Tveir menn komu á lögreglustöðina á Hverfisgötu í gærkvöldi eða nótt þar sem annar var með blæðandi áverka í andliti andliti.
Að sögn lögreglu sögðust mennirnir hafa verið stungnir skammt frá lögreglustöðinni af nafngreindum aðila.
Lögregla hóf leit að viðkomandi sem fannst skömmu seinna og var hann vistaður í fangaklefa. Mennirnir sem urðu fyrir árásinni voru fluttir með til frekari aðhlynningar á bráðamóttöku Landspítalans.
Lögregla fékk svo tilkynningu um yfirstandandi innbrot í grunnskóla í Reykjavík þar sem verkfæri voru notuð til að brjóta rúður. Lögregla hafði hendur í hár viðkomandi og var hann handtekinn skammt frá vettvangi og þýfi endurheimt. Hann mun vera þekktur hjá lögreglu en var rólegur og í skýrsluhæfu ástandi. Var hann frjáls ferða sinna eftir að skýrslutöku á lögreglustöð lauk.
Lögregla fékk einnig tilkynningu um mann sem hafði gengið berserksgang í raftækjaverslun í Reykjavík. Honum var haldið niðri af starfsmönnum þar til lögregla kom á vettvang. Hann var vímaður og þekktur hjá lögreglu og fékk hann pláss í fangageymslu.
Loks var tilkynnt um einstakling með skotvopn á sér á bar í Reykjavík. Um var að ræða einstakling sem er þekktur hjá lögreglu en hann ógnaði engum með vopninu heldur sást einungis með það.
Lögregla hafði uppi á honum og handtók hann þar sem skotvopnið fannst. Það reyndist eftirlíking af skotvopni. Maðurinn var vímaður og var vistaður í fangaklefa vegna málsins.