Fyrsta vindorkuver landsins, Vaðölduver, var gangsett í dag við hátíðlega athöfn. Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs, Brynja Baldursdóttir stjórnarformaður og Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunnar fluttu ávörp ásamt Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnisstjóri fór yfir sögu verkefnisins og Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra gangsetti verið.
Segja má að veðurguðirnir hafi verið of blíðir við gesti því varla neinn vindur var í Vaðöldu í dag.