„Þegar maður er vinstra megin í lífinu sér maður hægrið ekki beint sem frábæran kost,“ segir Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins í borginni, í samtali við mbl.is. Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Viðreisnar var kynntur í dag.
„Mér fannst áhugavert að sjá að í nýju áherslunum sem gefnar voru út í dag er ekkert fjallað um húsnæðisuppbyggingu eða hvernig henni verði háttað,“ segir Sanna.
Hún segir það þó eiga eftir að koma í ljós nánar þegar fleiri áherslur verða gefnar út.
Útvistun sorphirðu óæskileg
Þá gagnrýnir hún einnig áform nýs meirihluta um útvistun á sorphirðu borgarinnar.
„Við höfum fjölmörg dæmi um það að þessi svokallaða hagkvæmni sem fjallað er um með útvistuninni er alltaf tekin út annars staðar, það bitnar alltaf á íbúanum sem fær verri þjónustu eða þarf að greiða hærri gjöld.“
Veita þurfi sterkt aðhald
Hún segir að nóg verði um að vera hjá Vinstrinu í minnihluta. Nú þurfi að veita nýjum meirihluta sterkt aðhald.
Nú segir hún nýja borgarfulltrúa í minnihluta þurfa að ræða saman og kynnast betur fyrir komandi átök. Mikill munur sé þó á skoðunum Vinstrisins og Miðflokks.
„Ég held að áherslur Miðflokksins og Vinstrisins séu mjög ólíkar en eins og ég segi þá hérna er maður svona að kynnast þessu fólki núna og sjá hvað þau leggja áherslu á.“