Kastriot Pepaj segist ekki nota dulnefnið Milan á dulkóðaða samskiptamiðlinum Signal, rétt eins og meðákærði Sævar Örn Hilmarsson kannast ekki við dulnefnið Cloud á sama miðli. Þessu komu þeir skýrt á framfæri í aðalmeðferð Dettifossmálsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.Cloud og MilanÞað er mikið í húfi fyrir ákæruvaldið að sýna fram á tengsl þessara ákærðu við áðurnefnd dulnefni enda voru þau notuð við skipulagningu á innflutningi á 14 lítrum af amfetamínbasa með gámaflutningaskipinu Dettifossi í apríl.
Furðu lostið vitni vakti kátínu í Dettifossmálinu - „Af hverju er ég hér?“