Hann kveðst nú gera úrslitatilraun til að koma í veg fyrir verkfall, sem að óbreyttu mun hefjast aðfaranótt miðvikudagsins 23. september. Samningar flugvirkja hafa verið lausir frá síðustu áramótum, í rúma átta og hálfan mánuð.
Viðræður hófust í nóvember í fyrra og deilunni var vísað til ríkissáttasemjara í febrúar. Megindeiluefnið er leiðrétting vegna skekkju í kjörum flugvirkja gagnvart viðmiðunarstéttum, en Icelandair hefur sagt kröfur þeirra umfram svigrúm félagsins.
Fyrirhugað verkfall hefur þegar haft áhrif á ferðaáætlanir fólks, en rúmlega þúsund farþegar Icelandair hafa nýtt sér boð félagsins um að færa flug vegna þess. Þá hefur verið greint frá afbókunum hjá ferðaþjónustufyrirtækjum hér innanlands.