Gunnar Þórðar­son er látinn - Vísir

Gunnar Þórðar­son er látinn - Vísir

Gunnar Þórðar­son er látinn - Vísir

Ferill Gunnars á tónlistarsviðinu er einstakur og eftir hann liggja yfir fimm hundruð lög á plötum sem þjóðin hefur tileinkað sér, sungið, elskað og dáð. Á engan er hallað þegar sagt er að Gunnar sé eitt allra stærsta nafn íslenskrar tónlistarsögu, ef ekki það stærsta. Hann hefur með verkum sínum öðrum fremur lagað sig að ólíkum straumum og stefnum. Gunnar starfaði sem gítarleikari, söngvari, útsetjari og upptökustjóri, hljómsveitarstjóri en þrátt fyrir ótvíræða hæfileika á öllum þessum sviðum verður hans einkum minnst sem lagahöfundar.

Gunnar fæddist á Hólmavík 4. janúar 1945 en fluttist aðeins átta ára gamall til Keflavíkur en við þann bæ hefur hann ávallt verið kenndur. Þar voru lögð drög að glæstum ferli og ber Gunnar sína ábyrgð á því að Keflavík hefur löngum verið kölluð Bítlabærinn. Segja má að gullöld tónlistar ríki á uppvaxtarárum Gunnars sem var réttur maður á réttum stað. Hann, eins og aðrir Suðurnesjamenn, hlustaði á Kanaútvarpið og þar heyrði Gunnar Elvis og seinna Bítlana og Beach Boys sem höfðu óvíræð áhrif á Gunnar.

Gunnar Þórðarson tónlistarmaður var viðstaddur jarðarför Björgvins Halldórssonar.Vísir/Vilhelm

Ekki var mikil tónlistarhefð á heimili Gunnars en tónlistarbakterían virðist hafa gripið hann ungan því hann var þegar kominn í skólahljómsveit þar sem hann lék á trommur. Hann naut ekki tónlistarkennslu utan þess að hann lærði sem unglingur lítillega á gítar hjá Guðmundi Ingólfssyni tónlistarfrömuði í Keflavík. Guðmundur starfrækti hljómsveit í eigin nafni og gekk Gunnar til liðs við þá hljómsveit þá 18 ára gamall. Samkvæmt Glatkistunni, þar sem finna má ítarlega ritgerð um feril Gunnars, var þetta líklega í byrjun árs 1963 en fljótlega upp úr því dregur til tíðinda; Guðmundur ákvað þá um haustið að leggja niður sveitina og Gunnar stofnar Hljóma. Allt springur út og vegurinn er varðaður.

Að neðan má sjá viðtal Eddu Andrésdóttur við Gunnar í þættinum Inn við beinið á Stöð 2 árið 1991.

Margt hefur verið ritað um hljómsveitina Hljóma sem gaf út hljómplötu strax árið 1964 þar sem finna má tvö lög, bæði eftir Gunnar, sem slógu í gegn: „Fyrsti kossinn“ og „Bláu augun þín“. Hljómar fóru um landið og er sagt að þeir hafi hver um sig haft tekjur á við togaraskipstjóra. Þegar Hljómar liðuðust í sundur stofnaði Gunnar ofurgrúbbuna Trúbrot með samruna meðlima úr Hljómum og Flowers. Þá var hippatíminn í algleymingi og bar Trúbrot dám af því. Þegar þarna er komið sögu var Gunnar orðinn virtur tónlistarmaður og hann hóf samstarf við Ríó Tríó, sem var þekkt þjóðlagahljómsveit sem flutti erlend lög við gamansama texta Jónasar Friðriks. Gunnar fór með Ríó Tríói tónleikaferð til Bandaríkjanna.

Um svipað leyti, eða í kringum 1975, var svo leynihljómsveitin Ðe lonlí blú bojs stofnuð, eins konar útgáfa Hljóma, sem sló í gegn með plötunni Stuð stuð stuð. Platan sú hafði að geyma ofursmellinn Heim í Búðardal, eftir Gunnar við texta Þorsteins Eggertssonar. Nóg var að gera hjá Gunnari því hann starfaði sem sessionmaður í hljóðverum, útsetti og stjórnaði upptökum hjá ýmsum listamönnum. Það var um þetta leyti sem bera fór á kröfu þess efnis að vert væri að veita Gunnari heiðurslaun listamanna sem svo varð að veruleika um miðjan áttunda áratuginn. Þar braut Gunnar enn eitt blaðið.

Gunnar starfaði talsvert á Bretlandi við upptökur og um þetta leyti stjórnaði hann upptökum á hinum ofurvinsælu Vísum úr Vísnabókinni ásamt Björgvin Halldórssyni og Tómasi Tómassyni. Þrátt fyrir gagnrýni sem fram kom og beindist einkum að Gunnari, að hann hafi selt rokksálu sína til poppguðsins, seldust þær plötur í bílförmum. Gunnar lét sér fátt um gagnrýnina finnast og stofnaði hljómsveitina Lummurnar sem nutu verulegra vinsælda. Verkefnin voru ófá og vert er að nefna kvikmyndatónlist sem Gunnar samdi við sjónvarpsmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Blóðrautt sólarlag. Gunnar fór einnig til Bandaríkjanna til að taka upp sólóplötu sem hlaut titilinn Ísland ´81.

Áttundi áratugurinn var viðburðarríkur í lífi Gunnars og undir lok hans hlaut hann inngöngu í Tónskáldafélag Íslands, fyrstur popptónlistarmanna til að vera boðið í þann mæta félagsskap, en til þess tíma höfðu einvörðungu „æðri“ tónskáld skipað þann félagsskap. Þannig var Gunnar stöðugt að brjóta múra. Þá var ferð hans til Bandaríkjanna örlagarík því þar kynntist Gunnar textahöfundinum Toby Herman en þau áttu seinna eftir að ganga í hjónaband. Er þá ónefnt verkefnið Þú og ég, en þar þótti Gunnar endanlega hafa selt sálu sína. Verkefnið var hreint og klárt diskó – en fyrir þá sem ekki muna þessa tíma er vert að nefna að þá ríktu hreinlega átök milli rokks/pönks og svo diskós. Má nefna þá gúanórokkarann Bubba Morthens sem gaf skít í alla skallapoppara en þar var Gunnar efstur á blaði. Platan Hið ljúfa líf sló hins vegar öll met í sölu það árið eða 1979.

Gunnar lét ekki pönkið trufla sig hið minnsta og hélt sínu striki og platan Himinn og jörð kom út fljótlega í upphafi níunda áratugarins – skallapoppararnir héldu sínu striki. Tónlistarverkefni Gunnars sem við tóku eru alltof mörg til að þau séu nefnd sérstaklega. Hann gerði tónlist við myndir og sjónvarpsefni, leikhús auk þess að sinna sýningum á Broadway og á Hótel Íslandi. Hann stofnaði Guitar Islandicio ásamt Birni Thoroddsen og Jóni Rafnssyni en áhugi hans á klassískri tónlist sprakk út. Gunnar vann að óperusmíð í samstarfi við Friðrik Erlingsson og sumarið 2013 var ópera þeirra Ragnheiður frumflutt.

Tónlistarverkefni sem Gunnar hefur komið að eru mýmörg og vandséð að nokkur einstaklingur geti gert tilkall til annars eins og þess sem hann hefur komið að í einni mynd eða annarri. Samhliða hefur hann sinnt félagsmálum tónlistarmanna og meðal annars setið í stjórn STEF og FTT en viðurkenningar eru fjölmargar: Fálkaorðan, hann er heiðursverðlaunahafi Íslensku tónlistarverðlaunanna og hefur verið útnefndur Borgarlistamaður Reykjavíkur og Listamaður Keflavíkur. Hann var gerður að heiðurgesti Hólmavíkur og staðir eins og Poppminjasafnið í Keflavík / Rokksafn Íslands gert nafni hans hátt undir höfði. Þá er vert að geta þess að árið 2021 kom út bókin Gunnar Þórðarson: Lífssaga, sem Ómar Valdimarsson festi niður á blað.

Eins og nærri má geta skilur Gunnar eftir sig risastórt skarð í íslensku tónlistarlífi. Hann var hógvær listamaður, hann fór ekki mikinn í viðtölum við fjölmiðla en vissi hvað hann vildi. Gunnar lætur eftir sig eiginkonuna Toby Herman en synir þeirra eru Karl Brooke Herman Gunnarsson, og Zakarías Herman Gunnarsson en dætur Gunnars frá fyrra hjónabandi eru Hulda Berglind og Katrín Perla. Að auki átti Gunnar dótturina Borghildi Gunnarsdóttur.

#gunnar #látinn #vísir #þórðarson


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262915256d/gunnar-thordarson-er-latinn

📰 Aðrar fréttir

Frelsisbjarmar Vals - Útgáfuboð þar sem höfundur stígur á stokk með hljómsveit
📅 29.10.2026 👁️ 1
Frelsisbjarmar Vals - Útgáfuboð þar sem höfundur stígur á stokk með hljómsveit
Valur Gunnarsson rithöfundur var að senda frá sér bókina Frelsisbjarmar og heldur af því tilefni útgáfuboð og tónleika föstudaginn 30. Október í Sölku...
Lawrence lét í sér heyra þegar óviðkomandi var hleypt inn til að sjá nektarsenu hennar
📅 29.10.2026 👁️ 1
Lawrence lét í sér heyra þegar óviðkomandi var hleypt inn til að sjá nektarsenu hennar
Hollywood stjarnan Jennifer Lawrence varð reið eftir að hún komst að því að starfsfólk kvikmyndavers hafði gónt á nektarsenu af henni án heimildar. Ge...
Orðið á götunni: Ari og Mogginn á fullu í upplýsingaóreiðu
📅 29.10.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Ari og Mogginn á fullu í upplýsingaóreiðu
Ari Edwald, borgarfulltrúi Miðflokksins, fer mikinn á forsíðu Morgunblaðsins í dag og fárast yfir því að stöðugildum hafi fjölgað um 26% hjá Reykjavík...
Ákærður fyrir tilraun til manndráps: Höfuðkúpubraut kærustuna á heimili þeirra í Reykjavík
📅 29.10.2026 👁️ 1
Ákærður fyrir tilraun til manndráps: Höfuðkúpubraut kærustuna á heimili þeirra í Reykjavík
Héraðssaksóknari hefur höfðað mál á hendur karlmanni fyrir tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sambandi.
Ekki von á fleiri uppsögnum hjá Hafnarfjarðarbæ
📅 29.10.2026 👁️ 1
Ekki von á fleiri uppsögnum hjá Hafnarfjarðarbæ
Þórður Þórarinsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir að nauðsynlegt hafi verið að ráðast í uppsagnir svo hægt væri að bregðast við slæmri fjárhagsstöð...
Íranar hafa ekki enn svarað bréfi Bandaríkjanna um nýjar friðarviðræður
📅 29.10.2026 👁️ 1
Íranar hafa ekki enn svarað bréfi Bandaríkjanna um nýjar friðarviðræður
JD Vance varaforseti Bandaríkjanna sendi Mohsen Rezaei, yfirmanni öryggisráðs Írans, bréf í vikunni að fyrirmælum Donalds Trump Bandaríkjaforseta í ti...
Áfram fjölskyldufyrirtæki en ný fjölskylda
📅 29.10.2026 👁️ 1
Áfram fjölskyldufyrirtæki en ný fjölskylda
Forstjóri Samskipa fullyrðir að vilji nýrra eigenda standi til þess að efla starfsemina á Íslandi. Íslendingar hafa haldið um stjórnartaumana í félagi...
Met refers itself to police watchdog over Meghan letter
📅 29.10.2026 👁️ 1
Met refers itself to police watchdog over Meghan letter
The police force faces scrutiny over its handling of a letter containing allegations about Meghan's father.
Ók á allt að 193 km hraða á Siglufjarðarvegi – farþegi hlaut heilaskaða
📅 29.10.2026 👁️ 1
Ók á allt að 193 km hraða á Siglufjarðarvegi – farþegi hlaut heilaskaða
Ökumaður sem var tæplega 18 ára gamall þegar hann velti bíl á Siglufjarðarvegi í Skagafirði í apríl 2025 hefur verið dæmdur í fimm mánaða skilorðsbund...
Veru­leikinn breyttur eftir ofsaakstur á ó­nýtum bíl - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 1
Veru­leikinn breyttur eftir ofsaakstur á ó­nýtum bíl - Vísir
Þetta segir í dómi Héraðsdóms Norðurlands vestra, sem kveðinn var upp í dag. Þar segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir hegningar- og umferðarlaga...
Sameining lögregluembætta: Skynsemi eða samþjöppun sem bitnar á landsbyggðinni?
📅 29.10.2026 👁️ 1
Sameining lögregluembætta: Skynsemi eða samþjöppun sem bitnar á landsbyggðinni?
Fyrirhuguð fækkun lögregluumdæma á Íslandi úr níu í þrjú hefur verið milli tannanna á fólki, einkum utan höfuðborgarsvæðisins þar sem fram hafa komið ...
Ó­vænt á­kvörðun þing­for­setans reitir vinstri­menn til reiði - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 1
Ó­vænt á­kvörðun þing­for­setans reitir vinstri­menn til reiði - Vísir
Þingforsetinn Andreas Norlén tilkynnti um ákvörðun sína fyrr í dag. Atkvæðagreiðslan mun fara fram á þriðjudag en ákvörðun Norlén kom sérfræðingum á ó...
Hlátra­sköll hjá heitum hönnuðum - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Hlátra­sköll hjá heitum hönnuðum - Vísir
Hönnuðir og listamenn stigu á stokk og kynntu það sem þeir höfðu aðallega verið að fást við að undanförnu í sinni sköpun. Mikið var um hlátrasköll og ...
Meirihlutinn í Reykjavík vill byggja ofan á bílastæði - „Hér gefst tækifæri til að nýta betur land“
📅 29.10.2026 👁️ 2
Meirihlutinn í Reykjavík vill byggja ofan á bílastæði - „Hér gefst tækifæri til að nýta betur land“
Fulltrúar meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur í umhverfis- og skipulagsráði fagna hugmyndum um að byggð verði blönduð byggð ofan á bílastæði í Ármúl...
Langflestir farnir að nota gervigreind til að sækja fréttir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Langflestir farnir að nota gervigreind til að sækja fréttir
Tæplega 71 prósent Íslendinga nota gervigreind til að afla sér frétta. Karlar eru líklegri til þess að gera það oftar en konur.Þetta er niðurstaða kön...
Nýr alþjóðaflugvöllur talinn marka tímamót í ferðamennsku
📅 29.10.2026 👁️ 1
Nýr alþjóðaflugvöllur talinn marka tímamót í ferðamennsku
Nýr alþjóðaflugvöllur var tekinn í notkun í dag við Ilulissat, þriðja stærsta byggðarlagið á Grænlandi. Bærinn er vinsæll ferðamannastaður ekki síst f...
Burnham says he wants to cut welfare bill 'as soon as we possibly can'
📅 29.10.2026 👁️ 1
Burnham says he wants to cut welfare bill 'as soon as we possibly can'
The prime minister did not outline a timetable, while opponents questioned the Budget's lack of detail on welfare reform.
Nýjar álögur „óásættanleg aðför“ að atvinnulífi Suðurlands
📅 29.10.2026 👁️ 2
Nýjar álögur „óásættanleg aðför“ að atvinnulífi Suðurlands
Sveitarfélög á Suðurlandi krefjast þess að ríkið falli frá áformum um sérstaka gjaldtöku á Þingvöllum, Gullfossi og Geysi og segja að með nýjum álögum...
ChatGPT trónir á toppnum - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
ChatGPT trónir á toppnum - Vísir
Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Gallup framkvæmdi fyrir Almannaróm. Af þeim sem nýta sér gervigreind á íslensku kjósa tæp 89 prósent þeirra að not...
Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks - Vísir
Melkorka greindi frá þessari ákvörðun sinni á Instagram-hringrás sinni í gær. „Eftir að hafa hugsað málið fram og til baka vildi ég tilkynna að ég er ...
Tvö mann­skæð slys vekja upp spurningar um öryggi - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Tvö mann­skæð slys vekja upp spurningar um öryggi - Vísir
Lestarkerfið á Spáni er mjög umfangsmikið og hefur lengi verið talið eitt af krúnudjásnum landsins. Það er næststærsta lestarkerfi heims, á eftir Kína...
Gamanmyndaleikarinn svarar ásökununum um perraskap
📅 29.10.2026 👁️ 3
Gamanmyndaleikarinn svarar ásökununum um perraskap
Bandaríski gamanmyndaleikarinn Jon Lovitz hefur svarað ásökunum Crystal Harris, ekkju Playboy-stofnandans Hugh Hefner, um að hann hafi verið einn mest...
LGBTQ+ handbókin: Skynsemi og vísindi hafa sigur í Suður-Danmörku
📅 29.10.2026 👁️ 2
LGBTQ+ handbókin: Skynsemi og vísindi hafa sigur í Suður-Danmörku
Það er mikill sigur fyrir heilbrigða skynsemi að Syddanmark-hérað skuli nú loksins hafa fellt tillöguna um hina mjög umdeildu LGBTQ+ handbók með atkvæ...
Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar - Vísir
Í ákæru á hendur manninum, sem þingfest var í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 13, segir að hann hafi veist að konunni með ofbeldi og reynt að svipta ha...
Offshore workers turn to weight-loss jabs to meet new helicopter weight limits
📅 29.10.2026 👁️ 2
Offshore workers turn to weight-loss jabs to meet new helicopter weight limits
From Sunday anyone weighing more than 19st 7Ib (124kg) will be banned from flying to an offshore platform.
Flávio Bolsonaro calls himself 'leader of Brazil' after election loss
📅 29.10.2026 👁️ 2
Flávio Bolsonaro calls himself 'leader of Brazil' after election loss
The defeated presidential candidate says he will lead the opposition from the US.
Hvorug flokkablokkin hefur tryggt sér meirihluta
📅 29.10.2026 👁️ 2
Hvorug flokkablokkin hefur tryggt sér meirihluta
Hvorug stærstu flokkablokkanna í ísraelskum stjórnmálum hefur tryggt sér meirihluta atkvæða í þingkosningunum sem haldnar voru á þriðjudag. Flokkur fo...
Verðbólgan enn „óþægilega há“
📅 29.10.2026 👁️ 3
Verðbólgan enn „óþægilega há“
Verðbólga stendur í stað milli mánaða í 5,9 prósentum. Hún hefur verið yfir fimm prósentum allt árið. Katrín Ólafsdóttir, dósent í hagfræði við Háskól...
Fengu ráð­gjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir upp­sagnirnar - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Fengu ráð­gjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir upp­sagnirnar - Vísir
„Það er nú þannig að fjárhagsstaða bæjarins kallar á miklar aðgerðir. Við þurfum að spara upp undir þrjá milljarða á næsta ári og þetta er liður í því...
Þarft þú meira járn?
📅 29.10.2026 👁️ 2
Þarft þú meira járn?
Þarft þú meira járn? Fréttin29. október 2026Heilbrigðismál, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Er járnið í líkamanum of lágt þrátt ...
Spesíur Elenoru: Jóla­klassík sem tekur að­eins 30 mínútur - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Spesíur Elenoru: Jóla­klassík sem tekur að­eins 30 mínútur - Vísir
Elenora Rós Georgesdóttir bakari deilir hér uppskrift að spesíum, einföldum og fljótlegum smákökum sem eru orðnar algjör Freyju-klassík. Uppskriftin á...
„Nú erum við trúlofaðar dúllur“ - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
„Nú erum við trúlofaðar dúllur“ - Vísir
Elín greindi frá tímamótunum með færslu á samfélagsmiðlinum Instagram, þar sem hún er með tæplega tólf þúsund fylgjendur.  „Mánaðarævintýri í Vestur-Á...
Le Pen vill franskar lausnir í stað lausna ESB
📅 29.10.2026 👁️ 3
Le Pen vill franskar lausnir í stað lausna ESB
Le Pen vill franskar lausnir í stað lausna ESB Fréttin29. október 2026Erlent, Evrópusambandið, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: M...
Minnst þrettán drepnir í drónaárás á lestarstöð
📅 29.10.2026 👁️ 3
Minnst þrettán drepnir í drónaárás á lestarstöð
Að minnsta kosti þrettán týndu lífi í dag þegar þrýstiloftsknúinn rússneskur árásardróni skall á lestarpalli þar sem fjölmenni stóð í borginni Dnípró ...
Mikill niðurskurður í Hafnarfirði: 23 störf lögð niður og laun yfirstjórnar fryst
📅 29.10.2026 👁️ 4
Mikill niðurskurður í Hafnarfirði: 23 störf lögð niður og laun yfirstjórnar fryst
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í dag tillögu bæjarstjóra um hagræðingaraðgerðir í miðlægri stjórnsýslu bæjarins. Í tilkynningu frá Haf...
Búið að ákæra son þingmanns
📅 29.10.2026 👁️ 3
Búið að ákæra son þingmanns
Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann sem grunaður er um að hafa orðið föður sínum til bana. Maðurinn er sonur Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur.Vísir grei...
„Svo­lítið sárt í hjartanu að hafa enga söngva­keppni“ - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
„Svo­lítið sárt í hjartanu að hafa enga söngva­keppni“ - Vísir
Samkvæmt könnun Maskínu finnst þremur fjórðu hlutum íslensku þjóðarinnar að Ísland ætti ekki að senda lag til keppninnar ef Ísrael verður á meðal þátt...
Hagstofustjóri blæs á fullyrðingarnar um uppsögn Hjartar: „Það myndi aldrei vega í svona ákvörðun“
📅 29.10.2026 👁️ 4
Hagstofustjóri blæs á fullyrðingarnar um uppsögn Hjartar: „Það myndi aldrei vega í svona ákvörðun“
Hrafnhildur Arnkelsdóttir hagstofustjóri segir ekkert til í fullyrðingunum um að Hirti J. Guðmundssyni hafi verið sagt upp á Hagstofunni vegna pólitís...
Sonur þingmanns ákærður vegna harmleiksins í Salahverfinu
📅 29.10.2026 👁️ 4
Sonur þingmanns ákærður vegna harmleiksins í Salahverfinu
Karlmaður sem er grunaður um að hafa banað föður sínum í heimahúsi í Salahverfinu í lok júlí hefur verið ákærður í málinu. Frá þessu greinir Vísir en ...
Dalvískt fyrirtæki í hart vegna einbýlishúsalóðar - Segir sína lóð ónothæfa
📅 29.10.2026 👁️ 4
Dalvískt fyrirtæki í hart vegna einbýlishúsalóðar - Segir sína lóð ónothæfa
Fyrirtæki á Dalvík lagði fram kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna mannvirkja og framkvæmda á lóð, þar sem stendur einbýlishús, ...
Hafnar á­sökunum um kosningasvindl - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Hafnar á­sökunum um kosningasvindl - Vísir
Útlit er fyrir að þrátefli muni myndast aftur í ísraelskum stjórnmálum. Vilji Benjamín Netanjahú halda áfram sem forsætisráðherra myndi hann annaðhvor...
Sheer courage of staff member who fought attacker with frying pan
📅 29.10.2026 👁️ 1
Sheer courage of staff member who fought attacker with frying pan
Witnesses say Samir Zitouni is a 'real-life hero' who told attacker "We love you, we can help you".
Jury shown CCTV of Huntingdon train staff using frying pan in defence
📅 29.10.2026 👁️ 1
Jury shown CCTV of Huntingdon train staff using frying pan in defence
Witnesses say Samir Zitouni is a 'real-life hero' who told attacker "We love you, we can help you".
Kjarasamningar kennara í hættu
📅 29.10.2026 👁️ 3
Kjarasamningar kennara í hættu
Formaður Kennarasambands Íslands segir allt stefna í forsendubrest gildandi kjarasamnings. Hann telur ólíklegt að félagsmenn í Kennarasambandinu, sem ...
Gyðingahatur á Íslandi – hótanir, hatursorðræða og lof um nasisma á samfélagsmiðlum
📅 29.10.2026 👁️ 3
Gyðingahatur á Íslandi – hótanir, hatursorðræða og lof um nasisma á samfélagsmiðlum
Gyðingahatur á Íslandi – hótanir, hatursorðræða og lof um nasisma á samfélagsmiðlum Fréttin29. október 2026Hatursorðæða, InnlentLeave a Comment Ummæli...
Cappadocia: Rock collapse kills two in Turkey's Cappadocia, local media reports
📅 29.10.2026 👁️ 3
Cappadocia: Rock collapse kills two in Turkey's Cappadocia, local media reports
One of the regions famous rock formations, known as "fairy chimneys", reportedly collapsed outside an open-air museum.
Hirti sagt upp störfum hjá Hag­stofunni - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Hirti sagt upp störfum hjá Hag­stofunni - Vísir
Hjörtur greinir frá uppsögninni í færslu á samfélagsmiðlinum Facebook, Vísir hefur ekki náð af honum tali vegna málsins. Þar greinir hann frá því að f...
Woman brutally attacked during violent mugging in Tenerife
📅 29.10.2026 👁️ 3
Woman brutally attacked during violent mugging in Tenerife
A 52-year-old woman needed medical treatment after being pulled to the ground by her hair and beaten during a violent robbery in Puerto de la Cruz, Te...
Missti röddina á ögur­stundu - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Missti röddina á ögur­stundu - Vísir
„Þá er minni keppni víst lokið áður en hún hófst almennilega, þar sem ég þurfti að segja mig frá keppninni vegna raddleysis þegar komið var að því að ...
Philippine police obtain warrant to search Thomas Markle's devices
📅 29.10.2026 👁️ 3
Philippine police obtain warrant to search Thomas Markle's devices
Images of child sexual abuse allegedly belonging to Meghan Markle's father had reportedly been found in his former home in the Philippines.