Karlmaður um fertugt var í dag úrskurðaður í fjögurra daga gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegu atviki í vesturbæ Kópavogs um hádegisbil í gær, eins og segir í tilkynningunni.
„Þar leitaði karlmaður á sextugsaldri í bakarí í hverfinu illa á sig kominn, en hann var með skotsár. Maðurinn var fluttur á Landspítalann og gekkst þar undir aðgerð í gær, en hann er ekki í lífshættu.“
Handtekinn í íbúðinni
Lögreglan var í kjölfarið með mikinn viðbúnað í ljósi alvarleika málsins en böndin beindust fljótt að íbúð fjölbýlishúss steinsnar frá því þar sem slasaði maðurinn fannst.
Þar innandyra var karlmaður um fertugt handtekinn í þágu rannsóknarinnar og færður á lögreglustöð. Sá hefur nú verið úrskurðaður í gæsluvarðhald.
„Rannsókn málsins er umfangsmikil, en miðar ágætlega. Við hana hefur verið lagt hald á skotvopn, en rannsóknin beinist m.a. að því hvort það hafi verið notað í málinu,“ sem segir í tilkynningu lögreglu.