Góðgerðartónleikar í Salnum til styrktar stríðshrjáðum börnum

Armenski píanóleikarinn Marianna Shirinyan kemur fram ásamt Hlín Leifsdóttur sópransöngkonu og Kvennakór Reykjavíkur á góðgerðartónleikum í Salnum í Kópavogi 19. nóvember klukkan 19:30. Allur ágóði rennur til hjálparstarfs í þágu stríðshrjáðra kristinna barna frá Nagorno-Karabakh og víðar.
Tónleikarnir eru haldnir til styrktar starfi dönsku hjálparsamtakanna Mission10forty. Samtökin styðja börn og fjölskyldur sem hafa upplifað stríð, flótta og missi.
Marianna Shirinyan er prófessor í píanóleik við Konunglega danska tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn. Armensk tónlist verður áberandi á efnisskránni, en einnig verða flutt verk eftir meðal annarra Chopin, Schubert, Bach, Rachmaninov og Árna Thorsteinsson.
Kvennakór Reykjavíkur kemur fram undir stjórn Ágotu Joó. Kynnir kvöldsins verður Birgir Þórarinsson, fyrrverandi alþingismaður.
Stuðningur við börn og fjölskyldur
Samkvæmt kynningu tónleikanna vinnur Mission10forty að bættum uppvaxtarskilyrðum barna í Armeníu. Þá starfrækja samtökin RESET-verkefnið í Armeníu og Úkraínu undir faglegri stjórn sálfræðingsins Kirsten Callesen.
Verkefnið veitir börnum og fjölskyldum stuðning við að takast á við streitu og áföll. Heimamenn fá jafnframt þjálfun til að veita áframhaldandi aðstoð í samfélögum sínum.
Miðaverð er 5.000 krónur. Nánari upplýsingar og miðasala eru á vef Salarins og á Tix.is
