Fyrsti óveðurshvellur vetrarins er í uppsiglingu og hefur Veðurstofan nú gefið út gula viðvörun fyrir höfuðborgarsvæðið, þá er appelsínugul viðvörun á Norðurlandi vestra og á Ströndum. Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir við DV að það sé skynsamlegt fyrir fólk sem þarf að ferðast milli landshluta að flýta eða seinka för sinni. Þá biðlar hann til ferðaþjónustuaðila og annarra sem hýsa ferðamenn í nótt að láta það vita í kvöld hvernig staðan verður.
Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu – Biðlað til ferðaþjónustunnar um að láta ferðamenn vita