Símamótið er fyrir 6-12 ára stelpur og hefur verið haldið árlega frá 1985.
Allir leikir mótsins fara fram á völlum á félagssvæði Breiðabliks í Kópavogi og keppni hefst í fyrramálið.
Stelpurnar koma frá félögum um allt land og vinsælt er að halda sérstök fléttupartý áður en mótið er sett.
Keppt er á 46 völlum og skýrar reglur eru um hegðun bæði innan vallar og utan.
Foreldrum er gefið bleika spjaldið geri þeir athugasemdir við leikmenn eða dómara af hliðarlínunni.