Þetta er meðal þess sem kom fram í máli Þóru Ásgeirsdóttur, framkvæmdastjóra Maskínu, sem var gestur í Bítínu á Bylgjunni í morgun.
Þar ræddi hún nýja könnun fyrirtækisins. Sú könnun var opinberuð í gær og sýndi hún að 51,3 prósent þeirra sem tóku afstöðu ætla að segja já við aðildarviðræðum við Evrópusambandið en 48,7 prósent ætla að segja nei.
Sjá einnig: Dregur saman milli fylkinga
Þóra segir muninn innan vikmarka og því séu í raun helmingslíkur á hvorri niðurstöðunni, eins og staðan er núna.
„Þetta er auðvitað könnun og það er ekkert eins erfitt og að reyna að átta sig á mannlegu eðli. Þess vegna segi ég nú stundum að svona kannanir séu það flóknasta sem maður þarf að eiga við.“
Hún segir að það að já-ið sé ofar en nei-ið bendi til einhvers en munurinn hafi verið að dragast saman.
Þá segir hún spennandi að fylgjast með afstöðu milli mismunandi hópa. Bendir hún á mikinn mun milli íbúa höfuðborgarsvæðisins og íbúa landsbyggðarinnar. Það verði líklega mjög mikill munur á kjördæmum.
Hún Þóra sagðist hafa heyrt að fyrstu tölur kæmu frá Suðurlandi, til dæmis, og þar væru nei-arar mun fleiri samkvæmt könnunum. Því væri mjög líklegt að fyrstu tölurnar sýndu fleiri nei en já. Það gæti þó breyst þegar líður á daginn, þar sem það væri margt fólk í Reykjavík og þar væri hlutfall þeirra sem ætla að segja já hæst.
Hlusta má á viðtalið við Þóru í spilaranum hér að neðan.
Aðeins þrír dagar eru í að kjörstaðir um land allt verði opnaðir fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður Íslands við Evrópusambandið. Kjörstaðir verða almennt opnir frá klukkan 9 að morgni til klukkan tíu að kvöldi kjördags á laugardag, 29. ágúst.
Kjörstaðir geta verið opnir skemur en upplýsingar um opnunartíma má finna á heimasíðum sveitarfélaga.
Rúmlega fjörutíu þúsund manns hafa þegar greitt atkvæði utan kjörfundar, hjá öllum sýslumönnum, sendiráðum og ræðismönnum. Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu, segir kjörsókn hafa verið góða og mikill áhugi sé hjá fólki að taka þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Allar upplýsingar um kjörstaði og annað sem viðkemur þjóðaratkvæðagreiðslunni má finna inni á vefnum islands.is en einnig eru ítarlegar upplýsingar á vefnum thjodaratkvaedi.is.