Konan var stöðvuð af tollgæslu við komuna til landsins grunuð um fíkniefnasmygl og því næst færð til yfirheyrslu á lögreglustöð. Konan er erlendur ríkisborgari á fimmtugsaldri. Þegar komið var á lögreglustöðina missti konan meðvitund. Lék strax grunur á að pakkning sem hún bæri innvortis hefði rofnað.
Konan var flutt rakleiðis á bráðamóttökuna í Fossvogi. Við nánari skoðun og aðhlynningu kom í ljós að grunur lögreglunnar reyndist réttur. Konan er þegar á batavegi, en ljóst er að staðan var alvarleg um tíma.
Jón Halldór segir rannsókn vera á frumstigi. Hann býst við að gæsluvarðahaldskrafa yfir konunni verði tekin fyrir síðar í dag.
Jón Halldór segir þetta annað málið af þessum toga sem kemur upp á skömmum tíma.