Fótbolti.net hefur legið niðri í rúman sólarhring, eða frá því á áttunda tímanum í gærmorgun. „Það hrundi einhver server í útlöndum sem við erum búin að vera að nota. Það er búið að taka langan tíma að koma honum upp aftur,“ segir Mate Dalmay, stærsti eigandi síðunnar, við fréttastofu.
„Það er ekki netárás, það eru engin gögn að týnast. Þetta er hardware-vandamál,“ segir Mate sem vonast til þess að síðan verði komin aftur í gagnið síðar í dag.
Hann segir að hann hafi búist við því að síðan færi aftur í loftið í gær, áður en tveir stórir íslenskir leikir hófust. Miðillinn þurfti að einskorða umfjöllun sína um þá við samfélagsmiðla sína. „Það eru yfir 35 þúsund manns sem lesa vefinn á degi eins og í gær. Það er fúlt að bregðast þeim.“