Í dag dropar aðeins á landsmenn en vindur verður með hægara móti.
Meiri kraftur verður í veðrinu á morgun þegar austan- og suðaustan átt gengur yfir landið með rigningu. Vindur fer langleiðina í stormstyrk þar sem hann verður ákafastur, syðst á landinu.
Suðvestlæg átt, 3-8 metrar á sekúndu, og víða dálítil rigning eða stöku skúrir, en styttir upp sunnanlands eftir hádegi. Vaxandi suðaustanátt á sunnanverðu landinu annað kvöld.
Austan og suðaustan 10-20 með rigningu á morgun, hvassast syðst. Snýst í suðlæga átt 8-15 með skúrum síðdegis og léttir til norðaustanlands.