Gefin hefur verið út gul viðvörun á Suðausturlandi en hún tekur gildi klukkan níu í kvöld. Þetta er meðal þess sem fram kemur á vef Veðurstofu Íslands.
Þar segir einnig að það verði hvassast frá miðnætti og fram undir hádegi á morgun en lægi ekki fyrr en annað kvöld. Hviðurnar verði hvað mestar í Öræfum og má búast við norðaustan- og seinna norðanátt.