Hér erum við að tala um gæsafjölskyldu við Lyfjaver við Suðurlandsbraut 22 þar sem gæsamamman var með ungana sína á hættulegum stað við mikla umferðargötu.
Starfsfólk hafði því samband við Dýraaðstoð höfuðborgarsvæðisins, sem mætti á staðinn ásamt starfsmanni frá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum til að bjarga fjölskyldunni.
Farið var með mömmuna og ungana í búr í garðinum. Þar una þau sér öll vel ásamt nokkrum öðrum gæsum með ungana sína.
„Við erum með tíu unga hérna núna og þær eru fjórar að passa upp á þá. Þetta er bara orðið eins og einn stór leikskóli, þau eru bara öll að hugsa um þetta saman, eru öll hérna og virðast vera mjög ánægð hérna,” segir Helena Gylfadóttir, deildarstjóri Dýraþjónustu Reykjavíkur og dýradeildar Húsdýragarðsins.
Helena er með sérstakt fóður fyrir fuglana, sem er andarungaköglar og svo fá þeir líka þurrkaða mjölorma. En fær garðurinn oft svona björgunarútköll eins og frá Lyfjaveri?
„Já, við fáum rosalega mikið og sérstaklega núna, bæði í apríl og maí, þá er rosalega mikið um bæði skógarþresti og stara og síðan andarunga og gæsarunga, sem við erum að fara að bjarga. Oft er því miður búið að keyra á foreldrana og stundum er þetta líka eins og þarna í Lyfjaveri. Þau voru bara búin að verpa á mjög hættulegum stað og ungarnir voru bara í mikilli hættu,” segir Helena.
Þetta hlýtur að vera skemmtilegt?
„Þetta er æðislegt, þetta er yndislegt og síðan að geta sleppt fuglunum út í náttúruna er það besta sem er til, að þeir fái að vera í sínu náttúrulega umhverfi,” segir Helena alsæl.