Þrír eru í gæsluvarðhaldi grunaðir um að hafa reynt að smygla rúmlega 14 lítrum af amfetamínbasa með flutningaskipinu Dettifossi.
Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn í miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir þetta. Gæsluvarðhaldsúrskurður rennur út á morgun. Ævar segir að gera megi ráð fyrir því að farið verði fram á framlengingu.
Hann segist ekki geta tjáð sig um hvort þeir grunuðu hafa tengsl við skipulagða brotastarfsemi. Skipið var stöðvað við heimkomu frá Evrópu og er því talið líklegt að efnin hafi komið þaðan.
Sex voru handteknir en þremur sleppt stuttu síðar. Tveir þeirra sem eru í haldi eru starfsmenn Eimskips. Lögregla lagði hald á efnin síðastliðinn mánudag. Ævar segir rannsókn miða vel.
Verulegt magn fíkniefna fannst og Ævar Pálmi gerir ráð fyrir að það hafi áhrif á ólöglegan markað.
„Við teljum að svo sé. Að það hafi alltaf einhver áhrif, að minnsta kosti til skemmri tíma.“ Minna framboð hafi mögulega áhrif á verð. „Þetta hefur alla vega þau áhrif að þetta fer ekki á götuna,“ segir hann.
Styrkur amfetamínbasans liggur ekki fyrir og því ekki hægt að segja til um hversu mikið hefði verið hægt að framleiða til sölu úr honum. Í saltdreifaramálinu svokallaða var mönnum sem fluttu inn 53 lítra af amfetamínbasa gefið að sök að hafa framleitt um 117 kíló af amfetamíni.