Youtube mun í náinni framtíð sjálfkrafa greina og merkja gervigreindarefni.
Síðustu aðgerðir miðilsins á sviði gervigreindar voru framkvæmdar árið 2024, þegar hann fór fram á að notendur tilkynntu sjálfir um notkun á gervigreind.
Síðan þá hafa gervigreindarforrit tekið miklum framförum og orðið erfiðara að greina hvort slík forrit hafi verið notuð við gerð myndefnis. Þar að auki er orðinn greiðari aðgangur að forritum eins og Veo 3.1 frá Google og Seedance frá Bytedance, móðurfyrirtæki Tiktok.
Geta mótmælt merkingunni
Höfundar munu geta mótmælt merkingunni ef þeir telja að efni þeirra hafi verið ranglega merkt sem gervigreindarefni.
Merkingarnar hafa ekki áhrif á algrím miðilsins, sem mælir með myndböndum fyrir notendur.
Tónlistarveitan Spotify er meðal þeirra miðla sem hafa nýlega tekið upp sjálfvirka merkingu á gervigreindarefni.