn sé inn­brotið sjálft - Vísir
Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður sem játað hefur innbrotin Stjörnugríss á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ, birti í dag myndband af innbrot...
Starfsfólki háskólaráðuneytisins fækkar um átta
📅 06.11.2026 👁️ 4
Starfsfólki háskólaráðuneytisins fækkar um átta
Stöðugildum innan Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis fækkar um átta með ráðstöfunum sem gripið var til í vikunni.Í skriflegu svari frá ráðun...
Ráðherra þvertekur fyrir niðurskurð hjá Landbúnaðarháskólanum
📅 06.11.2026 👁️ 4
Ráðherra þvertekur fyrir niðurskurð hjá Landbúnaðarháskólanum
Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, sagði í tilkynningu frá skólanum í gær að nauðsynlegt væri að leiðrétta fjármögnun ...
„Við þurfum að laga þetta“
📅 06.11.2026 👁️ 4
„Við þurfum að laga þetta“
Dagur gegn einelti var haldinn hátíðlegur í Hlíðaskóla. Halla Tómasdóttir forseti Íslands veitti Fjölbrautaskóla Suðurlands hvatningarverðlaun fyrir f...
Orðið á götunni: Örvæntingarfull tilraun skrímsladeildar til að gera ráðherra tortryggilegan vegna Landsvirkjunar
📅 06.11.2026 👁️ 3
Orðið á götunni: Örvæntingarfull tilraun skrímsladeildar til að gera ráðherra tortryggilegan vegna Landsvirkjunar
Örvænting stjórnarandstöðunnar og Morgunblaðsins hefur náð nýjum hæðum með þeirri ofuráherslu sem lögð hefur verið á að snúa út úr öllu sem snýr að má...
Lögregla á þyrlu teiknaði typpi á flugkortið – „Ég er ekki reiður, ég er vonsvikinn yfir sóuninni“
📅 06.11.2026 👁️ 2
Lögregla á þyrlu teiknaði typpi á flugkortið – „Ég er ekki reiður, ég er vonsvikinn yfir sóuninni“
Flugmaður lögregluþyrlu í Bretlandi hefur verið sakaður um að „teikna“ typpamynd á flugkort. Flugmaðurinn segist hafa verið að hringsóla við leit.Bres...
Sprengjuhótanir í Evrópu – „Aðeins byrjunin á því sem bíður Evrópuríkja“
📅 06.11.2026 👁️ 3
Sprengjuhótanir í Evrópu – „Aðeins byrjunin á því sem bíður Evrópuríkja“
Breska sjónvarpsstöðin Sky, búlgarska stöðin Nova TV og RTÉ, írska ríkissjónvarpið, fengu í dag sprengjuhótanir. Rask varð á starfsemi enda þurfti að ...
Spain's rail authorities face European fraud probe after Urda rail disaster
📅 06.11.2026 👁️ 3
Spain's rail authorities face European fraud probe after Urda rail disaster
Prosecutors begin investigating EU funds meant for upgrading the Spanish railway line where a train crash killed 69 people.
Gögn frá Akureyrarbæ sýna formlegar athugasemdir Síðuskóla við opinber skrif Helgu Daggar
📅 06.11.2026 👁️ 3
Gögn frá Akureyrarbæ sýna formlegar athugasemdir Síðuskóla við opinber skrif Helgu Daggar
Nútíminn hefur fengið afhent gögn frá Akureyrarbæ sem varpa nýju ljósi á ágreining Helgu Daggar Sverrisdóttur, fyrrverandi kennara við Síðuskóla, og s...
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp
📅 06.11.2026 👁️ 2
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp Fréttin6. nóvember 2026ErlentLeave a Comment Mikill eldur braust...
Upp­taka sýnir á­tökin sem leyddu til manndráps - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Upp­taka sýnir á­tökin sem leyddu til manndráps - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu. Upptakan sýnir tvo menn fylgja feðgum eftir en mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að kúga fé út úr syninum. Sa...
Upp­taka sýnir á­tökin sem leiddu til manndráps - Vísir

„Er þetta pöngurinn á honum?“ - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
„Er þetta pöngurinn á honum?“ - Vísir
Fyrsta sería af ferðaþáttunum Einni stjörnu kom út árið 2024 þar sem Dóri og Steindi flökkuðu milli ólíkra staða í leit að einnar stjörnu afþreyingu o...
Rottupungurinn reyndist vera æxli - Vísir

Sveitarstjóri Norðurþings: „Við könnumst bara ekki við þetta“
📅 06.11.2026 👁️ 3
Sveitarstjóri Norðurþings: „Við könnumst bara ekki við þetta“
Elvar Árni Lund sagði upp starfi sínu sem sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Norðurþings vegna ágreinings um fyrirhugað vindorkuver á Hnotastein...
Gefur út plötu og heldur út í Ung­frú al­heim - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Gefur út plötu og heldur út í Ung­frú al­heim - Vísir
Það er nóg um að vera hjá Siggu Ózk þessa dagana. Í dag gaf hún út aðra plötu sína, Pink Static, sem samanstendur af fimm glænýjum lögum auk hinna áðu...