Rekstrarniðurstaða samstæðu Hafnarfjarðarbæjar var neikvæð um 1,9 milljarða á fyrri helmingi ársins en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 887 milljóna króna hagnaði.
Niðurstaða A-hluta var neikvæð um 2,3 milljarða en áætlun gerði ráð fyrir 435 milljóna króna hagnaði.
Þórður Þórðarson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir afkomuna á fyrri hluta árs undir áætlunum. „Við höfum hafið markvisst starf til þess að bregðast við þessari stöðu og væntum góðs árangurs af þeim aðgerðum,“ er haft eftir Þórði í tilkynningu frá bænum.
Þar segir einnig að verri rekstrarniðurstöðu megi að stærstum hluta rekja til frávika í byggingarréttargjöldum, hærri rekstrarkostnaði og hærri verðbólgu en gert var ráð fyrir.