Guðmundur Felix Grétarsson, sem gekkst undir handleggjaágræðslu árið 2021, hefur greinst með krabbamein. Handleggjaágræðslan var söguleg og einsdæmi en Guðmundur missti báða handleggi í slysi árið 1998. Guðmundur greinir frá því á Facebook-síðu sinni að hann sé kominn með krabbamein í nefi og þarf að láta fjarlægja það. Krabbameinið er staðbundið, hefur ekki breiðst út. Guðmundur segir á Facebook:
Guðmundur Felix með krabbamein – „Ég var að fá þær fréttir að ég er með krabba í trýninu“