Tveir voru handteknir og færðir til skýrslutöku á Akureyri um helgina vegna rannsóknar á sakamáli. Annar sakborninga var sóttur upp í stúku í miðjum knattspyrnuleik. Lögreglan á Norðurlandi eystra gefur ekki upplýsingar um málið en segir það viðkvæmt.
Hin handteknu eru bæði ungt fólk og var annað þeirra, ungur maður, sóttur upp í stúku á Greifavellinum á Akureyri á sunnudag af þremur lögreglumönnum - í viðurvist um 600 áhorfenda. Þar fór fram leikur KA og Keflavíkur í efstu deild karla í knattspyrnu. Í upptöku frá leiknum sjást lögreglumenn horfa yfir áhorfendaskarann og leita að sakborningi, áður en hann er svo sóttur og leiddur út.
Rannsóknin ótengd íþróttafélögunum
Lögregla ítrekar að málið tengist hvorki íþróttafélaginu né leikvanginum, heldur hafi lögregla fengið upplýsingar um að viðkomandi væri þar. Því hefði hann verið sóttur þangað en síðan sleppt að lokinni skýrslutöku.
Lögregla segir að ekki hafi verið sérstakur viðbúnaður á leiknum, þó að þrír lögreglumenn hafi sótt sakborning og fleiri beðið utan vallar. Annar sakborningur var einnig færður til skýrslutöku og sleppt að henni lokinni, og lögregla fór í húsleit tengda rannsókn málsins.